Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 48
32 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR 10. SÆTI GRINDAVÍK Stofnað: 1935 Íslandsmeistarar: Aldrei Bikarmeistarar: Aldrei Deildabikarmeistarar: 1 sinni Í efstu deild síðan: 1995 Á topp 3 síðasta áratug: 2 sinnum Þjálfari: Milan Stefán Jankovic Fyrirliði: Óli Stefán Flóventsson HEIMALEIKIR SUMARSINS: Sun. 22. maí (14.00) FH Mán. 30. maí (19.15) ÍBV Fim. 16. júní (19.15) KR Sun. 26. júní (19.15) Þróttur Þri. 12. júlí (19.15) Valur Þri. 26. júlí (19.15) ÍA Sun. 14. ágúst (18.00) Fylkir Sun. 28. ágúst (18.00) Fram Lau. 17. september (14.00) Keflavík Leikmenn Grindavíkur MARKIÐ 1. Boban Savic (26 ára) * Nýliði 12. Helgi Már Helgason (22) 7 leikir 13. Hjörtur Pálsson (18) 1 VÖRNIN 3. Ray Anthony Jónss. (26) 80/4 mörk 5. Andri Albertsson (25) * 8 6. Óðinn Árnason (26) 49 7. Óli Stefán Flóventsson (30) 152/26 9. Sinisa Valdimar Kekic (36) 139/38 19. Guðmundur A. Bjarnason (23) 49/4 MIÐJAN 8. Ian Paul McShane (27) 107/12 10. Eysteinn Húni Hauksson (31)134/14 16. Jóhann Aðalgeirsson (25) 22 20. Óskar Hauksson (21) 16/4 22. Eyþór Atli Einarsson (22) 31/1 27. Hafsteinn Rúnarsson (22) * 3 SÓKNIN 18. Sveinn Þór Steingrímsson (20) 6 23. Magnús Þorsteinsson (23) * 56/5 25. Alfreð Jóhannsson (29) 30/5 26. Páll Guðmundsson (19) Nýliði * = Nýr leikmaður hjá liðinu FARNIR: GRÉTAR HJARTASON KR MOMIR MILETA KEFLAVÍK ALBERT SÆVARSSON FÆREYJAR GESTUR GYLFASON KEFLAVÍK ORRI FREYR HJALTALÍN MEIDDUR 9. SÆTI ÍBV Stofnað: 1945 (sem KV) Íslandsmeistarar: 3 sinnum Bikarmeistarar: 4 sinnum Deildabikarmeistarar: 1 sinni Í efstu deild síðan: 1990 Á topp 3 síðasta áratug: 6 sinnum Þjálfari: Guðlaugur Baldursson Fyrirliði: Birkir Kristinsson HEIMALEIKIR SUMARSINS: Sun. 22. maí (14.00) Keflavík Sun. 12. júní (17.00) KR Fim. 23. júní (19.15) Valur Lau. 2. júlí (16.00) Fylkir Sun. 10. júlí (19.15) Fram Sun. 24. júlí (19.15) FH Sun. 7. ágúst (18.00) Grindavík Sun. 21. ágúst (18.00) Þróttur Sun. 11. september (14.00) ÍA Leikmenn ÍBV MARKIÐ 1. Birkir Kristinsson (41 árs) 308 leikir 2. Hrafn Davíðsson (21) Nýliði 25. Guðjón Magnússon (22) Nýliði VÖRNIN 5. Einar Hlöðver Sigurðsson (22) 23 12. Páll Hjarðar (26) 52 14. Bjarni Geir Viðarss. (26) 73/6 mörk 17. Adolf Sigurjónsson (20) Nýliði 20. Bjarni Hólm Aðalsteinss. (21) 21/1 22. Hilmar Björnsson (19) Nýliði MIÐJAN 4. James Robinson (23) Nýliði 6. Andri Ólafsson (20) 39/1 7. Atli Jóhannsson (23) 69/9 8. Ian Jeffs (23) 31/6 15. Matthew Platt (22) Nýliði 16. Bjarni Rúnar Einarsson (23) 21 SÓKNIN 9. Pétur Runólfsson (24) 16 10. Magnús Már Lúðvíksson (24) 17/4 11. Steingrímur Jóhanness. (32) 204/76 13. Sæþór Jóhannesson (22) Nýliði * = Nýr leikmaður hjá liðinu FARNIR: BJARNÓLFUR LÁRUSSON KR MARK SCHULTE BANDARÍKIN TRYGGVI BJARNASON KR MATT GARNER ENGLAND EINAR ÞÓR DANÍELSSON HÆTTUR JÓN SKAFTASON HÆTTUR GUNNAR H. ÞORVALDSSON SVÍÞJÓÐ 8. SÆTI ÞRÓTTUR Stofnað: 1949 Íslandsmeistarar: Aldrei Bikarmeistarar: Aldrei Deildabikarmeistarar: Aldrei Í efstu deild síðan: 2005 Á topp 3 síðasta áratug: Aldrei Þjálfari: Ásgeir Elíasson Fyrirliði: Páll Einarsson HEIMALEIKIR SUMARSINS: Sun. 22. maí (14.00) Fylkir Þri. 31. maí (19.15) Keflavík Fim. 16. júní (19.15) ÍBV Fim. 30. júní (19.15) Valur Þri. 12. júlí (19.15) ÍA Mán. 25. júlí (19.15) Fram Mán. 15. ágúst (19.15) FH Sun. 28. ágúst (19.15) KR Sun. 11. september (14.00) Grindavík Leikmenn firóttar MARKIÐ 1. Fjalar Þorgeirsson (28 ára) 62 leikir 25. Andri Fannar Helgason (21) Nýliði VÖRNIN 2. Hilmar Ingi Rúnarsson (25) 8 4. Ólafur Tryggvason (25) 12 5. Erlingur Guðmundsson (24) 13 6. Eysteinn Lárusson (27) 18 13. Jens Sævarsson (25) 18 18. Ingvi Sveinsson (26) 17 20. Dusan Jaic (26) * Nýliði 27. Edilon Hreinsson (27) * 33 MIÐJAN 3. Hallur Hallsson (25) 14 7. Friðrik Karlsson (26) 75/3 mörk 8. Páll Einarsson (33) 35/4 10. Daníel Hafliðason (25) 7/2 14. Halldór Hilmisson (28) 45/2 15. Kristinn Hafliðason (30)* 132/10 19. Guðfinnur Ómarsson (23) 16 21. Gauti Kristjánsson (20) Nýliði 24. Ari Gíslason (20) Nýliði SÓKNIN 9. Henning Jónasson (22) 2 11. Sævar Eyjólfsson (27) * Nýliði 17. Jozef Maruniak (30) * Nýliði 22. Davíð Logi Gunnarsson (28) Nýliði 23. Haukur Páll Sigurðsson (18) Nýliði * = Nýr leikmaður hjá liðinu FARNIR: SÖREN HERMANSEN DANMÖRK HJÁLMAR ÞÓRARINSSON SKOTLAND 7. SÆTI FRAM Stofnað: 1908 Íslandsmeistarar: 18 sinnum Bikarmeistarar: 7 sinnum Deildabikarmeistarar: Aldrei Í efstu deild síðan: 1997 Á topp 3 síðasta áratug: Aldrei Þjálfari: Ólafur H. Kristjánsson Fyrirliði: Ríkharður Daðason HEIMALEIKIR SUMARSINS: Mán. 16. maí (17.00) ÍBV Fös. 27. maí (20.00) Þróttur Lau. 11. júní (14.00) ÍA Fim. 23. júní (19.15) Grindavík Sun. 26. júní (19.15) Keflavík Mán. 18. júlí (19.15) KR Mán. 8. ágúst (19.15) Valur Mán. 22. ágúst (19.15) Fylkir Lau. 17. september (14.00) FH Leikmenn Fram MARKIÐ 1. Gunnar Sigurðsson (30 ára) 97 leikir VÖRNIN 2. Ross McLynn (25)* Nýliði 5. Eggert Stefánsson (26) 75/1 8. Gunnar Gunnarsson (20) 27 9. Kristófer Sigurgeirsson (33)* 120/16 14. Andrés Jónsson (26) 38/1 23. Þórhallur Dan Jóhanns. (33) 135/9 27. Kristján Hauksson (19) 4 MIÐJAN 3. Ingvar Ólason (33) 102/3 4. Viðar Guðjónsson (25) 66/6 7. Daði Guðmundsson (24) 75/6 15. Hans Mathiesen (23)* Nýliði 16. Heiðar Geir Júlíusson (18) 16/1 17. Víðir Leifsson (22)* 19 18. Ómar Hákonarson (24) 57/3 20. Kim Norholt (32)* Nýliði 22. Ívar Björnsson (20)* Nýliði SÓKNIN 6. Þorbjörn Atli Sveinsson (28) 120/31 10. Andri Steinn Birgisson (22) 15 11. Ríkharður Daðason (33) 150/58 21. Andri Fannar Ottósson (23) 69/13 * = Nýr leikmaður hjá liðinu FARNIR: FRÓÐI BENJAMINSEN FÆREYJAR HANS FRÓÐI HANSEN BREIÐABLIK ÞORVALDUR MAKAN HÆTTUR RAGNAR ÁRNASON STJARNAN BJARNI HÓLM AÐALSTEINSS. ÍBV Fyrirliðar, forráðamenn og þjálfara spáðu fyrir um lokaröðina í deildinni: FH spá› titlinum og ÍBV og Grindavík falla FÓTBOLTI Kynningarfundur Lands- bankadeildar karla fór fram í Smárabíói í vikunni og þar var kynnt hin árlega spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaganna um lokastöðu liðanna. Íslandsmeisturum FH-inga er spáð sigri í Landsbankadeild karla en þeir fengu 21 stigi meira en KR-ingar en þessi tvö lið eru í nokkrum sérflokki á toppnum. Það munaði litlu á liðunum Vals, ÍA og Fylkis, sem voru í þremur næstu sætum, Keflavík og Fram ættu að vera nokkuð örugg um miðja deild en fallbaráttan ætti að vera á milli Þróttar og svo ÍBV og Grindavík sem var spáð falli úr deildinni á haustmánuðum. Í Fréttablaðinu í dag er farið yfir liðin á næstu síðum, þar má finna helstu breytingar auk upplýsinga um heimaleiki og leik- mannahóp. Sætið sem hvert lið er í er lokastaða liðsins í spánni á kynningarfundinum. FÓTBOLTI Það verður sjónarsviptir af Heimi Guðjónssyni þegar hann leggur skóna á hilluna enda hefur hann verið einn litríkasti karakt- erinn í boltanum síðustu árin Heimir hefur gengið í gegnum súrt og sætt á sínum ferli og hann var búinn að bíða lengi eftir því að fá að hampa bikarnum eftirsótta þegar FH varð meistari í fyrra. Heimir og FH mæta til leiks á svolítið öðrum forsendum í ár en áður þar sem þeir þurfa að verja titilinn og það er ætlast til þess að þeir geri það. „Það er nýtt en á móti kemur að 2003 þá var okkur spáð falli en við enduðum í öðru sæti. Við fylgdum því eftir með stæl og sýndum karakterinn sem býr í þessu liði. Ég kvíði því ekkert að mæta til leiks sem ríkjandi meistari og það er bullandi metnaður í hópnum og ég veit að menn ætla að verja þennan titil,“ sagði Heimir en segja má að FH hafi tekið við kyndlinum af KR en nánast hefur verið ætlast til þess að þeir yrðu meistarar síðustu ár. „Það getur verið að svo sé en við erum vissulega með sterkan og breiðan mannskap sem getur gert góða hluti. Við erum samt ekkert einir um það enda hafa mörg lið verið að styrkja sig. KR og Valur hafa styrkt sig mikið og eru líkleg til afreka þannig að það verður ekki auðvelt að verja titil- inn,“ sagðu Heimir sem neitar því ekki að FH sé einnig orðið ansi vel mannað. „Við erum kannski með betri mannskap en í fyrra en að má samt ekki gleyma því að það tekur tíma að slípa liðið saman. Við höfum ekki verið að spila eins vel núna og við gerðum á sama tíma í fyrra.“ Það er mikið talað um að þetta verði tveggja liða mót í sumar og að ekkert lið geti barist um titilinn með FH og KR. Heimir er því ósammála. „Mér finnst alls ekki svona mikill munur á okkur og hinum liðunum. Við höfum til að mynda verið að spila við Val og þeir eru mjög massífir og hafa lagt okkur að velli. Ég hef ekki trú á því að við og KR munum stinga hin liðin af,“ sagði Heimir sem ætlar að leggja skóna á hilluna eftir sumar- ið eins og áður segir. Ólíkt mörg- um öðrum finnst honum tilhugs- unin um að hætta ekki vera erfið. „Það er alveg stórkostleg til- finning að vita að þessu verður öllu lokið í lok sumars,“ sagði Heimir og hló dátt. Hann hefur að- eins í hyggju að yfirgefa íslenska knattspyrnu á einn hátt. „Ég vil enda þetta á góðum nót- um í sumar og það kemst ekkert annað að en að vinna titilinn aftur með FH. Það er engin spurning að ég ætla að kveðja með titli. Annars hefði ég ekki tekið eitt ár í viðbót,“ sagði Heimir en hann lofaði því að honum myndi ekki snúast hugur færi svo að FH næði ekki tak- mörkum sínum í sumar. „Ég get alveg lofað fólki því að ég kem ekki aftur. Eini möguleikinn er að það væri í 3. deildinni með góðum félögum. Þá með liði þar sem það væri ekkert æft, aðeins spilað.“ henry@frettabladid.is ÆTLAR MAÐURINN ALDREI AÐ HÆTTA Þetta gæti Willum Þór Þórsson verið að hugsa þegar hann heilsar Heimi GUðjónssyni eftir úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. FYRIRLIÐARNIR Hér sjást fyrirliðar liðanna tíu í Landsbankadeild karla í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ætla að kveðja með titli Besti leikma›ur Landsbankadeildarinnar í fyrra, Heimir Gu›jónsson, ætlar a› leggja skóna á hilluna eftir tímabili› og er sta›rá›inn í a› kve›ja me› stæl. Landsbankadeildin í knattspyrnu 2005: Fréttabla›i› kynnir li›in til leiks
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.