Fréttablaðið - 26.04.2005, Síða 17
Starfsmannamál GT verktaka
Í Fréttablaðinu föstudaginn 22.
apríl er birt yfirlýsing frá Gísla
Sveinbjörnssyni, einum af for-
svarsmönnum GT verktaka. Í yfir-
lýsingunni er Oddur Friðriksson
sagður fara með rangt mál varð-
andi dvöl tveggja lettneskra verka-
manna og sagt er að Oddur, verka-
lýðshreyfingin og Vinnumálastofn-
unin leggi fyrirtækið í einelti.
Förum aðeins yfir staðreyndir
málsins. Um miðjan febrúar voru
þrír íslenskir verkamenn látnir
hætta störfum hjá GT verktökum
og í staðinn ráðnir fjórir lettneskir
verkamenn á svokölluðum þjón-
ustusamningum. Strax og þetta
varð ljóst gerði Vinnumálastofnun
athugasemd, lýsti því yfir að ekki
væri um þjónustusamninga að
ræða og óskaði eftir að sýslu-
mannsembættið á Seyðisfirði rann-
sakaði málið. Ekkert gerðist í mál-
inu fyrr en tveimur mánuðum síðar
að lögreglan handtók mennina og
færði þá í skýrslutöku. Um mán-
aðamótin febrúar/mars óskaði yfir-
trúnaðarmaður eftir afritum af
ráðningarsamningum og upplýs-
ingum um laun lettnesku starfs-
mannanna.
Engin svör eru komin frá GT
verktökum og vísa þeir málinu til
leigusala í Lettlandi. Í núgildandi
virkjunarsamningi skuldbinda
verktakar sig til að afhenda yfir-
trúnaðarmanni ráðningarsamninga
og upplýsingar um laun starfs-
manna sem koma til starfa á virkj-
unarsvæðinu. Skiptir engu máli
hvort um er að ræða aðalverktaka
eða undirverktaka. Reyndar er sér-
staklega tekið fram í virkjunar-
samningi að aðalverktaki beri
ábyrgð á að undirverktaki standi
við samninginn. Réttur yfirtrúnað-
armanns er því ótvíræður að fá
ráðningarsamninga og upplýsingar
um launakjör starfsmanna. GT
verktakar hafa því brotið virkjun-
arsamninginn með mjög alvarleg-
um hætti með því að afhenda ekki
umbeðnar upplýsingar.
Þrátt fyrir að GT verktakar
sæki starfsmenn til erlendra
starfsmannaleigufyrirtækja losnar
fyrirtækið á engan hátt undan
framangreindum skyldum. Við-
skipti GT verktaka og starfs-
mannaleigunnar eru ekki einkamál
þeirra því á Íslandi gilda íslensk
lög og kjarasamningar og allir
starfsmenn sem hingað koma
verða að njóta að lágmarki þeirra
kjara sem samningar og lög
tryggja. Meðan fyrirtæki geta ekki
staðfest að ráðningarkjörin upp-
fylli íslensk lágmarkskjör liggja
þau undir grun um að þau séu að
fara á skjön við kjarasamninga.
Oddur Friðriksson, yfirtrúnað-
armaður við Kárahnjúkavirkjun,
hefur starfað við mjög erfiðar að-
stæður. Frá upphafi hefur hann
verið í stanslausri baráttu við er-
lenda verktaka sem hafa átt erfitt
með að sætta sig við íslensk lög og
kjarasamninga. Eftir mikla vinnu
og þrautseigju er nú að nást árang-
ur og virðist sem erlendu verktak-
arnir séu búnir að átta sig á að sam-
starf er eina leiðin til að ná árangri.
Eftir stendur íslenskur undir-
verktaki sem hefur reynst mjög
erfiður í samstarfi og kallar það
siðleysi af yfirtrúnaðarmanni að
gæta hagsmuna tveggja erlendra
verkamanna sem eru í farbanni
vegna hugsanlegra brota sem GT
verktakar bera alla ábyrgð á. Ég
lýsi fullum stuðningi við störf Odds
Friðrikssonar yfirtrúnaðarmanns
og ef GT verktakar eru óánægðir
með hans störf stafar það af því að
þeir hafa ekki látið hann hafa um-
beðnar upplýsingar sem hann á
fullan rétt á og GT verktakar und-
irgengust um leið og þeir gerðust
verktakar á virkjunarsvæðinu. Í
yfirlýsingunni kemur fram að GT
verktökum sé annt um að fara að
gildandi lögum og reglum. Ekki efa
ég að þetta er vel meint en það er
ekki nóg að lýsa þessu yfir, aðal-
atriðið er að framfylgja góðum
markmiðum. Ég skora á Gísla
Sveinbjörnsson að afhenda yfir-
trúnaðarmanni allar upplýsingar
um starfskjör lettnesku starfs-
mannanna og koma samskiptunum
þar með í gott horf. Standist ráðn-
ingarkjörin íslenska kjarasamn-
inga og lög er ekkert að fela.
Greinarhöfundur er talsmaður
samstarfsnefndar um virkjunar-
samning.
17ÞRIÐJUDAGUR 26. apríl 2005
En simmsalabimm?
Abrakadabra er dulrænt orð sem er
notað til að töfra fram góða anda sem
eiga að veita vernd gegn sjúkdómum.
Orðið er einnig notað af nútíma töfra-
mönnum þegar þeir þykjast galdra
fram dulræna eða yfirnáttúrulega
krafta til að aðstoða þá í blekkingum
þeirra. Þessi töfraformúla gæti verið
tengd orðinu „abraxas“ sem finnst á
mörgum verndargripum frá síðustu
árum rómverska heimsveldisins og er
talið vera upphaflega frá Gnostíkerum
eða Egyptum. Það er allavega ljóst að
abrakadabra virkar alveg jafn vel og
abraxas eða hókus pókus.
Óli Gneisti veltir fyrir sér töfraorðum
á vantru.net.
Birtingarmynd æskudýrkunar?
Til stendur að tengja verðmæti iðgjalda
aldri greiðandans þannig að iðgjöld
sem greidd eru á unga aldri eru verð-
mætari en iðgjöld sem við greiðum
þegar aldurinn færist yfir. Rökin eru þau
að sjóðurinn hafi peningana lengur til
ávöxtunar. En hvað þýðir þetta t.d. fyrir
konur sem eru fjarri vinnumarkaði á
fyrstu árum starfsævinnar vegna barn-
eigna og hvað með langskólagengið
fólk sem kemur seint inn á vinnumark-
að?
Ögmundur Jónasson á ogmundur.is
Penninn er öflugri en...
Blaðamaður sem býr við ritfrelsi þarf
að axla mikla ábyrgð því völd þeirra
og áhrif í samfélaginu eru mikil. Það
hlýtur því að vera eðlileg og sífelld
spurning stéttarinnar hvort hún sé að
axla þessa ábyrgð í störfum sínum.
Fagna ber framtaki Morgunblaðsins
og Háskólans á Akureyri að taka þetta
viðfangsefni til umfjöllunar. Á stund-
um finnst mér ýmsir blaðamenn hér-
lendis bregðast ábyrgð sinni í því
mikla frelsi sem þeir njóta til allrar
hamingju. Einhver lenska er orðin hjá
sumum að gera sig breiða með því að
vera nógu orðljótir og finnst „töff“ að
tala illa um stjórnmálamenn, málefni
eða flokka. Þá finnst mér um of gæta
tilhneigingar nokkurra blaðamanna
að fjalla um álitamál á þann hátt að
þeirra eigin sjónarmið verða undir-
liggjandi við nálgun málsins en ekki
hin hlutlausa frásögn þar sem lesand-
anum/hlustandanum/áhorfandum er
ætlað að mynda sér skoðun af um-
fjölluninni.
Hjálmar Árnason á althingi.is/hjal-
mara/
AF NETINU
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • Sími 568 8611 • piano@piano.is
Píanó á verði sem þú
hefur ekki séð áður!
Goodway hljóðfærin eru frábær kostur
fyrir þá sem eru að kaupa si fyrsta píanó.
Í fyrsta sinn á Íslandi bjóðum við þér nú
upp á að kaupa píanó á vaxtalausum
greiðslum (til 15 mánaða). 2 ára ábyrgð.
Verð frá 15.867 kr.
í 15 mán. eða 238.000 kr. staðgrei .
121 og 123 cm. píanó í svörtu, hnotu og
mahony.
Leynist lítill snillingur
á þínu heimili?
91-5350
ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON
UMRÆÐAN
ERLENDIR VERKA-
MENN