Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 50
30 14. maí 2005 LAUGARDAGUR Markaðshyggja í boltanum firátt fyrir a› samkomulag hafi or›i› milli félaga í Landsbankadeildinni um a› sama mi›aver› gildi á öllum leikjum deildarinnar er mikil samkeppni um áhorfendur og ‡mis sérkjör og tilbo› í bo›i. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S PR E 28 28 5 5 /2 00 5 ERTU BÚINN AÐ STILLA UPP DRAUMALIÐINU ÞÍNU Á VISIR.IS? Stigahæstu liðin eftir 6, 12 og 18 umferðir fá veglega vinninga: Ferð fyrir tvo á leik á Englandi - PSP, nýja leikjatölvan frá Playstation Gjafabréf frá Landsbankanum - Áskrift að Sýn Aukavinningur fyrir öflugasta hópleikinn Þjálfarar í Landsbankadeildinni eru búnir að vinna heimavinnuna sína. Ný þjónusta fyrir Draumaliðsþjálfara: BOLTAVAKTIN - allt beint af vellinum á visir.is Sama miðaverð á leiki Landsbankadeildar karla: Hugmyndin frá félögunum NEYTENDUR „Hugmyndin er gömul og kemur ekki nema að litlu leyti frá okk- ur hjá knattspyrnuforystunni,“ segir Geir Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands Íslands, vegna þeirrar ákvörðunar að láta sama miðaverð gilda á alla leiki í Landsbankadeildinni sem hefst eftir helgina. Geir segir forráðamenn félaganna hafa tekið þetta upp og frumkvæð- ið komi því þaðan. „Auðvitað eru skiptar skoðanir um þetta félaganna á milli en um þetta var kosið og þetta samþykkt. Mín persónulega skoðun er sú að í framtíðinni muni miðaverð miðast við aðstöðu þá sem stuðningsmönnum er boðið upp á. Á því er mikill munur í dag. Stöku félög bjóða stúkur og sæti meðan önnur gera það ekki.“ Aðspurður um hvort sama hugmynd ætti ekki að gilda um Landsbankadeild kvenna segir Geir að það komi vel til greina en það sé erfiðara þar sem sum félögin taki gjald fyrir meðan önnur gera það ekki. „Það má kannski segja að það sé hugsunarleysi hjá okkur að hafa ekki farið fram á slíkt hjá stelpunum. Ég er nokkuð viss um að Landsbankinn tæki vel í þá hugmynd að niðurgreiða miða á leiki þeirra þannig að ókeypis yrði á þá alla.“ -aöe FRAMKVÆMDASTJÓRI KSÍ Segir þá ákvörðun að láta sama verð gilda á alla leiki koma frá félögunum sjálfum. Vel komi til greina að láta slíkt einnig gilda um kvenna- leikina í framtíðinni. Landsbankadeild karla og kvenna: Baráttan hefst eftir helgina LEIKIR KARLA: Mánudagur 16. maí Valur – Grindavík að Hlíðarenda ÍA – Þróttur á Akranesvelli Fram – ÍBV á Laugardalsvelli Keflavík – FH á Keflavíkurvelli Þriðjudagur 17. maí Fylkir – KR á Fylkisvelli LEIKIR KVENNA: Mánudagur 16. maí KR – Stjarnan á KR-velli Þriðjudagur 17. maí Breiðablik – Valur á Kópavogsvelli Keflavík – FH á Keflavíkurvelli ÍBV – ÍA á Hásteinsvelli NEYTENDUR Tólf hundruð krónur mun kosta fyrir fullorðna að sækja leiki í Landsbankadeild karla þetta sumarið samkvæmt sameiginlegri ákvörðun Knatt- spyrnusambands Íslands og fé- laganna sjálfra. Enn verður þó frítt á meginhluta leikja í Lands- bankadeild kvenna eins og verið hefur undanfarin ár. Þetta er í fyrsta sinn sem fé- lögin ákveða sameiginlega gjald- skrá en það hefur þó ekki komið í veg fyrir að hörð samkeppni ríkir um að fá sem flesta á völl- inn. Flest félögin bjóða upp á árs- kort með ýmsum fríðindum og geta áhugasamir sparað sér tals- vert á að nýta sér slík tilboð. Enn fremur mun Landsbankinn selja miða á alla leiki í forsölu fyrir fullorðna fyrir þúsund krónur og munu börn og unglingar geta í flestum tilfellum fengið frímiða hjá útibúum bankans að auki. Þannig getur fjölskylda farið saman á völlinn fyrir tvö þúsund krónur. Áfram verður frítt á flesta leiki í Landsbankadeild kvenna eins og verið hefur undanfarin ár. Þó eru undantekningar á þeirri reglu. Á leikjum KR, Keflavíkur og Stjörnunnar verða fullorðnir að greiða 500 krónur en frítt verður fyrir börn og ung- linga. Líklegt þykir að einnig muni kosta á leiki kvennaliðs Vals en það fékkst ekki staðfest hjá forráðamönnum félagsins. Sú ákvörðun að hafa sameig- inlega gjaldskrá hefur farið fyr- ir ofan garð og neðan hjá mörg- um. Benda nokkrir forráðamenn á að engum dytti í hug að bjóða sama miðaverð á leiki Arsenal og Portsmouth eða Barcelona og Getafe og vilja meina að hið sama eigi að gilda hér á landi. Félögin haf því gripið til þess ráðs að bjóða árs- eða stuðnings- mannakort á hagstæðum kjörum í sumar og er þá jafnan innifalið meira en sé keyptur einn miði. Frítt kaffi, kökur eða annað með- læti meðan á leik stendur er al- gengt og stöku félög eins og Grindavík og Keflavík munu bjóða korthöfum sínum enn frek- ari umbun. Keflvíkingar eru einna grimmastir í tilboðum sín- um. Þar veitir fjölskyldukort sem kostar 15 þúsund krónur að- gang fyrir fjóra á alla leiki liðs- ins, fríar veitingar meðan á leik stendur, liðstreyja félagsins fylgir með í kaupunum og þeir sem mæta hvað oftast á leiki í búningnum geta átt von á vegleg- um vinningum. Þess utan býður Keflavík stuðningsmönnum sín- um á leik á útivelli í sumar og mun í leiðinni verða grillað og boðið upp á ýmislegt fyrir börn- in. Til samanburðar fá stuðnings- menn Fram, svokallaðir Fram- herjar, fátt eitt annað en miða á leiki og kaffi með meðan stuðn- ingsmenn KR og Grindavíkur fá úthlutað sínum eigin sætum í stúkum félaganna. Ljóst er því að fyrir stuðn- ingsmenn liðanna borgar sig að kaupa árskort eða vera í stuðn- ingsmannaklúbbum félaganna flestra en ætli fólk aðeins á stöku leiki er að líkindum vænlegast að verða sér úti um miða í forsölu hjá Landsbankanum. albert@frettabladid.is *Fjölskyldutilboð. Ársmiði fyrir einn á 12.000, séu tveir keyptir 22.000, séu þrír keyptir 30.000 ** Fjölskylduklúbbur. Miðar fyrir tvo fullorðna og tvö börn á alla leiki plús veitingar fríar og ýmis önnur fríðindi á 15 þúsund krónur. *** Framherjaklúbburinn. Meðlimir fá frítt kaffi og frítt á leiki. **** Hjónakort einnig í boði á 12 þúsund. ***** Toyota á Íslandi býður áhugasömum frítt á leiki Breiðabliks. ****** Þrjár tegundir árskorta í boði auk aðgangs að lokuðum stuðningsmannaklúbbi. ****** Ársmiðar Vals gilda á alla leiki karla og kvenna ******* Frítt kaffi fyrir árskorthafa. Einnig hægt að kaupa sérstök stuðningsmannakort ******** Sérstakt fjölskyldugjald verður væntanlega í boði. HVAÐ KOSTAR Á VÖLLINN HJÁ STRÁKUNUM? HVAÐ KOSTAR Á VÖLLINN HJÁ STRÁKUNUM? HVAÐ KOSTAR Á VÖLLINN HJÁ STRÁKUNUM? Félag VöllurFullorðinn Fullorðinn Barn Árskort Annað í stúku í stæði Valur Hlíðarendi 1200 1200 300 8000 ****** Fram Laugardalsvöllur 1200 1200 300 - *** ÍA Akranesvöllur 1200 1200 300 - Keflavík Keflavíkurvöllur 1200 1200 300 15000 ** Fylkir Fylkisvöllur 1200 1200 300 8400 ****** Grindavík Grindavíkurvöllur 1200 1200 300 9000 ******* Þróttur Laugardalsvöllur 1200 1200 300 - ÍBV Hásteinsvöllur 1200 1200 300 8000 **** KR KR-völlur 1200 1200 300 12000 * FH Kaplakrikavöllur 1200 1200 300 - ******** HVAÐ KOSTAR Á VÖLLINN HJÁ STELPUNUM Félag Völlur Fullorðinn Fullorðinn Barn í stúku í stæði KR KR-völlur 500 500 0 - Breiðablik Kópavogsvöllur 0 0 0 - ***** Keflavík Keflavíkurvöllur 500 500 0 - ÍBV Hásteinsvöllur 0 0 0 - FH Kaplakrikavöllur 0 0 0 - ÍA Akranesvöllur 0 0 0 - Valur Hlíðarendi - - - - Stjarnan Stjörnuvöllur 500 500 0 - FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.