Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 22
Löggjöf eða eftirlit Þingræði er ein leið til þess að starfrækja lýðræði. Löggjafarsamkoman setur borg- urunum lög, en á síðari árum hefur eftirlits- hlutverk þingmanna orðið áberandi. Til þess er ætlast að þingið hamli gegn spillingu, eða stundi hreingerningar í nafni kjósenda. Fyrirspurnir og utandagskrárumræða eru eins konar skúringatæki þingmanna í þessu tilliti. Þeir vekja athygli á eigin baráttu- málum, veita ríkisstjórninni aðhald eða koma einhverjum málum í sviðsljós fjöl- miðlanna. Nokkrar orðahnippingar urðu milli stjórnar- andstæðinga og stjórnarliða á þingi um daginn um þetta efni. Þótti Birki J. Jónssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, stjórnar- andstæðingar orðnir full yfirgangssamir þegar á þeim mátti skilja að fyrirspurnir stjórnarliða væru orðnar margar og jafnvel sviðsettar í auglýsingaskyni. Stór mál og smá Dæmi eru um fyrirspurnir sem litla athygli vekja. Gunnar I. Birgisson spurði til dæmis um- hverfisráðherra um fjölda mála hjá úrskurðar- nefnd skipulags- og byggingarmála. Jafnframt spurði hann um afgreiðslutíma slíkra mála. Svar Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverfis- ráðherra var forvitnilegt en vakti ekki athygli. Málin hjá nefndinni reyndust vera 77 talsins, þar af 20 óafgreidd frá árunum 2002 og 2003. Af þessum 20 málum, sem nú hafa legið tvö til þrjú ár hjá nefndinni, snertu 19 Reykjavíkurborg. Þau hefur ekki verið unnt að afgreiða vegna þess að Reykjavíkurborg hefur trassað að láta nefndinni í té gögn sem hún verður að fá í hendur frá lægri stjórnsýslustig- um. Fram kom í svari Sigríðar Önnu að gögn hefðu ekki borist frá Reykjavíkurborg þrátt fyrir að gengið hefði verið eftir þeim, nú síðast með bréfi 12. apríl síðastliðinn. Af þessum sökum velti umhverfisráðherrann því fyrir sér hvort ástæða væri til þess að beita einhverjum viðurlögum. Vera má að lítil fyrirspurn verði til þess að Reykjavíkurborg sjái sitt óvænna og skili gögnum. Hver veit. 22 14. maí 2005 LAUGARDAGUR Stjórnarskráin ver rétt þingmanna til að fylgja eigin sannfæringu en kjósendur hafa vald og segja sitt álit á stefnu- málum og þingmönnum í kosningum. Eftir er að sjá hvort nýjum þing- manni Sjálfstæðisflokks- ins tekst að breyta sjáv- arútvegsstefnu flokksins. Svo getur líka verið að hann sé orðinn henni sammála. Svikari var það orð sem einn af kjósendum Frjálslynda flokks- ins í Kópavogi notaði um Gunnar Örlygsson þingmann, sem á síð- asta degi þinghaldsins sagði sig úr Frjálslynda flokknum og gekk til liðs við Sjálfstæðis- flokkinn. Umræddur kjósandi bætti við, þar sem hann var ný- stiginn út úr flugvél á Reykja- víkurflugvelli, að hann hefði kosið Frjálslynda flokkinn í síð- ustu kosningum til þess að styðja ákveðinn málstað sem Guðjón A. Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, stæði fyrir, en vegna búsetu sinnar og kjördæmaskipunar- innar hefði hann orðið að greiða Gunnari Örlygssyni atkvæði sitt eins og 2.889 aðrir kjósendur í Suðvesturkjördæmi. „Er þetta leyfilegt og hvað um trúverðug- leikann hjá liðhlaupa sem fyrir fáeinum dögum gagnrýndi stjórnarliða hástöfum?“ spurði kjósandinn úr Kópavogi. Gunnar Örlygsson sagði sig úr Frjálslynda flokknum og var tekinn í þingflokk Sjálfstæðis- flokksins seint síðastliðið mið- vikudagskvöld. Davíð Oddsson fagnaði liðsaukanum. Spurður um harða gagnrýni Gunnars á ríkisstjórnina og stjórnarliða svaraði Davíð: „Ja, það er nú hluti af því sem gerist að stjórn- arandstöðuþingmaður gagnrýnir stjórnarsinna. Þannig er það en hins vegar ef menn hafa horft og hlustað grannt á hans athuga- semdir þá hafa þær nú fallið nær okkur heldur en sumra af hans fyrrum félögum í Frjáls- lynda flokknum. Það er ekki nokkur vafi að hann hefur staðið nær okkur en þeir,“ sagði Davíð að lokinni inntöku Gunnars í þingflokk Sjálfstæðisflokksins seint á miðvikudagskvöld. Stundum segja íslenskir Evr- ópusambandssinnar að áhrif Ís- lendinga á ákvarðanir ESB verði meiri ef þeir ganga í sambandið. Utan þess séu þeir hins vegar dæmdir til að taka við tilskipun- um og regluverki Evrópusam- bandsins án þess að hafa fengið tækifæri til að móta tilskipanirn- ar sjálfar. Vera má að Gunnar Örlygsson hafi hugsað eitthvað á þá leið að áhrif hans kynnu að verða meiri með því að ganga stjórnarliðum á hönd. Þannig gæti hann til dæmis haft áhrif á stefnumörkun í sjávarútvegi, sem er sérstakt áhugamál hans. „Í sjávarútvegsmálum hef ég tal- að fyrir breytingum, sem einkan- lega snúa að aukinni samkeppni á vísindasviðinu sem er forsenda árangurs. Frjáls samkeppni hug- mynda er jafn eðlileg og sam- keppni í atvinnulífinu,“ sagði Gunnar í yfirlýsingu sinni frammi fyrir þingheimi. Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lengi haft svipuð baráttumál. Hann fagnar áreiðanlega liðsaukanum enda hafa sjónarmið hans í þeim efnum átt erfitt uppdráttar hjá flokksforystunni. En leyfist þingmanni að skipta svona um flokk? Eru þetta heilindi? Eru þetta svik? Réttur þingmanna til þess að fylgja sannfæringu sinni er var- inn í stjórnarskrá lýðveldisins. Í 48. grein segir: „Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sann- færingu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.“ Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands, segir þessa reglu eiga við flest ef ekki öll þjóðríki með lýðræðishefðir. „Þetta getur varla öðruvísi verið því ef þingmenn fylgja ekki sannfæringu sinni heldur regl- um flokks eða kjósenda verða umræður á þingi marklausar. En þetta er lögformleg hlið málsins og pólítíska hliðin er önnur. Gunnar Örlygsson þarf að sann- færa kjósendur um að hann sé trúverðugur í athöfnum sínum. Þeir geta sagt sitt álit á honum í næstu kosningum. Gunnar þarf til dæmis að sannfæra kjósendur um að að trúverðugt sé að ganga úr flokki sem hefur á stefnuskrá að hnekkja núverandi fiskveiði- stjórnunarkerfi og í flokk sem komið hefur þessu sama kerfi á og styður það í meginatriðum,“ segir Gunnar Helgi. Í yfirlýsingu fyrir helgina segir miðstjórn Frjálslynda flokksins að það lýsi litlum drengskap af hálfu Gunnars Ör- lygssonar að nota fylgi kjósenda Frjálslynda flokksins til þess að styrkja ríkisstjórnina til verka þvert á hans eigin málflutning. johannh@frettabladid.is stjornmal@frettabladid.is Úr bakherberginu... Löglegt en siðlaust nánar á visir.is UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, „Samkeppnisstofnun gerði ríkisstjórninni það sem alls ekki mátti gera. Hún snerti hina ósnertanlegu. Hún snerti þá sem aldrei hafa þurft að bera ábyrgð á gerðum sínum. Hún snerti þá sem hingað til hafa setið á fremsta bekk á landsfundum stjórnarflokkanna og rakað saman fé í þeirra þágu.“ Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum um samkeppnismál á Alþingi 11. maí. Sauðburður er hafinn og 63 þingmenn eru farnir í 140 daga leyfi frá þingstörfum. Þeir koma aftur saman til fundar við Austurvöll eftir fyrstu göngur, í byrjun október. Kristinn H. Gunnarsson hóf umræðu í þinginu um þetta langa hlé og starfshætti þingsins um hádegisbil á miðvikudag. Hann uppskar litlar þakkir stjórnarliða fyrir framtakið og vildu ýmsir meina að hann hefði með þessu uppátæki tafið þinglokin ótæpilega. Síðustu þingvikunni lauk seint á miðvikudagskvöld með syrpu viðburða. Gunnar Örlygsson kvaddi Frjáls- lynda flokkinn og var tekinn inn í þingflokk sjálfstæðis- manna samdægurs. Athygli vakti fjarvera Gunnars við atkvæðagreiðslu þennan dag í þinginu. Fjarveran er lík- lega skiljanleg þegar betur er að gáð. Átti Gunnar að verja síðustu tímunum í Frjálslynda flokknum til þess að greiða atkvæði gegn frum- vörpum og tillögum Sjálfstæðisflokksins? Halldór Blöndal stýrði sínum síðasta fundi sem forseti þingsins og setti hraðamet í atkvæðagreiðslu. Halldór ætlar ekki að gefa kost á sér í forseta- embættið á hausti komanda enda um samið að þá setjist Sólveig Pétursdótt- ir flokkssystir hans í forsetastólinn. Halldór verður vitanlega áfram á þingi. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, þakkaði Halldóri fyrir hönd þingmanna en Halldór hefur stýrt þingfundum frá vormánuðum 1999. Eftirfar- andi athugasemd Ögmundar vakti kátínu í þingsalnum: „Þótti mörgum vita á stormasama sambúð hans við þingið hvernig hann handlék fundahamarinn í upphafi forsetaferils síns fremur sem verkfæri til stórátaka en léttan smíðisgrip úr trjáviði.“ Bryndís Hlöðversdóttir, Samfylkingunni, ætlar að hætta á þingi enda búin að ráða sig til kennslu- og rannsóknastarfa við Háskólann á Bifröst. Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir tekur sæti hennar í haust. Gunnar I. Birgisson ætlar að hætta, en hann sest í stól bæjarstjóra í Kópa- vogi 1. júní næstkomandi. Árni Mathiesen, Sigríður Anna Þórðardóttir og Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir eru í efstu sætum á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Suðvesturkjördæminu ásamt Gunnari sem skipaði annað sæti. Öll eru þau ráðherrar. Gunnar verður bæjarstjóri. Verkfæri til stórátaka VIKA Í PÓLITÍK JÓHANN HAUKSSON Markaðurinn á mannamáli Nýtt v iðskip tablað frítt með Fr éttablaðinu á morgun Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S P R E 2 7 9 0 8 0 4 /2 0 0 5 Sögurnar • Tölurnar • Fólkið Nú þarftu ekki lengur að vera sérfræðingur til að fá botn í markaðsmálin. Hér eftir mun Markaðurinn fylgja Fréttablaðinu frítt alla miðvikudaga. Í Markaðnum munum við leggja sérstaka áherslu á að fjalla á auðskilinn hátt um íslenska og erlenda markaði og viðskiptalíf. Við munum ekki einskorða okkur við stórviðburði heldur m.a. greina frá fólki sem vinnur góð verk í misstórum fyrirtækjum víða í þjóðfélaginu. GUNNAR ÖRLYGSSON, ÞINGMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS- INS Tekst Gunnari að hafa áhrif á sjávarútvegsstefnu Sjálfstæðis- flokksins? Eða gekk hann í flokkinn vegna þess að hann er stefn- unni sammála? GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON, ÞINGMAÐUR FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS „Lítill drengskapur af hálfu Gunnars Örlygssonar að nota fylgi okkar til að styrkja ríkisstjórnina.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.