Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 8
1Úr hvaða skipi er skrúfan sem Land-helgisgæslan náði upp í fyrradag? 2Hverju mótmæla stuðningsmennManchester United þessa dagana? 3Hvaða lag söng Selma á blaðamanna-fundi í Kænugarði? SVÖRIN ERU Á BLS. 50 VEISTU SVARIÐ? 8 14. maí 2005 LAUGARDAGUR Fjallgöngumenn fari að öllu með gát og fylgist með verðurhorfum um hvítasunnuhelgina: Snjófló›ahætta í Öræfajökli HVÍTASUNNUFERÐIR Merki eru þess að snjóflóð hafi fallið á Virkisjök- ulsleið uppi á Öræfajökli í vik- unni, að sögn Einars Sigurðssonar fjallaleiðsögumanns, en hann hef- ur farið 190 ferðir upp á Hvanna- dalshnúk. Á annað hundrað manns hyggj- ast ganga á Hvannadalshnúk nú um hvítasunnuhelgina, þar af um eitt hundrað manns á vegum Ferðafélags Íslands. Einar segir að mjög hafi rignt síðastliðinn sunnudag en þá snjó- ar og skefur uppi á jöklinum. „Þarna var um 50 sentímetra ný- fallinn snjór ofan á harðri fönn um síðustu helgi,“ segir Einar og bendir á að mesta hættan á snjó- flóðum sé þegar hitnar vel eða í miklum rigningum. „Full ástæða er til þess að fara að öllu með gát þegar lagt er á tindinn. Ef veður og skilyrði verða heppileg ætla ég með hóp upp Sandfellsleið, en varla er hægt að mæla með því að tugir manna fari upp Virkisjök- ulsleið um hvítasunnuna,“ segir Einar. Myndin sýnir snjóflóð sem féllu í sjálfum Hvannadalshnúk um hvítasunnuna fyrir ári ör- skammt frá uppgöngunni. Þótt flóðið virðist ekki stórt er brún þess um tveggja metra há. - jh Héraðsdómur Reykjavíkur: Skarst frá nefi ni›ur í munn DÓMSMÁL 22 ára gamall maður var á fimmtudag dæmdur í hálfsárs fangelsi fyrir að slá annan mann, 25 ára að aldri, með glerflösku í andlitið þannig að hún brotnaði og sá hlaut djúpan 5 sentimetra lang- an skurð frá nefi og niður að vör. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða hinum 200 þúsund krón- ur í bætur, en krafist hafði verið 1,2 milljóna. Refsingin var skil- orðsbundin í þrjú ár. Árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn Glaumbar í Reykjavík 19. desember árið 2003, en árásarmaðurinn bar við nauðvörn og sagði hinn hafa kall- að sig „helvítis útlending“. Hann sagði kærustu sína og vinkonu hennar hafa „lent í veseni“ þar innandyra. - óká edda.is „Blóðug, fyndin og töff“ „Bók í anda Tarantinos, hæfilega blóðug og hæfilega fyndin. En umfram allt töff.“ Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntir.is „Það er kraftur í bókinni.“ Björn Þór Vilhjálmsson, Mbl. „Skyldulesning ... Fantavel skrifuð.“ Páll Baldvin Baldvinsson, Ísland í dag. „Mjög vel skrifuð bók.“ Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljós 3. sæti Skáldverk - kiljur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 4. – 10. maí Nú í kilju DANMÖRK HVANNADALSHNÚKUR Einar Sigurðsson fjallaleiðsögumaður var með í för þegar snjóflóð féllu skammt frá uppgöngunni á hvítasunnu fyrir ári. Hann segir merki þess að mikið snjóflóð hafi fallið á Virkisjökulsleið í gær eða fyrradag. Sú leið er falleg og brött og vinsæl til uppgöngu. Myndina tók Vilhjálmur Ari Arason. STRANDAÐI Í FASTASVEFNI Flutn- ingaskipið Munsu strandaði í gær við eyna Piparhólma í Kattegat en þessi eyja er uppfylling gerð af mannahöndum. Í ljós kom að skipstjórinn var einn í brúnni steinsofandi en syfjuna mátti rekja til þess að hann hafði verið að drekka áfengi. Skipið sem er skráð í Beliz var á leið frá Lett- landi til Noregs. GRUNSAMLEGT DUFT Í BRÉFI Dönsku ræðismannsskrifstofunni í New York barst í vikunni bréf sem innihélt grunsamlegt duft. Starfsmenn óttuðust að duftið væri eitrað en efnagreining leiddi í ljós að svo var ekki. Ný- lega bárust svipuð bréf, með dönsku frímerki, til sendiráðanna í Vín og Stokkhólmi. Eftir að miltisbrandi var dreift með pósti eftir árásirnar 11. september 2001 óttast menn óþekktar sendingar. SEYÐISFJÖRÐUR Olíudreifing er með olíuafgreiðslu í einu elsta bryggju- húsi Íslendinga á minjasvæði Tækniminjasafns Austurlands á Seyðisfirði. Um er að ræða stórt og mikið bryggjuhús, Þórshamarshús- ið sem er eitt af síðustu bryggjuhús- unum á Íslandi. Það er töluvert illa á sig komið en talið vel viðgerðar- hæft. Húsið er í eigu Hettu, dóttur- félags Kers. Þórshamarshúsið stendur á stólpum úti í sjó og er með áfasta bryggju sem er við það að falla í sjó- inn. Bryggjan er vel viðgerðarhæf með nýju dekki. Inni í húsinu er ol- íudæla og utan á húsinu hangir slangan. Olíu er dælt á olíubíl með tengivagni að meðaltali einu sinni á dag. „Þetta er með ólíkindum. Það hangir slanga í fjöruborðinu utan á húsinu. Ef eitthvað gerist þá rennur olían beint í sjóinn,“ segir Pétur Kristjánsson, forstöðumaður Tækniminjasafns Austurlands. Pétur kveðst hafa reynt að fá Ker til samstarfs en það hafi gengið erfiðlega. „Þetta er ekki einhver kofi held- ur menningarverðmæti. Stórfyrir- tæki hefur hagnast á starfseminni á þessu svæði og það er skylda þess að sinna þessum menningarverð- mætum og varðveita bæði sína eig- in sögu og sögu þjóðarinnar. Þetta er eitt af fáum bryggjuhúsum sem eftir eru á Íslandi,“ segir hann. Hörður Gunnarsson, forstjóri Olíudreifingar, segir að samkvæmt lögum hafi félagið svigrúm út þetta ár til að færa olíudæluna og efla mengunarvarnir. Stefnt sé að því að hætta starfsemi í húsinu og byggja nýjan olíugeim nær loðnubræðsl- unni í september. „Við verðum réttu megin áramóta með þessar úrbætur á staðnum,“ segir hann. Á Seyðisfirði er flotgirðing til að bregðast við mengun í sjó og í bílun- um sjálfum eru áfyllivarnir. „Við erum með efni til að bregð- ast við ef eitthvað stórkostlegt ger- ist,“ segir Hörður. „Það eru eins miklar varnir og hægt er miðað við að það er ekki búið að uppfæra stöð- ina.“ ghs@frettabladid.is SEYÐISFJÖRÐUR Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers, segir að áætlanir geri ráð fyrir að það kosti 60-70 milljónir króna að gera við Þórshamarshúsið á Seyðisfirði. Ekki hafi tekist að finna því hlutverk og því hafi ekki verið tekin ákvörðun um viðgerð- ir eða framtíð hússins. „Við erum tilbúin til að gefa húsið þeim sem vilja taka það til varðveislu en kostnaðurinn við að gera við það er bara mjög hár. Það hefur verið erf- iðleikum bundið að finna því hlutverk og engin heildarlausn fundist. Það er vandamálið,“ segir hann. -ghs Vandamál a› finna húsinu hlutverk MENGUNARVARNIR ERU LITLAR Olíuafgreiðsla er á vegum Olíudreifingar í einu elsta bryggjuhúsi Íslendinga sem sjá má á þessari mynd. Það er inni á minjasvæði Tækniminja- safns Austurlands á Seyðisfirði. Ef slys verður þá rennur olían beint í sjóinn því að slangan hangir utan á húsinu og varnir eru litlar. Olíuafgrei›sla í ver›- mætu bryggjuhúsi Olíudreifing er me› olíuafgrei›slu í einu elsta bryggjuhúsi Íslendinga. Olíu er dælt úr slöngu sem liggur utan á húsinu, tíu metra frá fjörubor›inu, og eru varnir litlar. Olían rennur beint út í sjó ef slys ver›ur. VARNARMÁL Bandaríkjamenn hafa ákveðið að flytja 13 þúsund her- menn frá Þýskalandi og Suður- Kóreu. Þetta er liður í allsherjar- niðurskurði þar sem til stendur að loka um 150 herstöðvum. Um þetta var tilkynnt í bandaríska varnarmálaráðuneytinu í gær. Þegar tilkynnt var um fyrirhugað- ar breytingar í fyrra sagði George W. Bush forseti að til stæði að flytja 70 þúsund hermenn heim á næsta áratugnum. Meira en 200 þúsund bandarískir hermenn eru nú í herstöðvum víða um heim, flestir í Evrópu. Tilgangurinn með þessum aðgerðum er að gera herinn sveigjanlegri og stytta við- bragðstíma hans ásamt því sem kostnaður lækkar. Illugi Gunnarsson, aðstoðar- maður utanríkisráðherra, segir að varnarmál Íslands séu í ákveðn- um farvegi eftir fundi Davíðs Oddssonar með George Bush og Colin Powell fyrrverandi utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna. Ekki sé búist við því að Banda- ríkjamenn dragi herlið sitt héðan án þess að hafa um það samráð við hérlend stjórnvöld. - oá Bandaríkjamenn flytja hermenn heim: Engin fækkun á Íslandi BUSH BANDARÍKJAFORSETI Bandaríkin ætla að fækka hermönnum erlendis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.