Fréttablaðið - 26.04.2005, Page 21
3ÞRIÐJUDAGUR 26. apríl 2005
ABC Plus Senior
Fjölvítamín fyrir fólk á efri árum
60 töflur
(tveggja mán. skammtur)
Gerið verðsamanburð!
ABC Plus Senior er sérsniðin bætiefnablanda
fyrir fólk sem komið er á efri ár. Það
inniheldur vítamín, steinefni og snefilefni
auk m.a. lýkópens og lúteíns. Lúteín er
andoxunarefni sem tilheyrir karótín
fjölskyldunni og er nauðsynlegt til að
viðhalda góðri sjón.aðeins kr.499,-
FJÖLVÍTAMÍN
MEÐ GINSENG
Aukin
líkamleg orka
og andleg
vellíðan
FÆST Í APÓTEKUM,
HAGKAUP, NETTÓ,
SAMKAUP, SPARKAUP,
NÓATÚNI, ÚRVALI
OG STRAX
,
, ,
, ,
,
Vísindamenn hafa komist að
því að með einfaldri
heilaskönnun er hægt að lesa
hugsanir fólks.
Vísindamenn bæði í Bretlandi og
Japan hafa komist að því að hægt
er að lesa hugsanir fólks með ein-
faldri heilaskönnun. Hjá
nokkrum sjálfboðaliðum var
fylgst með þeim hluta heilans
sem tekur á móti upplýsingum frá
augunum á meðan þeir horfðu á
ólíka hluti á tölvuskjá. Vísinda-
mennirnir gátu lesið í niðurstöður
heilaskönnunarinnar og vitað
hvað fólkið hafði séð á skjánum.
Þegar tvær myndir voru látnar
birtast mjög hratt hvor á eftir
annarri gátu sjálfboðaliðarnir að-
eins greint þá seinni en vísinda-
mennirnir sáu augljós merki þess
að heilinn greindi einnig þá fyrri.
Svipaðar rannsóknir voru
gerðar í Japan og fengust sömu
niðurstöður en vísindamennirnir
telja þetta fyrsta skrefið í að geta
lesið hugsanir fólks og jafnvel
fundið bældar minningar eða séð
hvað fólk óttast. Þeir telja þó
langt í að það verði hægt en eru
að vonum spenntir yfir þessari
nýju uppgötvun. ■
Offita er heimsfaraldur og
hefur fólki sem þjáist af offitu
fjölgað úr 200 milljónum í 300
milljónir á tíu árum.
Offita er ekki bara vaxandi heil-
brigðisvandamál í Bandaríkjun-
um og Evrópu heldur í heiminum
öllum. Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunin (WHO) varar í nýrri
skýrslu við stigvaxandi offitufar-
aldri í veröldinni allri. Í skýrsl-
unni kemur fram að offita hafi
margfaldast á síðustu tíu árum –
árið 1995 hafi 200 milljónir
manna þjáðst af offitu en nú tíu
árum síðar sé þessi tala komin í
300 milljónir. Þá eru Kínverjar að
þyngjast verulega en þar í landi
þjást nú 18 milljónir fullorðinna
af offitu og 137 milljónir teljast
vel yfir kjörþyngd. Ástæðu þessa
má rekja til breytts mataræðis,
einkum meðal þeirra sem búa í
stórborgunum, svo sem aukning-
ar á neyslu sykurdrykkja, óhollr-
ar matarolíu, æ fleiri eiga bíl og
sjónvarp. Um 15% kínverskr
karla teljast nú yfir kjörþyngd en
sami hópur var 4% fyrir aðeins
átta árum. Svipað er uppi á ten-
ingnum víða annars staðar. Talið
er að helmingur þess fólks sem
greinist með sykursýki II árið
2010 verði búsettur í Asíu. Ásamt
með hreyfingarleysi er ástæðan
fyrir þessari uggvænlegu þróun
meðal annars talin vera sú að
matvæli kosta orðið minna en
áður – einkum matur sem er feit-
ur og sykraður. ■
Kínverskur offitusjúklingur í skoðun hjá
lækni sínum. Kínverjar hafa þyngst verulega
hin síðustu ár sem og heimsbyggðin öll.
Heimurinn fitnar og fitnarEinhleypir karlmenn eyða meiri tímafyrir framan spegilinn fyrir stefnumót
en venjulegt kvöld með strákunum.
Piparsveinar
punta sig meira
LOFAÐIR KARLMENN EYÐA MINNA
Í SNYRTIVÖRUR Á MÁNUÐI EN
PIPARSVEINARNIR.
Einhleypir karlmenn í Bretlandi
eyða að meðaltali tólf pundum,
eða rúmlega fjórtán hundruð krón-
um, í snyrtivörur á mánuði – fimm
pundum meira en þeir sem eru í
sambandi. Þetta eru niðurstöður
nýrrar könnunar tímaritsins Loaded
en fjögur þúsund karlmenn á aldr-
inum 18 til 24 ára tóku þátt í
henni. Tveir þriðju af karlmönnun-
um sögðust bara nota snyrtivörur
til að ganga í augun á kvenþjóð-
inni á meðan fjörutíu prósent
sögðust vera undir þrýstingi frá
kvenfólki að líta vel út. Í könnun-
inni kemur fram að karlmenn eru
að meðaltali nítján mínútur að
taka sig til fyrir stefnumót en að-
eins sjö mínútur þegar þeir fara út
með vinum sínum.
Tilfellum fjölgað
BANN LAGT Á NOTKUN TILTEKINS
ROTVARNAREFNIS Í SNYRTIVÖRUM.
Vísindanefnd Evr-
ópusambandsins
um neytendavör-
ur mælir með
algjöru banni á
notkun rotvarnar-
efnisins metýl-
díbrómoglútar-
ónítríl (MG) í
snyrtivörum, en
ofnæmistilfellum
vegna efnisins
hefur farið fjölg-
andi. Í kjölfar þess
verður notkun efnisins bönnuð í
snyrtivörugerð í löndum ESB og er
þá átt við snyrtivörur sem bornar
eru á húð. Að óbreyttu mega vörur
á borð við handsápu og hárþvotta-
lög innihalda allt að 0,1% MG.
Nefndin lagði þó til að öll notkun
efnisins yrði bönnuð og sagði
ástæðu til að skoða notkun efnis-
ins í öðrum vörum sem komast í
snertingu við húð manna.
Bráðum geta vísindin leyft okkur að lesa hugsanir fólks.
Skanni les hugsanir
Handsápa má
ekki innihalda
meira en 0,1%
af ofnæmis-
valdandi efninu
metýldíbrómogl
útarónítríl.