Fréttablaðið - 26.04.2005, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 26.04.2005, Blaðsíða 40
■ ■ KVIKMYNDIR  20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir myndina El angel exterminator eða Engill dauðans eftir Luis Bunuel, sem hann gerði í Mexíkó 1962. Myndin er með sænskum texta. ■ ■ TÓNLEIKAR  20.00 Söngsveitin Fílharmónía flytur verkið Carmina Burana á vor- tónleikum sínum í Langholtskirkju. Flytjendur eru, auk Söngsveitarinnar Fílharmóníu, þau Hallveig Rúnars- dóttir sópran, Ólafur Kjartan Sig- urðarson baríton og Þorgeir J. Andrésson tenór, píanóleikararnir Guðríður St. Sigurðardóttir og Sól- veig Anna Jónsdóttir, sex slagverks- leikarar og Drengjakór Kársnes- skóla. Stjórnandi er Óliver Kentish. ■ ■ FUNDIR  12.00 Sagnfræðingafélag Íslands boðar til fundar í Norræna húsinu þar sem Gunnar Þór Bjarnason og Stefán Á. Guðmundsson ræða um tvær kvikmyndir sem sýndar hafa verið á alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í Reykjavík að undanförnu: Der Untergang sem fjallar um síðustu daga Hitlers og liðsmanna hans í Berlín 1945 og Diarios de motocicleta sem greinir frá ferðalagi hins unga Ernestos „Che“ Guevara og vinar hans um Suður-Ameríku árið 1952. ■ ■ SAMKOMUR  21.00 Eyvindur P. Eiríksson, Þor- steinn Antonsson, Þorgerður Mattía Kristiansen, Þorsteinn frá Hamri og Hörður Gunnarsson lesa úr verkum sínum á 34. Skáldaspíru- kvöldinu, sem haldið er á Kaffi Reykjavík. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. Mikil stemmning ríkti í Lang- holtskirkju á sunnudaginn þegar Söngsveitin Fílharmonía flutti þar verkið Carmina Burana eftir Carl Orff. Einhver lét þau orð falla að þak Langholtskirkju hefði nánast verið í hættu á tímabili. Með Söngsveitinni söng Drengjakór Kársnesskóla ásamt þremur einsöngvurum, tveimur píanóleikurum og sex slagverks- leikurum. Tónleikarnir verða end- urteknir í kvöld. Carl Orff samdi þetta fræga verk árið 1936 við gömul ljóð eft- ir farandsöngvara frá miðöldum. Flest ljóðanna eru frá 12. öld að talið er og fjalla um fallvaltleika gæfunnar, ástir og örlög, drykkju, daður og gleðskap. Verkið vakti strax hrifningu og óhætt er að fullyrða að Carm- ina Burana sé eitt allra vin- sælasta tónverk 20. aldar. Á tón- leikunum verður verkið flutt í út- setningu sem Carl Orff gerði sjálfur fyrir tvö píanó og slag- verk, kóra og einsöngvara. Í nokkrum þáttum verksins er kórnum skipt í kór og kammerkór og einnig tekur drengjakór þátt í flutningnum. Söngsveitin Fílharmonía flutti þetta verk hér á landi á sínum fyrstu tónleikum árið 1960 í Þjóð- leikhúsinu. Þá söng Þjóðleik- húskórinn með henni. Næst flutti Söngsveitin Carmina Burana árið 1975 og þá með Háskólakórnum. Nú hefur kórinn endurnýjað kynni sín við þetta magnaða kór- verk og flytur það í tilefni af 45 ára afmæli sínu ásamt einsöngv- urunum Hallveigu Rúnarsdóttur sópran, Ólafi Kjartani Sigurðar- syni baríton og Þorgeiri J. Andr- éssyni tenór, píanóleikurunum Guðríði St. Sigurðardóttur og Sól- veigu Önnu Jónsdóttur, sex slag- verksleikurum og Drengjakór Kársnesskóla, sem æfði sinn hluta undir stjórn Þórunnar Björnsdótt- ur. Stjórnandi á tónleikunum er Óliver Kentish, sem stjórnað hef- ur Söngsveitinni undanfarin tvö starfsár. Samtals eru söngvarar á tón- leikunum á annað hundrað og þeg- ar þeir leggja allt sitt til með tveimur flyglum og hávaðasöm- um slagverksleikurum tekur und- ir í Langholtshverfinu. ■ 28 26. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR EKKI MISSA AF… ... tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands á fimmtudaginn þegar Fordæming Fásts eftir Hector Berlioz verður flutt í fyrsta sinn hér á landi. Fjórir einsöngv- arar taka þátt í flutningnum og fer þar fremstur í flokki sjálfur Krist- inn Sigmundsson, sem fer með hlutverk Mefistófelesar. ... Dínamíti, nýjasta verki leik- skáldsins Birgis Sigurðssonar, sem frumsýnt verður í Þjóðleik- húsinu annað kvöld. Verkið fjallar um heimspekinginn Nietzsche og Elísabetu systur hans. ... fundi Sagnfræðingafélags Íslands í Norræna húsinu í há- deginu í dag, þar sem fjallað verður um tvær kvikmyndir um sagnfræðileg efni sem vöktu mikla athygli á nýafstaðinni kvik- myndahátíð. Stoppleikhúsið hefur í vetur sýnt leik- verkið Hrafnkels sögu Freysgoða, sem eins og nafnið bendir til er byggt á sam- nefndri Íslendingasögu. Í kvöld er gestum og gangandi boðið að sjá leiksýninguna sér að kostnaðarlausu í Tjarnarbíói klukkan 20. Þetta er 60. sýning Stoppleiksins á leikritinu og verð- ur væntanlega jafnframt sú síðasta. Sýn- ingarlengd er 45 mínútur. Leikritið var frumsýnt 1. október síðast- liðinn og hefur síðan verið á faraldsfæti um landið þvert og endilangt. Leikhóp- urinn hefur aðallega sýnt verkið í grunn- og framhaldsskólum en lítið hefur verið um almennar sýningar á verkinu. Hrafnkels saga Freysgoða, gjarnan nefnd Hrafnkatla, er í hópi þekktustu Íslendinga- sagna. Þar segir frá rás atburða sem hefst á því að Hrafnkell Freysgoði drepur Einar Þor- bjarnarson smalamann fyrir þá sök að ríða hestinum Freyfaxa í leyfisleysi. Leikarar í sýningunni eru Eggert Kaaber og Sigurþór Albert Heimisson, en höfundur leik- gerðar og leikstjóri er Valgeir Skagfjörð. Leikmynd og búningar: Vignir Jóhannsson. Kl. 20.00 Kvikmyndin El Angel Exterminator eða Engill dauðans verður sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði á vegum Kvikmyndasafns Ís- lands í kvöld. Myndina gerði Luis Bunu- el í Mexíkó árið 1962 og telst hún vera ein af hans bestu myndum. menning@frettabladid.is Öllum boðið í leikhús SÖNGSVEITIN FÍLHARMONÍA Mikil stemmning var á fyrri tónleikum Söngsveitarinnar Fílharmoníu í Langholtskirkju á sunnudaginn. Verkið Carmina Burana verður flutt aftur í kvöld. ! HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 23 24 25 26 27 28 29 Þriðjudagur APRÍL STÓRA SVIÐ DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT, Fö 6/5 kl 20 - AUKASÝNING, Fö 20/5 kl 20 - AUKASÝNING, Fö 27/5 kl 20 - AUKASÝNING, Síðustu sýningar HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20 Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - Síðustu sýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20, Lau 21/5 kl 20 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 1/5 kl 14 - UPPSELT Su 1/5 kl 17, Fi 5/5 kl 14, Lau 7/5 kl 14, Su 8/5 kl 14, Lau 14/5 kl 14 NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN TERRORISMI e. Presnyakov bræður Fi 28/4 kl 20, Fi 5/5 kl 20, Fö 6/5 kl 20 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. Fö 29/4 kl 20 - UPPS., Lau 30/4 kl 20 - UPPS., Su 1/5 kl 20, Mi 4/5 kl 20 - UPPS., Fi 5/5 kl 20 - UPPS., Fö 6/5 kl 20 - UPPS., Lau 7/6 kl 20 - UPPS., Su 8/5 kl 20 - UPPS., Fi 12/5 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA Fi 28/4 kl 20 - Aukasýning RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ e. Önnu Reynolds. Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS. Lau 30/4 kl 20, Su 1/5 kl 20 AUGNABLIKIÐ FANGAÐ DANSLEIKHÚSIÐ fjögur tímabundin dansverk Su 1/5 kl 19:09 Síðasta sýning Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudag 29. apríl kl. 20 - Frumsýning 1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn 8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400 Ath. Aðgangur ókeypis Apótekarinn eftir Haydn Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar Svo undir tekur í hverfinu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.