Fréttablaðið - 26.04.2005, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
ÚTSALA
Á ERLENDUM BÓKUM
Lénsherrarnir nýju
Svona flýgur tíminn. Eitt sinnþrengdi svo illilega að Norð-
mönnum að nokkrir fullsaddir tóku
sig upp af þúfum og stigu ölduna á
lekum flekum með sitt hafurtask í
leit að landsins gæðum þar til þeim
skolaði á land hér á ævintýraeyjunni
norður í hafi. Stóri lottóvinningurinn
var fjöll og dalir og fiskur í sjó. Síð-
an eru liðin á annað þúsund ár og
allir hafa komið sér sæmilega fyrir.
Fjöllin og dalirnir höfnuðu að vísu
fljótlega í eigu fárra höfðingja,
kóngsins og kirkjunnar, en einhvern
veginn tókst hornösum að hokra
með misjöfnum árangri og draga
fram lífið í fjöruborðinu og jafnvel
inni til heiða.
SVO BIRTI TIL og menn áttuðu sig
á því að sjór og land var grundvallar-
réttur mannskepnunnar. Bóndi varð
bústólpi og sæmd var þjóðinni af sín-
um sægörpum – að minnsta kosti um
hríð. En nú er búið að einkavæða sjó-
inn og allt sem í honum er – höfðingj-
ar draga aflann að landi og líftóruna
úr strandbyggðunum svo fátt er eftir
annað en að selja firði og fjallaheiðar
undir stóriðju. Það er gott og blessað
og eyjarskeggjar eru áfram bjartsýn-
astir og glaðastir allra þjóða í víðri
veröld. En nú mega bændur fara að
vara sig.
HINIR NÝJU héraðshöfðingjar
fara ríðandi um sveitir lands og
kaupa upp bújarðir. Það er líka gott
og blessað, enda ánægjulegt að
horfa heim að bæjum þar sem áður
gaf að líta hrörleg hús og hörmulegt
hokur, en nú má berja augum glæst-
ar sumarhallir og frístundabúgarða.
Bændur liggja vel við höggi þar sem
þeir berjast við að halda búum sín-
um gangandi með misjöfnum ár-
angri. Á stöku stað sitja þeir þó
áfram á gömlu búunum sem leigulið-
ar, húsverðir eða umsjónarmenn
nýju lénsherranna.
ÞEGAR MJÓLK er seld á eina
krónu úti í búð klingja litlar bjöllur
siðlegra marka í kollum kaupmanna
og þeir gefa út tilskipunina: aðeins
tveir lítrar á mann. Enginn inn-
kaupakvóti er þó á bújörðum og nýir
héraðshöfðingjar kaupa nú upp heilu
dalina, firðina og eyjaklasana að
gamni sínu. Það virðist enn á ný af
hinu góða að jarðnæði safnist á
fárra hendur og lénsherrarnir hafa
snúið aftur. Skammtur nýju héraðs-
höfðingjanna er takmarkalaus og fer
aðeins eftir því hve mikla lyst þeir
hafa á jarðnæði. Tja, hvað gera
bændur nú?
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf