Fréttablaðið - 26.04.2005, Síða 32
Heilsustofnun Náttúrulækninga-
félags Íslands heldur upp á 50 ára
afmæli í sumar. Við stofnun henn-
ar árið 1955 hét hún Heilsuhæli
NLFÍ og hafði Jónas Kristjánsson
læknir, einn af brautryðjendum
náttúrulækningastefnunnar á Ís-
landi, forystu um undirbúning og
uppbyggingu þess.
Ólafur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsustofnunar
NLFÍ, segir helstu breytinguna
sem orðið hafi síðustu áratugi
vera að þær hugmyndir sem stofn-
unin byggir á og voru umdeildar
fyrir 50 árum séu nú almenn vit-
neskja sem fjallað sé um daglega í
fjölmiðlum. Þá sé helsta breyting-
in innan stofnunarinnar sú að hún
hafi breyst úr hressingarhæli yfir
í að vera blanda af hressingarhæli
og endurhæfingarstofnun.
Í tilefni afmælisins verða hald-
in málþing á Sauðárkróki og Akur-
eyri dagana 27. og 28. apríl. Þar
verður meðal annars sagt frá
Jónasi Kristjánssyni lækni og frá
hugmyndafræði og upphafi stofn-
unarinnar. Einnig verða flutt er-
indi um heilbrigði, húmor, heil-
brigt mataræði og næringarfræði.
24. júlí verður síðan haldið form-
lega upp á afmælið með opnu húsi
og fjölskylduskemmtun.
2.000 manns koma árlega til
dvalar á stofnuninni. Hægt er að
taka á móti 180 dvalargestum á
hverjum tíma en biðlistar eru
ávallt til staðar þrátt fyrir að bók-
að sé tvo mánuði fram í tímann. Í
dag vinna við stofnunina 120
starfsmenn, þar af fjöldi sér-
hæfðra heilbrigðisstarfsmanna.
Að sögn Ólafs á nokkur upp-
bygging sér stað sem stendur en
um 100 þjónustuíbúðir eiga að rísa
á lóð stofnunarinnar. Þá verður í
sumar byggð ný 25 metra útisund-
laug sem bætist við baðhús og
innisundlaug sem tekin voru í
notkun árið 2003.
Ólafur segir það besta úr
tveimur heimum koma saman í
starfsemi stofnunarinnar, sem
byggist á samblandi af hefð-
bundnum og óhefðbundnum lækn-
ingum. - sgi
20 26. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
LUCILLE BALL (1911-1989)
lést þennan dag
Það besta úr tveimur heimum
TÍMAMÓT: HEILSUSTOFNUN NFLÍ Í HVERAGERÐI 50 ÁRA
„Ef þú vilt láta koma einhverju í verk, biddu
upptekna manneskju um það. Því meira sem
þú hefur að gera, því meira geturðu gert.“
Lucille Ball var ástsæl bandarísk leikkona og stjarna sjónvarpsþáttanna
„I Love Lucy“ sem nutu mikilla vinsælda á sjötta áratugnum.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Sveinn Guðnason, frá Botni í Súganda-
firði, lést mánudaginn 18. apríl.
Svanhildur Ólafsdóttir, Vesturholtum
Þykkvabæ, lést föstudaginn 22. apríl.
Eyjólfur Bjarnason, frá Kyljuholti, lést
laugardaginn 23. apríl.
JARÐARFARIR
13.00 Helga Daníelsdóttir, frá Bjargs-
hóli, Miðfirði, verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu.
13.00 Halldóra Halldórsdóttir, Kóngs-
bakka 14, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
SLÖKUN Konur slaka á í heitum potti í nýlegu baðhúsi Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði.
Versta kjarnorkuslys sem orðið
hefur í heiminum átti sér stað
þennan dag árið 1986 í Cherno-
byl-kjarnorkuverinu í Sovétríkjun-
um sálugu. Ástæður slyssins voru
raktar til ábyrgðarlausrar tilraunar
með kælikerfi kjarnaofns númer
4. Kælikerfinu var lokað, þannig
að kjarninn hitnaði um of og olli
gufusprengingu, sem tætti sund-
ur hlífarnar þannig að geislavirkt
efni fór í miklu magni út í and-
rúmsloftið. Geislavirknin var
margfalt meiri en eftir sprengj-
urnar sem varpað var á Hiros-
hima og Nagasaki.
Fyrstu dagana eftir slysið dóu 32
og fjölmargir hlutu bruna. Daginn
eftir slysið hófst brottflutningur
30 þúsund íbúa í grenndinni.
Geislavirku efnin dreifðust með
vindstraumum yfir Norður- og
Austur-Evrópu. Sovésk yfirvöld
reyndu að hylma yfir óhappið en
urðu að viðurkenna að meirihátt-
ar slys hefði orðið þegar sænsk
yfirvöld tilkynntu 28. apríl að
geislavirkni mældist 40 prósent
hærri en venjulegt gæti talist
1.300 kílómetra norðvestur af
Chernobyl.
Enn er ekki fullljóst hve margir
hafa dáið úr sjúkdómum sem
tengja má við Chernobyl-slysið.
Þó er vitað að þúsundir sovéskra
borgara hafa dáið úr krabba-
meini og öðrum sjúkdómum
sem rekja má til geislavirkni, auk
þess sem margir hafa orðið fyrir
varanlegu heilsutjóni. Slökkt var á
síðasti kjarnaofninum í Cherno-
byl-kjarnorkuverinu árið 2000.
KJARNORKUVERIÐ Í CHERNOBYL
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1834 Tvö skip og fjórtán bátar
farast í skyndilegu ofsa-
veðri á Faxaflóa og með
þeim 42 menn.
1944 Forn öskuhaugur kemur í
ljós þegar verið er að grafa
fyrir húsi í Tjarnargötu í
Reykjavík. Jafnvel er talið
að þetta sé öskuhaugur
Ingólfs Arnarsonar.
1983 Flugvél ferst í Hvalfirði með
tvo menn um borð.
1984 Reagan Bandaríkjaforseti
fer í opinbera heimsókn til
Kína.
1990 Davíð Oddsson fær umboð
til stjórnarmyndunar.
1991 Sorpböggunarstöð höfuð-
borgarsvæðisins, Sorpa,
tekin í notkun.
Sprenging í Chernobyl
AFMÆLI
Eggert Haukdal, fyrrverandi
alþingismaður, er 72 ára.
Þóra Friðriks-
dóttir leikari er
72 ára.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi er 59 ára.
Unnur Steinsson verslunar-
kona er 42 ára.
Eva María Jónsdóttir
sjónvarpskona er 34 ára.
Ríkharður Daðason
knattspyrnumaður er 33 ára.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
vegna fráfalls minnar ástkæru dóttur,
Kristínar Þórarinsdóttir
sem lést í Los Angeles 21. febrúar. Vinátta ykkar er ómetanleg.
Fyrir hönd aðstandenda
Gerður Kristdórsdóttir og fjölskylda.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Haraldur Arnór Einarsson
Borgarhrauni 19, Hveragerði,
andaðist að heimili sínu laugardaginn 16. apríl.
Helga Lára Haraldsdóttir
Einar G. Haraldsson Sigríður Gunnarsdóttir
Haraldur A. Haraldsson Steinunn Hrafnsdóttir
og barnabörn
www.hjarta.is • 535 1800
Minningarkort
535 1825 FÆDDUST ÞENNAN DAG
1711 David Hume
heimspekingur.
1889 Ludwig
Wittgenstein
heimspekingur.
1900 Charles Richter jarð-
skjálftafræðingur.
1904 William
„Count“ Basie djass-
tónlistarmaður.
1960 Roger
Taylor, trommari
Duran Duran.
Máttugar konur útskrifast
42 konur útskrifuðust síðasta
sunnudag úr Mætti kvenna sem er
11 vikna rekstrarnám fyrir konur í
atvinnurekstri. Þetta er annar hóp-
urinn sem lýkur þessu rekstrar-
námi frá Viðskiptaháskólanum á
Bifröst en alls hafa rúmlega 100
konur útskrifast úr Mætti kvenna.
Auðbjörg Gunnarsdóttir, verkefn-
isstjóri símenntunar, segir nám-
skeiðið tilkomið vegna mikillar
þarfar á menntun fyrir konur úti á
landi, en algengt sé að konur reki
eða séu í forsvari fyrir þjónustu-
fyrirtæki á landsbyggðinni. Þær
hafi áratuga reynslu af fyrirtækja-
rekstri án þess að hafa undirstöðu-
menntun í rekstri.
Auðbjörg segir að mikill áhugi
sé fyrir því að halda framhalds-
námskeið, Máttur kvenna 2, fyrir
þær konur sem hafa lokið fyrra
námskeiðinu. Fyrst þurfi þó að fá
styrk til starfans en Byggðastofn-
un og iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytið hafa hingað til styrkt námið
sem byggist fyrst og fremst á fjar-
námi og tveimur vinnuhelgum á
Bifröst við upphaf og endi. - sgi
MÁTTUGAR KONUR Útskriftarnemar ásamt A. Agnesi Gunnarsdóttur, verkefnisstjóra sí-
menntunar, Runólfi Ágústssyni, rektor, Herdísi Sæmundardóttur, stjórnarformanni Byggða-
stofnunar og Guðrúnu G. Bergmann.