Fréttablaðið - 12.05.2005, Page 66

Fréttablaðið - 12.05.2005, Page 66
HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 - allt á einum stað Sýnd kl. 4 og 6 m/ísl. tali Sýnd kl. 10.15 B.I. 14 ára Sýnd kl. 5.45 og 8 - Síðustu sýningar Sýnd kl. 8 og 10.30 Sýnd kl. 5, 8 og 11. Sýnd í lúxus kl. 4, 7 og 10 B.I. 16 ára TV Kvikmyndir Orlando Bloom, Liam Neeson og Jeremy Irons fara á kostum í epískri stórmynd. Missið ekki af mögnuðustu mynd ársins! Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ára HL MBL SÍMI 551 9000 Sýnd kl. 6 og 9 B.I. 16 ára 400 kr. í bíó!* 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 8 og 10.15 B.I. 12 ára O.H.T. Rás 2 Bad Education - Sýnd kl. 6 Hotel Rwanda - Sýnd kl. 5.50 og 8 House of the Flying Daggers Sýnd kl. 10.15 Downfall Aðrar myndir í sýningu: Sýnd kl. 6 og 9 Orlando Bloom, Liam Neeson og Jeremy Irons fara á kostum í epískri stórmynd. Missið ekki af þessari Ridley Scott, leikstjóri Gladiator, færir okkur eina mögnuðustu mynd ársins! HL MBL HEIMSFRUMSÝND 20. MAÍ FORSALAN ER HAFIN Á STÆRSTU MYND ÁRSINS ALLT UM SÝNINGArTÍMANA á bio.is Fyrir fólk með liðkvilla vegna slitgigtar eða yfirálags Fæst í apótekum FABÚLA SNÝR AFTUR Söngkonan Fabúla hefur ásamt Helenu Jónsdóttur dansmynda- höfundi skipulagt tónleika í Borgarleikhúsinu í kvöld, sem verða ekki síður fyrir augað en eyrað. Með henni á myndinni eru Jökull Jörgensen, Birkir Gíslason og Erik Qvick. Söngkonan Fabúla snýr aftur með tónleikum í Borgarleikhúsinu í kvöld. Hún gaf út tvær plötur fyr- ir nokkrum árum og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir þær báðar. Haustið 1996 kom fyrri platan út, sem heitir Fabula – Cut my strings, en lítið hefur borið á henni frá því að seinni platan, Kossafar á ilinni, kom út árið 2001. „Ég eignaðist lítinn strák og tók mér svolítið hlé í framhaldi af því,“ segir Margrét Kristín Sigurð- ardóttir, eins og Fabúla heitir reyndar dags daglega, „en svo hef ég aftur verið að semja mikið und- anfarið. Núna finnst mér vera kominn tími til að láta eitthvað af því líta dagsins ljós.“ Ekkert hefur verið til sparað svo að tónleikarnir í kvöld verði sem glæsilegastir. Helena Jóns- dóttir dansmyndahöfundur, sem unnið hefur til margra verðlauna fyrir dansmyndir sínar, hefur myndgert efni sumra laganna og sýnt verður tónlistarmyndband eftir hana. „Við höfum áður unnið saman. Hún gerði fyrir mig tvö tónlistar- myndbönd á sínum tíma. Fyrir þessa tónleika er hún líka með kyrrmyndir sem fyrst og fremst eru stemmningsskapandi fyrir lög- in.“ Tónleikarnir í kvöld eru því ekki aðeins fyrir eyrað heldur verða þeir sjónræn upplifun þar sem áheyrendur eru leiddir inn í marga ólíka heima með hjálp myndmiðla, ljósa, sviðsmynda, búninga og leikmuna. Fabúla segir lögin sín vera eins og sjálfstæðar sögur, þar sem hver saga kallar á sérstaka stemmn- ingu. „Textarnir fjalla um lífið og til- veruna, gleði og sorgir.“ Fabúla hefur fengið til liðs við sig hljómsveit skipaða Jökli Jörg- ensen á bassa, Birki Gíslasyni á gítar, Erik Qvick á trommur og slagverk, Júlíu Mogensen á selló og Kjartani Valdimarssyni á harm- oniku og píanó, en Sarah Fogg og Ragnar Sólberg Rafnsson radda með. Á tónleikunum í kvöld verða frumflutt ný lög í bland við lög af fyrri plötunum. Í sumar ætlar Fabúla síðan í hljóðver til þess að taka upp eitthvað af nýja efninu. ■ Upprisuhátí› Fabúlu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.