Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 10
14. maí 2005 LAUGARDAGUR
BÍLAR Bílasalan Sparibíll býður
nú til sölu bíl af gerðinni Rolls
Royce Phantom árgerð 2005.
Bíllinn sem um ræðir er stað-
settur í Bandaríkjunum og kost-
ar hingað kominn litlar 42 millj-
ónir. Þó skal tekið fram að að-
flutningsgjöld og tollar reiknast
sem að minnsta kosti helmingur
upphæðarinnar og vilji kaup-
andi bruna um þjóðvegi Amer-
íku á kagganum þá þarf ekki að
borga nema rétt um 20 milljónir
fyrir hann.
Bíllinn er heil 450 hestöfl og
slagrými vélarinnar er 6800
rúmsentimetrar. Þetta afl skilar
2,5 tonna þungum bílnum upp í
100 kílómetra hraða á aðeins 5,9
sekúndum. Leðurklætt áklæðið
er handsaumað og bíllinn settur
saman samkvæmt kúnstarinnar
reglum, engir róbótar þar á
ferð. Eins gott er líka að eiga
smá afgang fyrir bensíni því
bíllinn eyðir nær 25 lítrum á
hverja 100 kílómetra, sannkall-
aður hákur. Eitt er þó víst; flest-
ir mundu líta við og horfa á eft-
ir þessum á rúntinum og skiptir
þá engu máli hvort fólk hefur
nokkurn sérstakan áhuga á bíl-
um yfirleitt. Samkvæmt upplýs-
ingum frá bílasölunni hafa þó
engar alvöru fyrirspurnir borist
enn í bílinn. - oá
Umferðarstofa hefur áhyggjur af símanotkun:
Hjólrei›afólk talar í farsíma á fer›
HJÓLREIÐAFÓLK Það færist í vöxt
að hjólreiðafólk taki upp símann
á meðan það er á ferð. Þetta tel-
ur Sigurður Helgason hjá Um-
ferðarstofu fara illa saman.
„Þótt það sé leyfilegt, lögum
samkvæmt, að tala í síma á hjóli
þá er krafan um fulla einbeit-
ingu við akstur alveg jafn mikil-
væg hjólreiðafólki og ökumönn-
um vélknúinna ökutækja,“ segir
Sigurður og leggur á það
áherslu að það verði að hafa
auga með þessu, sérstaklega
þegar vinsældir hjólreiða
aukast nú dag frá degi.
Sólver H. Sólverss, formaður
Fjallahjólaklúbbsins tekur und-
ir þetta og segir mikilvægt fyrir
hjólreiðafólk að koma sér upp
búnaði sem komi í veg fyrir að
það skapi hættu með því að taka
upp símann á ferð. „Það er alveg
eins með hjólin og bílana, hand-
frjáls búnaður er það eina sem
getur tryggt það að báðar hend-
ur séu á stýrinu,“ segir Sólver
og hvetur hjólreiðafólk til þess
að verða sér úti um slíkan bún-
að. -mh
Vogur sérhæfi
sig í morfínfíkn
Lag›ar eru til ellefu breytingar á fljónustu fyrir áfengis- og vímuefnaneytend-
ur í sk‡rslu sem lög› hefur veri› fyrir á Alflingi. Heilbrig›isrá›herra telur til-
lögu um mi›læga innlagnarstö› mjög athygliver›a.
SKÝRSLA Kallað er á viðamiklar
breytingar á þjónustu fyrir áfeng-
is- og vímuefnaneytendur á Ís-
landi í skýrslu sem starfshópur á
vegum trygginga- og heilbrigðis-
ráðuneytis hefur unnið og lögð
hefur verið fyrir Alþingi. Skýrsl-
an er hluti af undirbúningi að mót-
un heildarstefnu um uppbyggingu
og rekstur meðferðarstofnana
sem samþykkt var á Alþingi vorið
2002.
Í skýslunni eru lagðar fram ell-
efu tillögur til að bæta þjónust-
una. Meðal annars er lagt til að
sett verði á fót miðlæg innlagnar-
miðstöð og skráning, sem gæfi
möguleika á stýringu í úrræði við
hæfi hverju sinni. Einnig að
Sjúkrahúsið Vogur sérhæfi sig í
meðferð við fíkn í morfín og skyld
efni.
„Það hefur verið lögð mikil
vinna í þetta og menn hafa lagt sig
mjög eftir að greina þennan geira
sem er því miður stór og vax- andi,“ segir Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra sem telur margar
tillögur starfshópsins athygli-
verðar, sérstaklega um miðlæga
innlagnarmiðstöð. Farið verði yfir
tillögurnar en ekki hafi verið tek-
in ákvörðun um það enn hverju
verði hrint í framkvæmd. „Ég
reikna nú með að þingið muni láta
sig skýrsluna einhverju varða,“
segir Jón en það verði þó að öllum
líkindum ekki fyrr en á næsta
þingi í haust. „Það skýrist á næstu
mánuðum hvað við treystum okk-
ur í af þessu.“
Aðrar tillögur starfshópsins
miðuðu að því að endurskoða lög
um heilbrigðisþjónustu, að fjár-
veitingar verði bundnar við mála-
flokk en ekki stofnanir og að
rekstrarleyfi verði einungis veitt
að uppfylltum skilyrðum. Bent
var á að starfsemi sé of bundin
við höfuðborgarsvæðið og að
sveitarfélög gætu komið öflugar
að málaflokknum. Of mikil
áhersla sé lögð á innlagnir á stofn-
anir, en of lítil að sama skapi á
vægari meðferðarúrræði, heilsu-
gæslu og göngudeildarþjónustu.
Úrræði þurfi að vera fjölbreyttari
með tilliti til þarfa mismunandi
hópa. Starfshópurinn leggur enn
fremur áherslu á að rannsókna sé
þörf á sviðinu.
solveig@frettabladid.is
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Jón Kristjánsson
segir skýrsluna vel unna og margt í henni
athyglivert. Hins vegar skýrist ekki fyrr en á
næstu mánuðum hvað af tillögum starfs-
hópsins verði að veruleika.
ROLLS ROYCE PHANTOM Hugsanlegur
kaupandi þarf að reiða fram 42 milljónir til
að kaupa bílinn sem yrði væntanlega einn
sá glæsilegasti ef ekki sá glæsilegasti sem
sæist á götum landsins.
HJÓLREIÐAMAÐUR Á FERÐ Það getur verið hættulegt að taka upp símann á fullri ferð.
SJÚKRAHÚSIÐ VOGUR Sjúkrahúsið Vogur hefur starfað í meira en tuttugu ár. Sjúkrahúsið
sinnir vímuefnaneytendum og öðrum fíklum.
Íslensk bílasala auglýsir glæsikerru til sölu:
Rolls Royce á 42 milljónir