Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 14. maí 2005 27
Landbúna›arháskóli Íslands starfar á svi›i hagn‡trar náttúrufræ›i.
Megin vi›fangsefni hans er n‡ting og verndun náttúruau›linda á landi.
Umsóknarfrestur um nám vi› LBHÍ er til 10. júní
firjár námsbrautir til BS prófs
Búvísindi
Áhersla á undirstö›ugreinar í efnafræ›i, jar›vegsfræ›i og líffræ›i og sérhæf›ar greinar
nytjajurta- og búfjárgreina auk rekstrar- og tæknigreina. Námi› gefur gó›an grundvöll fyrir rá›gjafastörf,
kennslu og rannsóknir auk búrekstrar.
Náttúru- og umhverfisfræ›i
Vi›fangsefni› er náttúra Íslands, áhrif mannsins á hana og náttúruvernd.
Námi› felur í sér mikinn sveigjanleika í vali, en hefur fló sameiginlegan grunn.
fia› n‡tist vel fyrir margvísleg störf a› umhverfismálum, landn‡tingu, landgræ›slu og skógrækt.
Umhverfisskipulag
Námsgreinum á svi›um náttúruvísinda, skipulags, tækni og hönnunar er hér flétta› saman og
megináhersla er lög› á samspil náttúru, manns og forma. Námi› gefur gó›a undirstö›u til fekara
náms í landslagsarkitektúr, skipulagsfræ›i, umhverfisfræ›i og tengdum greinum.
Almenn inntökuskilyr›i - fia› sama gildir um allar námsbrautirnar a› umsækjandi flarf a› hafa loki› stúdentsprófi
e›a ö›ru jafngildu framhaldsskólaprófi. Námi› tekur a› lágmarki flrjú ár til BS prófs (90 einingar).
A›sta›a til náms
A›setur háskólanáms LBHÍ er á Hvanneyri í Borgarfir›i. fiar hefur á undanförnum árum risi› myndarlegt
háskólaflorp, me› nemendagör›um flar sem í eru bæ›i einstaklingsherbergi og fjölskylduíbú›ir.
Leikskóli, grunnskóli og verslun eru á sta›num.
Landbúna›arháskóli
Íslands
A›alstö›var:
Hvanneyri • IS 311 Borgarnes • Ísland
Sími: 433 5000 • Fax: 433 5001 • Netfang: lbhi@lbhi.is • www.lbhi.is
Háskóli
lífs og lands Ljósmynd
:
A
u›
ur
S
ve
in
sd
ó
tt
ir
–
H
ö
nn
un
: N
æ
st
SPURNING: ER ANDEFNIÐ Í
ENGLUM OG DJÖFLUM EFTIR
DAN BROWN TIL Í ALVÖR-
UNNI?
Svar: Í spennusögunni Englar og
djöflar segir frá dularfullu leyni-
félagi sem felur tæpt gramm af
andefni í Vatíkaninu og hótar að
sprengja Páfagarð í loft upp. Þeg-
ar líða tekur á söguna kemur í ljós
að nánasti aðstoðarmaður páfa og
uppeldissonur er höfuðpaurinn í
leynifélaginu og ætlun hans er í
raun að bjarga Vatíkaninu á síð-
ustu stundu, fljúga á brott í þyrlu
með andefnið og snúa síðan aftur
líkt og fyrir kraftaverk.
Trú og vísindi
Í sögunni takast á einfaldar and-
stæður trúar og hátæknivísinda.
Eitt markmið leynifélagsins er að
sýna fram á yfirburði trúarinnar
og efla hlut hennar í flóknum nú-
tímaheimi. Vísindunum í bókinni
er bæði teflt fram sem andstæð-
ingi trúarinnar og sem banda-
manni hennar. Andefnisrannsókn-
irnar eru til að mynda stundaðar
með mikilli leynd af kaþólskum
vísindamanni sem hefur í hyggju
að komast til botns í því hvernig
Guð skapaði heiminn. Yfirmaður
rannsóknastöðvarinnar er hins
vegar „hreinræktaður“ vísinda-
maður, andsnúinn öllu trúarlegu
og minnir eflaust suma eilítið á
breska vísindamanninn Stephen
Hawking, því hann er lamaður og
ekur um í hjólastól.
Hvað er andefni?
Í sögunni er andefninu stolið frá
Evrópsku rannsóknastöðinni í ör-
eindafræði, CERN, en hún er
skammt frá borginni Genf í Sviss.
Margir vita að Veraldarvefurinn á
rætur að rekja þangað en þar var
fyrsta vefsíðan birt í ágúst 1991.
Við höfum fjallað nokkuð um
andefni á Vísindavefnum, meðal
annars í svörum við spurningun-
um Hvað er andefni? og Hvað
felst mikil orka í andefni? Þar
kemur fram að andefni er eins
konar spegilmynd venjulegs efn-
is. Þegar öreind og samsvarandi
andeind koma saman eyða þær
hvor annarri og orkan sem fólgin
var í massa þeirra losnar úr læð-
ingi.
Hálft gramm = kjarnorkusprengja
Ef hálft gramm af andefni
kæmist í snertingu við hálft
gramm af venjulegu efni mundi
orkan sem losnar samsvara
orkunni í kjarnorkusprengjunni
sem lagði Hiroshima í rúst í lok
seinni heimsstyrjaldar.
Andefni í óvinahöndum hljóm-
ar því ekkert sérstaklega gæfu-
lega og það er skiljanlegt að það
fari hrollur um menn þegar þeir
frétta af andefnisverksmiðjunni í
CERN sem framleiðir andefni á
hverjum degi. En það er samt
engin ástæða fyrir almenning að
örvænta því þótt vísindamenn séu
orðnir nokkuð góðir í að framleiða
andefni er afar erfitt að geyma
það nema í örstutta stund.
Öreindahraðlar
Andefnið sem um ræðir í Englum
og djöflum er nákvæmlega eins og
andefnið sem framleitt er í ör-
eindahröðlum í CERN, en þeir eru
geysistórir og notaðir til að
skyggnast inn í smæstu eindir
efnisins. Það sem er óvenjulegt í
bókinni er hvernig andefnið er
geymt og hvað það er í miklu
magni.
Geymsla á andefni
Skipta má geymslu á andefni í tvö
tilvik. Ef andefnið er óhlaðið eru
engar aðferðir þekktar til að
halda því frá venjulegu efni og
því eyðist það samstundis.
Ef andefnið er rafhlaðið eins og
til dæmis jákvætt hlaðin and-
rafeind (líka kölluð jáeind) eða
neikvætt hlaðin andróteind, er
hægt að geyma það í svokölluðum
„rafsegulflöskum“ svipuðum
þeim sem lýst er í bókinni. Gald-
urinn er sá að rafhlaðnar agnir
komast ekki beint áfram í segul-
sviði heldur fara þær í hringi. Með
því að stilla rafsegulsviðið rétt má
neyða agnirnar til þess að
hreyfast í spíral fram og til baka
án þess að snerta veggi ílátsins og
eyðast.
Vandamál við geymslu á and-
rafeindum
Gallinn við þessa aðferð er hins
vegar sá að á milli hleðslna með
sama formerki verkar fráhrindi-
kraftur og því er ekki hægt að
geyma mikið magn af andrafeind-
um í sama íláti. Rafkrafturinn á
milli þeirra verður of sterkur til
að segulsviðið geti haldið þeim frá
veggjum ílátsins. Það er ekki hægt
að leysa vandann með því að
blanda saman andrafeindum og
andróteindum því þær myndu
bindast saman í andvetni sem er
óhlaðið.
Fjöldaframleiðsla á andróteindum
Í andefnisverksmiðjunni í CERN
eru framleiddar um það bil tíu
milljónir andróteinda á hverri sek-
úndu. Þetta gæti hljómað eins og há
tala en hafa verður í huga að í einu
grammi af andvetni eru 6 .1023
andróteindir svo það myndi taka
milljarð ára að framleiða
andróteindir í hálft gramm og þar
að auki yrði ómögulegt að halda
slíku magni af neikvætt hlöðnu
andefni í skefjum.
Þótt bókin Englar og djöflar
byggi að hluta til á staðreyndum
um andefni verður hún samt að
flokkast sem vísindaskáldsaga þar
sem höfundurinn fer frjálslega
með þekkingu vísindanna þegar
honum býður svo við að horfa
vegna bókmenntalegra sjónarmiða.
Kristján Rúnar Kristjánsson,
doktorsnemi í eðlisfræði,
og Jón Gunnar Þorsteinsson
bókmenntafræðingur.
Andefni me›al engla og djöfla
Í ár fékk Vísindavefurinn styrk frá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur til að vinna samstarfs-
verkefni með grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu. Starfsmenn vefjarins svöruðu ný-
lega, því sem næst jafnóðum, spurningum frá tæplega 80 nemendum í Húsaskóla.
Flestir krakkarnir spurðu um stjarnvísindi, dýrafræði, mannslíkamann og jarðvísindi.
Laugalækjarskóli hefur einnig tekið þátt í sama verkefni.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
ÖREINDAHRAÐALL Horft inn eftir göngum í nýjum öreindahraðli sem verið er að
smíða í CERN. Göngin eru 27 km löng.