Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Besti
vinurinn
Léttur öllari
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Allar þarfir
garðálfa uppfylltar
IK
E
28
22
2
0
5.
20
05
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
5
Draumasumar
3.490,-
BÅLSÖ blómapottur Ø50 H35 sm
HULTET blómastoð
160 sm
795,-
STICK blómastoð
110 sm
195,-
RÖNÖ garðskraut H35 sm
290,-
BJURÖN
garðáhöld 2 stk.
390,-
BETA bali galvaniseraður
Ø37 H23 sm
590,-
BÅLSÖ hangandi
blómapottur Ø18 H12 sm
690,-
ODLA 30 sm bakki
með 3 blómapottum 7 sm
295,-
REVELN blómapottur
Ø20 H21 sm
395,-
FÄNÖ blómapottur
terracotta Ø32 H65 sm
2.990,-
HALLON blómapottur
Ø14 H12 sm ýmsir litir
295,-
HALLON hangandi
blómapottur Ø32 H19 sm
1.190,-
MYNTA
blómapottur terracotta
Ø32 H30 sm
790,-
290,-
Beygla
með grænmeti
MYNTA blómapottur
Ø25 H23 sm
690,-
60 ár
Nú eru 60 ár liðin frá lokum seinniheimsstyrjaldarinnar og 87 ár eru
reyndar liðin frá lokum þeirrar fyrri.
Það segir sitt um bjartsýni Íslendinga,
eins og bent hefur verið á, að þeir
skuli vísa til þessara tveggja heims-
styrjalda sem fyrri og síðari. Sem
sagt: Íslendingar geri ekki ráð fyrir
að heimsstyrjaldirnar verði fleiri. Það
er búið að afgreiða þetta með þessum
tveimur. Punktur. Ekkert rúm er í
tungumálinu, úr því sem komið er,
fyrir þriðju heimstyrjöldina enda sér
það hver maður að ekki er hægt að
tala um fyrri, síðari og svo þá þriðju,
eins og menn séu með óráði.
SÖMU orðanotkun um þessa hrylli-
legu heimsviðburði ætti auðvitað að
taka upp í öllum tungumálum. Þannig
ættu enskumælandi þjóðir auðvitað
að tala um „former“ og „latter“. Með
því yrði vonandi fyrirbyggt að illa
innrættir einræðisherrarar sem eru
að gæla við að sprengja kjarnorku-
sprengju einhvers staðar í stórborg-
um hæfu þriðju heimsstyrjöldina,
eða „world war three“. Slíkt yrði ein-
faldlega útilokað í tungumálinu.
Þannig yrði heimsfriður tryggður.
MAÐUR sér þetta fyrir sér. Einhver
brjálæðingur hótar að varpa bombu á
Bandaríkin og hefja þar með heims-
styrjöld. Þá yrði bara sagt við hann:
„Heyrðu góði minn. Hvað heldur þú
að þú sért að gera með þesssu brölti?
Þú byrjar ekkert heimsstyrjöld úr
þessu. Þær eru búnar. Þú verður að
gera eitthvað annað.“
REYNDAR má sjá fyrir sér að smá-
smugulegir skriffinnar geti fundið
leið fram hjá þessu. Hugsanlegt er að
tekið yrði upp á því að kalla nýja
heimsstyrjöld því óþjála nafni Síðari
heimsstyrjöld B. Og síðan C og D eftir
því sem þær yrðu fleiri. Það yrði
týpiskt nú á tímum óþjálla skamm-
stafanna og alls kyns furðulegra nafn-
gifta eins og skyr.is, sem gamalt fólk
heldur að sé skyrís. Kannski myndi ný
heimsstyrjöld verða kölluð heims-
styrjoldin.com. Maður veit ekki.
Í ÖLLU falli er ljós að einungis þeir
sem eru verulega skrýtnir taka upp á
því að hefja heimsstyrjöld upp á
þessi býtti, því nú á dögum þarf allt
að vera með logo og flott nafn, og ef
Þriðja heimsstyrjöldin er útilokuð
sem konsept, út af tungumálinu, að
þá er náttúrlega best að sleppa þessu.
EN svo er auðvitað möguleiki að hitt
gerist, að allt fari í bál og brand á milli
þeirra sem vilja sneiða framhjá tungu-
málinu og tala um Síðari heimsstyrj-
öld B – sem sagt hinna smekklausu og
tilfinningalausu bjúrókrata – og hinna
sem fallast alls ekki á slíkt og vilja
vernda þá tæru bjartsýni sem felst í
því að tala hreinlega bara um fyrri og
síðari, og ekkert meira með það. Alveg
yrði það dæmigert – nú þegar stríð
eru einmitt háð í nafni friðar, eins
mótsagnakennt og það hljómar – að
slíkur ágreiningur myndi enda með
heimsstyrjöld þar sem hinir bjartsýnu
friðarsinnar færu með sigur af hólmi
eftir endanlega tortímingu veraldar-
innar og mannfall milljarða.
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR