Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 66
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
- allt á einum stað
Sýnd kl. 4 og 6 m/ísl. tali
Sýnd kl. 10.15 B.I. 14 ára
Sýnd kl. 5.45 og 8 - Síðustu sýningar
Sýnd kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 5, 8 og 11.
Sýnd í lúxus kl. 4, 7 og 10 B.I. 16 ára
TV Kvikmyndir
Orlando Bloom, Liam Neeson og Jeremy
Irons fara á kostum í epískri stórmynd.
Missið ekki af mögnuðustu mynd ársins!
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
B.I. 12 ára
HL MBL
SÍMI 551 9000
Sýnd kl. 6 og 9 B.I. 16 ára
400 kr.
í bíó!*
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.I. 12 ára
O.H.T. Rás 2
Bad Education - Sýnd kl. 6
Hotel Rwanda - Sýnd kl. 5.50 og 8
House of the Flying Daggers
Sýnd kl. 10.15
Downfall
Aðrar myndir í sýningu:
Sýnd kl. 6 og 9
Orlando Bloom,
Liam Neeson og
Jeremy Irons
fara á kostum
í epískri stórmynd.
Missið ekki af þessari
Ridley Scott, leikstjóri Gladiator,
færir okkur eina mögnuðustu
mynd ársins!
HL MBL
HEIMSFRUMSÝND 20. MAÍ
FORSALAN ER HAFIN Á STÆRSTU MYND ÁRSINS
ALLT UM SÝNINGArTÍMANA á bio.is
Fyrir fólk með liðkvilla
vegna slitgigtar eða
yfirálags
Fæst í apótekum
FABÚLA SNÝR AFTUR Söngkonan Fabúla hefur ásamt Helenu Jónsdóttur dansmynda-
höfundi skipulagt tónleika í Borgarleikhúsinu í kvöld, sem verða ekki síður fyrir augað en
eyrað. Með henni á myndinni eru Jökull Jörgensen, Birkir Gíslason og Erik Qvick.
Söngkonan Fabúla snýr aftur með
tónleikum í Borgarleikhúsinu í
kvöld. Hún gaf út tvær plötur fyr-
ir nokkrum árum og var tilnefnd
til Íslensku tónlistarverðlaunanna
fyrir þær báðar. Haustið 1996 kom
fyrri platan út, sem heitir Fabula –
Cut my strings, en lítið hefur borið
á henni frá því að seinni platan,
Kossafar á ilinni, kom út árið 2001.
„Ég eignaðist lítinn strák og tók
mér svolítið hlé í framhaldi af
því,“ segir Margrét Kristín Sigurð-
ardóttir, eins og Fabúla heitir
reyndar dags daglega, „en svo hef
ég aftur verið að semja mikið und-
anfarið. Núna finnst mér vera
kominn tími til að láta eitthvað af
því líta dagsins ljós.“
Ekkert hefur verið til sparað
svo að tónleikarnir í kvöld verði
sem glæsilegastir. Helena Jóns-
dóttir dansmyndahöfundur, sem
unnið hefur til margra verðlauna
fyrir dansmyndir sínar, hefur
myndgert efni sumra laganna og
sýnt verður tónlistarmyndband
eftir hana.
„Við höfum áður unnið saman.
Hún gerði fyrir mig tvö tónlistar-
myndbönd á sínum tíma. Fyrir
þessa tónleika er hún líka með
kyrrmyndir sem fyrst og fremst
eru stemmningsskapandi fyrir lög-
in.“
Tónleikarnir í kvöld eru því
ekki aðeins fyrir eyrað heldur
verða þeir sjónræn upplifun þar
sem áheyrendur eru leiddir inn í
marga ólíka heima með hjálp
myndmiðla, ljósa, sviðsmynda,
búninga og leikmuna.
Fabúla segir lögin sín vera eins
og sjálfstæðar sögur, þar sem hver
saga kallar á sérstaka stemmn-
ingu.
„Textarnir fjalla um lífið og til-
veruna, gleði og sorgir.“
Fabúla hefur fengið til liðs við
sig hljómsveit skipaða Jökli Jörg-
ensen á bassa, Birki Gíslasyni á
gítar, Erik Qvick á trommur og
slagverk, Júlíu Mogensen á selló
og Kjartani Valdimarssyni á harm-
oniku og píanó, en Sarah Fogg og
Ragnar Sólberg Rafnsson radda
með.
Á tónleikunum í kvöld verða
frumflutt ný lög í bland við lög af
fyrri plötunum. Í sumar ætlar
Fabúla síðan í hljóðver til þess að
taka upp eitthvað af nýja efninu. ■
Upprisuhátí› Fabúlu