Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 2
2 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
Almenningur ehf. stefnir ótrauður á tilboð:
Ekki búi› a› velja samstarfsa›ila
VIÐSKIPTI Almenningur ehf., félagið
sem Agnes Bragadóttir fer í forystu
fyrir og ætlar að taka þátt í tilboði
um kaup á Símanum, hefur ekki
komist að niðurstöðu um það með
hvaða hópi fjárfesta verði unnið.
„Við erum í viðræðum við ýmsa
fagfjárfesta og við erum ekki
komin að niðurstöðu um með hverj-
um við ætlum að vinna. Við munum
ráða okkar ráðum um helgina,“
segir hún.
Aðspurð um hvort öruggt sé að
hópurinn muni gera tilboð segir hún
það vera „algjörlega kristaltært“.
Á þriðjudaginn rennur út frestur
sem tilboðsgjafar hafa til að gera
óbindandi tilboð í Símann. Þá þarf
þó ekki að vera komið á endanlegt
samstarf milli hópa um kaup.
Agnes gerir ráð fyrir að allar
upplýsingar til þeirra sem áhuga
hafi á því að taka þátt í tilboðinu
muni liggja fyrir eftir helgina og í
kjölfarið mun koma í ljós hversu
stóran hlut Almenningur ehf. mun
geta keypt í Símanum.
Að sögn Agnesar er ekki höfuð-
atriði í hennar huga að Almenning-
ur ehf. verði þátttakandi í kaupun-
um heldur að almenningur fái færi
á að kaupa hlutabréf í Símanum.
„Það skiptir mig nákvæmlega engu
máli hver eða hverjir fái að kaupa
Símann heldur að almenningur fái
aðgang að kjötkötlunum á sama
tíma og stóru hákarlarnir,“ segir
hún. - þk
Verjandi Lettanna hjá GT verktökum:
Áfellisdómur fyrir
ákæruvaldi› á Selfossi
EGILSSTAÐIR Sveinn Andri Sveins-
son, verjandi Lettanna sem voru
sýknaðir í Héraðsdómi
Austurlands í gær, segir
að með þessum dómi sé í
fyrsta sinn tekið al-
mennilega á álitaefnum
varðandi útlendinga frá
Eystrasaltsríkjunum.
Ekki sé hægt að áfrýja
dómnum til sakfellingar.
Málflutningurinn verði
að byggja á því að laga-
túlkun héraðsdóms sé
röng eða vísa dómnum
aftur heim í hérað.
Hann segir það með
ólíkindum hvernig málið
með öðrum erlendum
starfsmönnum hafi
verið afgreitt á Selfossi í vetur.
„Þessi dómur fyrir austan er
áfellisdómur fyrir ákæruvaldið á
Selfossi. Ákæruvaldinu
ber skylda til að halda
til haga öllum sjónar-
miðum, hvort sem þau
eru til þess fallin að
valda sýknu eða sakfell-
ingu,“ segir hann.
„Í stað þess var mál-
ið keyrt áfram, ákært og
kveðinn upp dómur. Á
Austurlandi var málið
rannsakað til hlítar. Á
Suðurlandi var játning
fengin frá mönnunum
sem vissu ekkert hvað
þeir voru að játa. Þar
var ekki tekin skýrsla af
öllum aðilum málsins,“
segir Sveinn Andri. - ghs
Lettarnir s‡kna›ir
Lettarnir tveir sem komu hinga› á vegum lettnesku starfsmannaleigunnar Vis-
lande til a› aka rútu fyrir GT verktaka á Kárahnjúkum voru s‡kna›ir í Héra›s-
dómi Austurlands. fieir voru ákær›ir fyrir a› starfa hér án atvinnuleyfa.
EGILSSTAÐIR Lettarnir tveir sem
komu hingað til lands á vegum lett-
nesku starfsmannaleigunnar Vis-
lande til að aka rútu fyrir GT verk-
taka á Kárahnjúkum voru sýknaðir
í Héraðsdómi Austurlands í gær en
þeir voru ákærðir fyrir að starfa
hér á landi án atvinnuleyfis.
Í dómnum kemur fram að
útlendingarnir hafi fyrst talið sig
vera einhvers konar verktaka hjá
Vislande en síðan hafi beint ráðn-
ingarsamband komist á.
Dómarinn telur málið falla undir
reglur EES-samningsins eða stofn-
samnings EFTA. Lettarnir megi því
koma til landsins án sérstaks leyfis
og dveljast eða starfa hér í allt að
þrjá mánuði frá komu eða allt að
sex mánuðum ef þeir eru í atvinnu-
leit.
Lögin um þjónustuviðskipti eigi
við um Lettana þar sem ekki hafi
verið leitt annað í ljós en að um
ráðningarsamband þeirra við Vis-
lande hafi verið að ræða. Þar með
hafi Lettarnir ekki þurft atvinnu-
leyfi.
Samkvæmt þessum dómi geta
því ríkisborgarar nýrra ríkja ESB
komið hingað til lands í allt að 90
daga til að veita hér þjónustu og
þurfa ekki sérstök leyfi til þess.
„Þetta er eins og við höfum alltaf
haldið fram. Við bíðum bara eftir
því að hinn dómurinn verði kveðinn
upp í okkar máli. Að öðru leyti verð-
urðu bara að tala við Ilonu Wilke í
Lettlandi. Það er hún sem er að
vinna þennan sigur, ekki við,“ segir
Trausti Finnbogason, annar eigenda
GT verktaka.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að það
sé ágætt að hafa fengið dómsniður-
stöðu og framkvæmdin þurfi að
taka mið af því. Meira geti hann
ekki sagt því að hann verði að skoða
málið betur eftir helgina.
Helgi Jensson, fulltrúi Sýslu-
mannsins á Seyðisfirði, segir að
starfsmenn embættis ríkissaksókn-
ara hafi fengið dóminn og taki
ákvörðun fljótlega um það hvort
málinu verði vísað til Hæstaréttar
eða ekki.
ghs@frettabladid.is
DÝRLINGUR FLJÓTT Landar Jóhannesar
Páls páfa krefjast þess að hann verði tek-
inn í dýrlingatölu fljótt. Myndin er tekin við
útför páfa 8. apríl.
Jóhannes Páll II í dýrlingatölu:
Fær fl‡ti-
me›fer›
PÓLLAND, AP Benedikt XVI páfi
hefur tilkynnt að forveri hans, Jó-
hannes Páll II, fái sérstaka flýti-
meðferð á því að vera tekinn í
dýrlingatölu. Vanalegt er að bíða í
að minnsta kosti fimm ár eftir
dauða hugsanlegs dýrlings áður
en ferlið hefst.
Þessari ákvörðun Benedikts
XVI hefur víðast hvar verið tekið
vel; bæði klerkaráðið í Róm og
íbúar í Wadowice, heimabæ
Jóhannesar Páls í S-Póllandi, hafa
lýst yfir sérstakri ánægju með
þessa málsmeðferð.
Margir Pólverjar eru nú þegar
farnir að líta á Jóhannes Pál II
sem dýrling. ■
Fjöldamorðingi í Lettlandi:
Lífstí› fyrir
flrettán mor›
LETTLAND Dómstóll í Ríga, höfuð-
borg Lettlands, dæmdi í vikunni
mann í lífstíðarfangelsi fyrir
morð á 13 manns.
Maðurinn var ákærður fyrir
að hafa myrt alls 38 manns en
var dæmdur fyrir 13 morð og
fjölmargar morðtilraunir.
Aukinheldur var hann dæmd-
ur fyrir mörg rán en flest morð-
in framdi hann þegar hann
reyndi að ræna fórnarlömbin.
Þau voru aðallega eldri konur og
kyrkti hann þær yfirleitt.
Þetta eru verstu fjöldamorð
einstaklings í sögu Lettlands. ■
Holtasmára 1 • 201 Kópavogi • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.kuoni.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
114.990 kr.
Hua Hin
2 vikur í júlí
Verð á mann í tvíb. með sköttum
129.995 kr.
5 stjörnu lúxus
2 vikur í ágúst
Verð á mann í tvíb. með sköttum
118.900 kr.
Pattaya
2 vikur í júní
Verð á mann í tvíb. með sköttum
133.700 kr.
Bali 2 vikur í júlí
Verð á mann í tvíb. með sköttum
Fjölmargir
möguleikar
í sumar og
haust
Mannlífið í
Taílandi og á Bal
i
á ómótstæðilegu
verði
Ævintýraleg sumarsól
í Austurlöndum
draCretsaM
udnuM
!aninusívá
aðref
Nánari upplýsingar
um verðdæmin
er að finna á
heimsíðunni
www.kuoni.is
Verðdæmi
SPURNING DAGSINS
Sveinn Andri, var Lettunum
ekki létt?
„Jú, þeim var orðið illt í eistunum.“
Sveinn Andri Sveinsson er lögmaður lettneskra
verkamanna sem voru ákærðir fyrir að starfa hér
á landi án atvinnuleyfis. Þeir voru sýknaðir í hér-
aðsdómi.
Umferðareftirlit:
Ofsaakstur í
Ártúnsbrekku
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
stöðvaði átján ára ökumann á 173
kílómetra hraða í Ártúnsbrekku
klukkan að ganga tólf á fimmtu-
dagskvöldið. Í brekkunni er
hámarkshraði 80 kílómetrar á
klukkustund.
Að sögn varðstjóra eru menn
gjarnan sviptir ökuleyfi á staðn-
um við mjög gróf umferðarbrot
og taldi hann ekki ólíklegt að svo
hefði verið í þessu tilviki, enda
ungi maðurinn yfir tvöföldum há-
markshraða. Aðfaranótt föstu-
dags var að öðru leyti róleg í
Reykjavík að sögn lögreglu og
lítið að gerast fram eftir föstudegi
þótt hann bæri upp á þrettánda
dag mánaðarins. - óká
Lettarnir sem óku hópferðabílum fyrir GT verktaka á Kárahnjúkum voru sýknaðir í Héraðsdómi Austurlands í gær, en málið gegn þeim
átti rætur að rekja til ábendingar frá Vinnumálastofnun. Stofnunin taldi þá starfa ólöglega hér á landi þar sem þeir hefðu ekki atvinnu-
leyfi. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, sagði ágætt að hafa fengið dómsniðurstöðu. Framkvæmdin þyrfti að taka mið af því.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
AGNES BRAGADÓTTIR Segir upplýsingar
um Almenning ehf. verða gefnar út eftir
helgina.
Aftur í Héraðsdómi:
Fjárdráttarmál
skólastjóra
DÓMSTÓLAR Munnlegur málflutn-
ingur í máli Lögreglustjórans í
Reykjavík á hendur Jóni Árna
Rúnarssyni, fyrrum skólastjóra
Rafiðnaðarskólans, fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Hæstiréttur ómerkti í byrjun
maí fyrri dóm héraðsdóms þar
sem Jón Árni var fundinn sekur
um skjalafals og fjársvik. Hæsti-
réttur tók ekki afstöðu til sektar
Jóns Árna, sem sakaður er um að
hafa á árunum 1994 til 2001 dreg-
ið sér um 28 milljónir króna í
starfi sínu sem skólastjóri Raf-
iðnaðar- og Viðskipta- og tölvu-
skólans. -óká
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
SVEINN ANDRI
SVEINSSON „Þessi
dómur fyrir austan er
áfellisdómur fyrir
ákæruvaldið á Sel-
fossi,“ segir Sveinn
Andri Sveinsson, verj-
andi Lettanna hjá GT
verktökum.
Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ:
Fyrirtækinu
ver›i refsa›
VINNUMARKAÐUR Dómstjórinn á
Austurlandi tekur hvorki á því
hvort lög um atvinnuréttindi út-
lendinga né lög um útlendinga
hafi verið brotin, aðeins því
hvort Lettarnir hafi haft rétt til
að vinna hér á landi eða ekki. Því
eru Lettarnir sýknaðir. Þetta er
mat Halldórs Grönvold, aðstoðar-
framkvæmdastjóra Alþýðusam-
bandsins.
„Þessi niðurstaða er umdeilan-
leg og við höfum alla fyrirvara á
henni. Í okkar huga er um mála-
myndagerning að ræða. Lettarnir
eru ekki stóra málið. Þeir eru
fórnarlömb. Það er fyrirtækið
sem okkur finnst að eigi að refsa,“
segir hann. -ghs
ATVINNULÍF
BIRGIR TEKUR VIÐ Birgir Jónsson
hefur verið ráðinn nýr fram-
kvæmdastjóri Iceland Express.
Birgir er 31 árs gamall rekstrar-
hagfræðingur og hefur gegnt
stöðu sölu- og markaðsstjóra fyr-
irtækisins.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÓK Á LÖGREGLUBÍL Ölvaður öku-
maður ók á lögreglubíl á Akra-
nesi í fyrr-
inótt. Lög-
reglan leit-
aði manns-
ins og þegar
hann varð
lögreglubíls-
ins var gaf hann í og keyrði á lög-
reglubílinn með þeim afleiðing-
um að hann endaði úti í skurði.
Einn lögreglumaður slasaðist lít-
illega við áreksturinn.