Fréttablaðið - 26.04.2005, Page 1
● rómantísk mynd í órómantísku umhverfi
Skafti Skítur:
▲
SÍÐA 34
Á leiðinni
á Cannes
● skrautfjöður í hatt Óskars Jónassonar
Kalli á þakinu:
▲
SÍÐA 27
Líf og fjör
og læti
▲SÍÐA 22
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
BOÐ OG BÖNN Boð og bönn í auglýs-
ingum verða til umræðu á hádegisverðar-
fundi ÍMARK á Nordica Hóteli í hádeginu.
Rætt verður um auglýsingar Umferðarstofu,
auglýsingar um óholla fæðu og bann á
auglýsingum hér og í nágrannalöndum.
DAGURINN Í DAG
26. apríl 2005 – 111. tölublað – 5. árgangur
SÝKNU EÐA VÆGARI DÓM Sak-
borningarnir þrír í líkfundarmálinu kröfðust
ýmist sýknu eða mildunar refsingar þegar
mál þeirra var tekið fyrir í Hæstarétti í gær-
morgun. Sjá síðu 4
VIÐRÆÐUR FLJÓTLEGA Heather
Conley, aðstoðarráðherra í bandaríska ut-
anríkisráðuneytinu, segir nýjar viðræður
um framhald varnarsamningsins hefjast
mjög fljótlega. Í uppstokkun herstöðvakerf-
is Bandaríkjamanna verði tekið tillit til tví-
hliða samningsskuldbindinga við Íslend-
inga. Sjá síðu 4
STRÍÐSHANSKANUM KASTAÐ
Íhaldsmenn kalla Tony Blair lygara og frjáls-
lyndir krefjast þess að hann upplýsi um
samskipti þeirra Goldsmith lávarðar, ráð-
gjafa ríkisstjórnarinnar, í aðdraganda inn-
rásarinnar í Írak. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 30
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
Byggir upp vöðva
hjá einkaþjálfara
● heilsa
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
82%
20-49 ára karla á sv-horninu
lesa Fréttablaðið á föstu-
dögum.*
Þeir eru m.a. að sækja
í bílaauglýsingar í smá-
auglýsingum – og það nýta
bílasölur sér.
*Gallup febrúar 2005
VEÐRIÐ Í DAG
FREMUR ÞUNGBÚIÐ Skúrir sunnan
til, þokusúld fyrir norðan og austan en
þurrt að kalla í höfuðborginni. Hiti 3-11
stig, mildast Suðvestanlands. Sjá síðu 4.
● Arsenal vann Tottenham
Enska knattspyrnan:Laufey Karítas Einarsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÞÝSKALAND, AP Joshka Fischer, ut-
anríkisráðherra Þýskalands,
mátti í allan gærdag svara
spurningum þingmanna um fyr-
irmæli sín um útgáfu vegabréfs-
áritana til erlendra ferðamanna
sem andstæðingar hans segja að
hafi orðið til þess að opna aust-
ur-evrópskum glæpamönnum
leið inn í Þýskaland og þar með á
allt evrópska efnahagssvæðið.
Málið hefur reynst Fischer
afar erfitt, hann mætti í þýska
þingið klukkan tíu í gær til að
bera vitni og svaraði spurningum
langt fram yfir kvöldmat.
Fyrir fimm árum fyrirskipaði
Fischer að rýmkað skyldi á regl-
um um útgáfu vegabréfaáritana.
Í kjölfarið varð auðveldara fyrir
íbúa Austur-Evrópu að komast
til Þýskalands og að sögn nýttu
úkraínskir glæpamenn sér það
meðal annars til mansals.
Fischer viðurkenndi að hann
hefði gert mistök en sagði það
mjög orðum aukið að glæpa-
menn hefðu nýtt sér aðstöðuna,
glæpatíðni í Þýskalandi bæri
þess ekki vitni. ■
Glæpaalda í Svíþjóð:
Enn finnast lík
á víðavangi
GOTLAND Lögreglan á Gotlandi
glímir nú við enn eitt morðmálið í
Svíþjóð. Mikið hefur verið um
morð í landinu á undanförnum
vikum og hafa lík fórnarlambanna
fundist niðurgrafin á víðavangi.
Upp komst um síðustu morðin
þegar lík af manni og konu fund-
ust í malargryfju á sunnanverðu
Gotlandi. Lögreglan á Gotlandi
hefur staðfest að um hjón á
fimmtusaldri er að ræða. Þau
sáust síðast fyrir rúmri viku.
Fram hefur komið að hjónin
höfðu sætt hótunum upp á síðkast-
ið eftir að þau báru vitni í glæpa-
málum og leikur grunur á að
morðin hafi verið framin í
hefndarskyni. ■
Finnskur barnaníðingur:
Misnotaði
445 drengi
FINNLAND Finnskur karlmaður er
grunaður um að hafa misnotað
445 drengi í Taílandi á fimmtán
ára tímabili.
Maðurinn var handtekinn
þegar hann kom heim úr ferðalagi
til Taílands í janúar síðast liðnum.
Reynist maðurinn sekur er þetta
eitt stærsta glæpamál sem upp
hefur komið í Finnlandi þegar
litið er til fjölda fórnarlamba í
málinu.
Við húsleit heima hjá mannin-
um fundust dagbækur þar sem
hann skráði lýsingar á drengjum
sem hann hafði misnotað á ferð-
um sínum til Taílands. Dagbækur
mannsins ná aftur til ársins 1989
og því er ljóst að hann hefur
stundað iðju sína í minnst hálfan
annan áratug. ■
Chelsea varð
ekki meistari
ÞORSKI LANDAÐ Á AKRANESI Oddur og Hinrik Hinrikssynir og Björn Oddsson lönduðu í gær 1.800 kílóum af þorski úr Bresa AK 101 á
Akranesi. Þremenningarnir fengu 1.800 kíló í net sem þeir lögðu deginum áður. Hér sjást þeir mæla þorskinn. Fari hann yfir sjö kíló fá þeir
240 krónur fyrir kílóið, ella minna. Fyrr í gær fundaði forstjóri Hafrannsóknastofnunar með þingmönnum um stöðu þorskstofnsins. Sjá síðu 2
Þýskir þingmenn spurðu utanríkisráðherrann út úr tímunum saman:
Þjarmað að Joshka Fischer
EFTIRLAUNAMÁLIÐ Forsætisráðuneytið
kannar nú lagalegar afleiðingar
þess ef lögum um eftirlaun ráðherra
og þingmanna yrði breytt. Þing-
flokkur Framsóknarflokksins ræddi
málið á þingflokksfundi í gær.
Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins,
segir að í forsætisráðuneytinu sé
vinna í gangi við frumvarp til
breytinga á lögunum líkt og boðað
hafi verið.
Hjálmar segir að fyrirhugaðar
breytingar á lögunum varði ekki
þau ákvæði sem breyttust við
samþykkt eftirlaunafrumvarps-
ins svokallaða fyrir tveimur
árum, heldur eldri ákvæði sem í
ljós kom þá að voru til staðar.
Spurður hvort ekki þurfi sam-
þykki beggja flokka til að leggja
fram stjórnarfrumvarp um breyt-
ingar á lögunum sagði Hjálmar að
varast beri að oftúlka ummæli
Davíðs Oddssonar um málið. „Ég
held að hann hafi verið að skírskota
til eftirlaunafrumvarpsins sjálfs
sem samþykkt var fyrir tveimur
árum en hitt var eldra ákvæði sem
þingið hafði ekki áttað sig á fyrr en
þarna,“ sagði Hjálmar og áréttaði
að það væri nú til skoðunar.
Frá því að Fréttablaðið sagði frá
því í frétt í janúar að sjö fyrrver-
andi ráðherrar þæðu sautján millj-
ónir í eftirlaun auk þess að vera á
launum hjá ríkinu hafa orðið mikl-
ar umræður um málið. Þverpóli-
tísk sátt varð um það í kjölfarið –
ef sjálfstæðismenn eru undan-
skildir – að breyta þessu ákvæði í
lögunum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins óttast sjálfstæðismenn
afleiðingar lagabreytinga og vilja
því sem minnst hrófla við lögun-
um. Þeir benda á að samkvæmt
eignarréttaákvæði stjórnarskrár-
innar megi ekki taka rétt af mönn-
um sem þeir hafi þegar áunnið sér
samkvæmt lögum.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins ræddi málið ekki á fundi sínum
í gær að sögn þingflokksformanns-
ins, Einars K. Guðfinssonar. „Eftir-
launalögin voru samþykkt fyrir
tveimur árum og því engin ástæða
til að ræða þau á þingflokksfundi
nú,“ sagði Einar. - sda
Sjá síðu 14
Framsókn undirbýr nýtt
eftirlaunafrumvarp
Óljósar afleiðingar breytinga á lögum um eftirlaun æðstu embættismanna gætu komið í veg fyrir að
lögunum verði breytt. Verið er að kanna það í forsætisráðuneytinu hvaða möguleikar eru til staðar
lagalega. Málið var rætt á þingflokksfundi framsóknarmanna í gær en ekki sjálfstæðismanna.
DAVÍÐ OG GEIR H. HAARDE
Sjálfstæðismenn telja lagabreytingu geta
brotið gegn eignarrétti.