Fréttablaðið - 26.04.2005, Side 36
24 26. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Guðmundur kemur sáttur
heim í íslenska boltann
Markvörðurinn Guðmundur Hrafnkelsson er á heimleið eftir farsælan atvinnumannaferil á Ítal-
íu og í Þýskalandi. Hann er búinn að gera samning við hið unga og efnilega lið Aftureldingar.
HANDBOLTI Einn leikreyndasti
landsliðsmaður allra tíma í hand-
boltaheiminum, markvörðurinn
Guðmundur Hrafnkelsson, mun
leika með Aftureldingu næsta vet-
ur. Þessi fertugi heiðursmaður er
byrjaður að pakka saman í Þýska-
landi eftir farsælan atvinnu-
mannaferil en hann er ekki á þeim
buxunum að hætta að spila. Guð-
mundur sagði í spjalli við Frétta-
blaðið að hann hlakkaði til nýja
verkefnisins.
Markmannsþjálfari
„Ég mun spila ásamt því sem ég
mun skipta mér eitthvað af mark-
mannsþjálfun hjá félaginu. Maður
býr náttúrulega yfir einhverri
reynslu og nú er bara að miðla
henni til annarra. Það verður
mjög gaman,“ sagði Guðmundur
sem lék yfir 400 landsleiki fyrir
Íslands hönd á sínum tíma en síð-
ustu landsleikina lék hann á
Ólympíuleikunum í Aþenu síðasta
sumar.
„Ég er búinn að vera í sex ár
úti. Ég fór seint af stað og ég kem
sáttur heim enda búinn að vera
ánægjulegur tími,“ sagði Guð-
mundur en hann segist hafa lítið
séð af íslenskum handbolta síð-
ustu ár og gerir sér ekki alveg
grein fyrir því hversu sterk deild-
in sé hér heima í dag.
Guðmundur er að leika með
Kronau-Östringen í suðurdeild
þýsku 2. deildarinnar en félagið
er í harðri baráttu um sæti í úr-
valsdeild að ári. Guðmundur seg-
ist vera sáttur við sína frammi-
stöðu í vetur.
„Sá sem er með mér í markinu
sleit krossbönd í fyrra og kom því
ekki til leiks fyrr en um mitt tíma-
bilið. Ég er því búinn að fá mikinn
spiltíma í vetur og ég er mjög
ánægður með mína frammistöðu í
vetur,“ sagði Guðmundur sem
greinilega er ekki búinn að syngja
sitt síðasta og sjálfur segist hann
eiga nóg inni.
Finnst hann vera ferskur
„Eins og staðan er í dag get ég al-
veg haldið áfram í tvö, þrjú, fjög-
ur, fimm ár en maður veit aldrei
hvað gerist varðandi meiðsli og
annað. Ef ég slepp vel við meiðsli
er aldrei að vita hvað ég held
lengi áfram. Það er gott og nauð-
synlegt líka að breyta um um-
hverfi. Ég er ekki hættur og mér
finnst ég vera ferskur. Mér líður
eins og ég sé að byrja ferilinn,“
sagði Guðmundur og hló dátt.
henry@frettabladid.is
Á LEIÐ HEIM Guðmundur Hrafnkelsson
mun leika með Aftureldingu næsta vetur.
Hann sést hér í einum af sínum síðustu
landsleikjum á Ólympíuleikunum síðasta
sumar. Það er Spánverjinn Iker Romero
sem hér sést reyna að koma knettinum í
markið fram hjá Guðmundi. Fréttablað-
ið/Teitur
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
4 5 6 7 8 9 10
Miðvikudagur
MARS
■ ■ LEIKIR
19.00 KR og ÍBV mætast á KR-velli
í átta liða úrslitum deildabikars karla
í fótbolta.
19.40 ÍBV og Haukar mætast í
Vestmannaeyjum í lokaúrslitum
DHL-deildar kvenna í handbolta.
20.30 Þróttur og Valur mætast í
Egilshöll í átta liða úrslitum
deildabikars karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
07.30 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
08.00 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
08.30 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
16.45 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
18.00 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Fréttaþáttur um
Meistaradeildina í fótbolta.
18.30 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Bein útsending frá leik AC
Milan og PSV Eindhoven í
undanúrslitum Meistaradeildarinnar í
fótbolta.
19.35 DHL-deildin í handbolta á
RÚV. Bein útsending frá leik ÍBV og
Hauka í lokaúrslitum DHL-deildar
kvenna í handbolta.
21.00 Sterkasti maður heims á
Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.15 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Útsending frá leik AC Milan og
PSV Eindhoven í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar í fótbolta..