Fréttablaðið - 23.04.2005, Side 64

Fréttablaðið - 23.04.2005, Side 64
Þjóðernistískan brýst út í mismunandi myndum. Þegar afrísku áhrifin eru skoðuð er ekki hægt að horfa framhjá dýramynstrun- um sem fá að vera með í sumartískunni. Þau hafa þó verið upp á yfirborðinu síðastliðin ár. Annaðhvort hata kon- ur þau eða elska. Til er sérstakur flokkur kvenna, svokallaðar „kattarkonur“ sem elska allt loðið og eiga slíkan fatnað og fylgihluti í massavís. Heimilin eru jafnvel skreytt með villidýramynstri, loðnum púðum í svefnherbergi og beljuskinni á stofugólfi. Þessi hópur kvenna getur því farið á veglegt „vísafyllerí“ í versl- unum landsins. Vorlína Dolce-&Gabbana er með ýktara móti en þar fá ýmis villidýramynstur að njóta sín. Ekki er gert upp á milli sebrahesta, slangna eða tígrisdýra. Allt er jafn heitt. Þessi dýramynstur passa gríðarlega vel með safarítískunni og ekki er verra að nota afríska skartgripi með. Eins og síð hálsmen úr dökkum við, tréarmbönd með gullbryddingum og stóra eyrnalokka, einnig úr við. Um er að ræða allt frá loðskinnum til að hafa um hálsinn niður í skó og allt þar á milli. Það er þó alls ekki málið að vera í þessu dýraþema frá toppi til táar. Smekklegra er að nota sebraskóna og -skyrtuna við gallabuxur og láta þar við sitja. Slönguskór og tígrisdýrakjóll eru til dæmis algerlega á bannlista, ef það er notað saman. Það er sumsé auðvelt að ofkeyra þessa tísku og því skal varúðar gætt. Það er dásamlegt að koma í verslunina Flex um þessar mundir. Verslun- in er yfirfull af flottu dýradóti, allt frá skóm og veskjum upp í flottar kápur. Karen Millen hefur líka fallið fyrir dýratískunni og má finna ýmsa flotta hluti í þeirri verslun. Eitt er víst að það mun líklega fjölga í hópi „kattakvennanna“ um þessar mundir enda er eitthvað að ef þessi tíska kítlar ekki. martamaria@frettabladid.is MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN Lýtalausar gallabuxur Þegar gallabuxur eru nefndar á nafn koma 501 frá Levis ósjálfrátt upp í hugann enda voru þær buxur óheyrilega vinsælar þegar ég var unglingur. Þetta Levis-æði var hluti af mikilli góðæristíð í mínu lífi. Skrifstofa föður míns var mjög nálægt Levis-búðinni og var það orðinn órjúfanlegur hlutur af bæjarferðum okkar vinkvennanna að koma við hjá honum og fá aur fyrir nýjum gallabuxum. Á þessum tíma nægði ekki að eiga einar bláar og einar hvítar gallabuxur. Í fataskápnum var alla litasinfóníuna að finna, allt frá grænum upp í fjólubláar. Þetta góðæristímabil varð því miður ekki langlíft. Levis 501 fóru úr tísku, skrifstofan hans pabba flutti og við tóku afborg- anir af steinsteypu. Ég hef líka uppgötvað að það er farsælla að fjár- festa í kvennasniðum ef það er stemmning fyrir því að gallabuxurn- ar passi og séu klæðilegar. Þar sem 501 er herrasnið uppfyllti það ekki þær kröfur því þær voru alltaf hólkvíðar í mittið ef þær pössuðu um lærin. Það er kannski fyrirgefanlegt að gera þessi mis- tök á unglingsárunum en þegar fólk er komið í fullorðinna manna tölu er betra að vera með þetta á hreinu. Kröfur til gallabuxna hafa líka breyst töluvert. Í dag vilja konur bæði getað farið í gallabuxun- um sínum á ball og unnið í þeim í garðinum. Flestar konur eiga að minnsta kosti einar gallabuxur en langflestar eiga til skiptanna. Með þörfum nútímans hafa stærðirnar líka stækkað (líklega vegna stækkandi hamborgararassa í heiminum) og hafa margar konur dottið í lukkupottinn, eða ekki? Þær nota sömu gallabuxnastærð og þegar þær fermdust þrátt fyrir að hafa tekið út kvenlegan vöxt og bætt á sig nokkrum kílóum. Heimur stækkandi fer. Í dag er svo kom- ið að stjörnurnar úti í heimi hafa tekið ástfóstri við galla- buxur, þá sérstaklega Rock and Republic, Yanuk, Seven for all mankind, Diesel og Calvin Klein svo einhverjar tegundir séu nefndar. Það er svo sem ekkert skrítið að þessi merki hafi slegið í gegn enda búa þau yfir næstum því fullkomnum sniðum sem henta breiðum hópi kvenna. Eða eins og maðurinn sagði: „Fátt gleð- ur hjarta karlmannsins meira en fallegur botn í bláum gallabuxum.“ 48 23. apríl 2005 LAUGARDAGUR Ferskur og frábær Stuttir bólerójakkar eru eitt af því ferskasta í sumartískunni. Slíkir jakkar voru áberandi um 1950 og voru þeir notaðir við pils og yfir kjóla. Nú kveður við annan tón. Þessi bólerójakki er ögn öðruvísi en fyrirrennar- ar hans því þessi er úr gallaefni með stuttum ermum. Hann er mjög flottur við víð litrík pils og víða toppa. Það má gjarnan nota hálsfest- ar við hann og næla í hann alls kyns skrauti. Hann fæst í versluninni Zara í Smáralind. DOLCE & GABBANA eru leiðandi í dýramynstrum en þau eru afar vinsæl í sumarlínunni. Kitlandi villidýraæði TÚRKISLITAÐ og appelsínugult fer vel með brúnu, Karen Millen Kringlunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. O .F L. SAMKVÆMISVESKI með dýramynstri færi vel við einfaldan kjól. Verslunin Flex í Bankastræti. LOÐKEIPUR úr Hvítlist, Krókhálsi. SEBRAKÁPA frá versluninni GK. SKÓR frá versl- uninni Flex í Bankastræti. KAREN MILLEN OG FLEX bjóða upp á veglegt úrval af skinnskóm. SKINNSKÓR úr versl- uninni GK, Laugavegi. KATE MOSS er oftast í loðkeipnum sínum við gallabuxur. Þú get- ur eignast alveg eins því hann fæst í Flex í Bankastræti. SEBRAKJÓLL OG TÍGRISDÝRAPILS, Karen Millen Kringlunni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.