Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 18
14. maí 2005 LAUGARDAGUR Gó›ir dagar í borginni – Listahátí› Listahátíð er nú árlegur viðburður í borginni og hefst um helgina með miklum látum. Hátiðin er fjölbreytt en meginþemað er myndlist í sam- tímanum þar sem hæst rís stórmerk sýning á verkum Dieters Roths sem er nú talinn stór áhrifavaldur í sam- tímalist síðari hluta 20. aldar. Roth var lengi búsettur á Íslandi og mark- aði djúp spor hér eins og víðar. Sýn- ing á verkum hans í New York í fyrra var mögnuð og er nú komin til landsins. En allt í kring eru gallerí og sýningarsalir sem steypa saman stefnum og straumum svo úr verður mikil næring fyrir myndlistarunn- endur, en að auki koma frábærir gestir utan úr heimi með tónlist og sirkus, svo af nógu er að taka. Hátíðin lýsir metnaði og öllum sem komu að undirbúningi er hér með þakkað fyrir hönd listunnenda um land allt, þetta verður flott hátíð. Í Viðey getur nú að líta listaverk Ólafs Elíassonar, The Blind Pavillion, Blindi skálinn, á Sjónar- hóli. Þetta verk vakti mikla athygli á Feneyjartvíæringnum 2003, og hef- ur ekki verið sýnt aftur fyrr en nú í Viðey. Ólafur bauð verkið fram end- urgjaldlaust að láni í sumar og styrkti Menningar- og ferðamálaráð borgarinnar uppsetningu á verki Ólafs ásamt öðrum. Ráðið lagði auk þess fé til þess að skólabörn yrðu virkir þátttakendur í undanfara há- tíðarinnar með listamönnum sem sýna á henni. Þetta samstarf er af- rakstur samnings sem menntayfir- völd í borginni gerðu við Listahátíð, og hér er boðað að áfram verði hald- ið á þessari gæfuríku braut – til að færa listir og menningu til fólksins, og með áþreifanlegum hætti til yngstu borgaranna. Undanfarna daga hafa tugir grunnskólabarna úr fjölmörgum skólum borgarinnar verið að störfum með listamönnum sem fram koma á hátíðinni í sköpun- arsmiðju í Viðey. Sköpunarferlið sjálft með listamönnum hefur verið lærdómsríkt og hvort sem litið er til menningarhliðar málsins eða menntaþáttarins þá er þetta gott í alla staði. En listahátíð er byrjuð og er fyrir alla – gleðilega hátíð. ■ Keypti milljóna BMW með sjónvarpi Halldór og Finnur klífa Mont Blanc Bls. 32–33 Bls. 4 BARNASPRENGJAÚr sviðsljósinu í barnauppeldi Bls. 13 Sjónvarpsþulan Guðrún Erlings. Ríkasta kona Íslands DAGBLAÐIÐ VÍSIR 103. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295 Helgarblað LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2005 Bls. 34 Frá Keflavík til sjöttalélegasta liðs Englands Fitan var að drepa Helgu SAFNAR FASTEIGNUM EINS OG AÐRAR KONUR SAFNA SKÓM Selma vinnur Eurovision Guðjón Þórðarson svíkur Keflavík Missti 62 kíló Bls. 18 Hamingjusöm með einum ríkasta gæjanum RÍKASTA KONA Safnar fasteignum eins og aðrar konur safna skóm Gunnar Örn Örlygsson sagði skil- ið við þingflokk Frjálslynda flokksins í vikunni sem leið og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokk- inn. Sumir segja þetta svik við þá sem kusu hann og við flokkinn. Aðrir segja Frjálslynda flokkinn hafa sveigt af braut og lofa þor þingmannsins að yfirgefa flokk sem hann telur sig ekki lengur eiga samleið með. Enn aðrir telja að sinnaskipti Gunnars megi rekja til þess að hann og varaformaður Frjáls- lynda flokksins, Magnús Þór Hafsteinsson, hafa lengi eldað grátt silfur saman. Bandamenn Gunnars segja hann vera fylginn sér en andstæðingarnir telja hann svikulan og sumir ganga jafnvel svo langt að kalla hann siðblindan. Það er óhætt að segja að Gunnar sé frægur að endemum. Það var tölu- vert fjaðrafok í kringum Gunnar Örn í upphafi þing- ferils hans árið 2003. Þá hlaut hann þann vafasama heiður að vera fyrsti þing- maðurinn í sögu Alþingis til að sitja á bak við lás og slá þegar þing var sett um haustið. Hann afplánaði þá dóm sem hann hlaut fyrir bókhaldsbrot og brot á lögum um stjórn fisk- veiða. Gunnar er fæddur í Keflavík árið 1971, sonur Örlygs Þor- valdssonar flugumsjón- armanns og Guðbjargar Ernu Agnarsdóttur mat- ráðskonu. Hann á átta systk- in; fjóra bræður, þrjár systur og einn hálfbróður. Hann var fjörmikill krakki og fór snemma að stunda íþróttir af kappi, enda ber mönnum saman um að hann hafi ætíð verið keppnismaður mikill. Hann þótti efnilegur knattspyrnumaður og lék með liði Njarðvíkinga. Sumir segja það synd að hann lagði knattspyrnuskóna snemma á hilluna. Hann á einnig glæstan feril að baki sem körfuknatt- leiksmaður en hann lék lengst af með liði Njarðvíkur ásamt bróð- ur sínum Teiti. Frægt er orðið þegar honum var skipt inn á í úr- slitaleik Íslandsmótsins gegn Keflavík árið 1991. Þá gerði hann sér lítið fyrir og skoraði 27 stig og tryggði Njarðvíkingum Ís- landsmeistaratitilinn. Líkt og margir Suðurnesja- menn stundaði Gunnar sjó- mennsku á ýmsum fiskiskipum í tæpan áratug. Því næst sneri hann sér að fiskútflutningi. Þá gerði hann út bátinn Örlyg KE 111 á árunum 1999 til 2000. Gunnari er lýst sem miklum ævintýramanni sem hiki ekki við að hrinda hugdettum sínum í framkvæmd. Hann fer oft ótroðn- ar slóðir og þykir æði hugmynda- ríkur. Til dæmis má nefna að í að- draganda alþingiskosninga 2003 setti hann upp fiskmarkað við tjörnina í Hafnarfirði og gaf kjós- endum ferskan fisk í soðið. Klæddur slorgallanum gaukaði hann svo stefnumálum Frjáls- lynda flokksins að þeim sem þáðu af honum fisk. Gunnar reynir eftir fremsta megni að láta drauma sína rætast. Hann skellti sér til dæmis í spænskunám á Malaga á Spáni árið 2000. Í beinu framhaldi flutti hann út frystar afurðir frá Íslandi til Spánar sem verktaki fyrir spænskt félag. Hann hefur einnig stundað nám við Den Danske Exportskole í Dan- mörku og lauk þaðan prófi í markaðs- og útflutnings- fræðum. Þeim sem þekkja Gunn- ar ber saman um að hann sé harðduglegur. Hann þykir skemmtilegur í um- gengni; er iðulega hress í bragði og hugmyndaríkur. Hann er laus við snobb og fer ekki í manngreinará- lit. Sumum er það minn- isstætt að hann kom ávallt eins fram við trillukarla og útgerðar- menn. Gunnar kemur vel fyrir og þykir sjarmer- andi við fyrstu kynni. Andstæðingar hans segja þó lítið búa þar að baki. Þeir segja hann ekki orðheldinn og lítið sé að marka það sem hann segi. Hann noti klisjur og stagl til að villa um fyrir viðmælendum sínum og geti sjaldan fært mál- efnaleg rök fyrir máli sínu. Einnig þykir ýmsum dóm- greind hans gloppótt, hann sé tækifærismennskan uppmáluð og sumir ganga jafnvel svo langt að segja hann siðblindan. Máli sínu til stuðnings vísa þeir til kæruleysislegra yfirlýsinga hans um sakamál sín. Þeir sem best þekkja hann bera hins vegar í bætifláka fyrir Gunnar Örn og segja hann hafa hlaupið af sér hornin. Í dag sé hann þroskaður maður með breitt bak. ■ Duglegur tækifærissinni MAÐUR VIKUNNAR GUNNAR ÖRN ÖRLYGSSON ALÞINGISMAÐUR TE IK N IN G : H EL G I S IG . – H U G VE R K A. IS LEIÐRÉTTING Í umfjöllun um flokkaflakkara í blaðinu í gær er missagt að Þjóðvaki hafi fengið þrjá menn kjörna á þing 1995. Hið rétta er að þeir voru fjórir. Þá rann Þjóðvaki ekki inn í Alþýðuflokk- inn heldur sameinuðust þing- flokkar flokkanna undir nafninu Þingflokkur jafnaðarmanna. STEFÁN JÓN HAFSTEIN FORMAÐUR MENNINGAR- OG FERÐA- MÁLARÁÐS REYKJAVÍKUR UMRÆÐAN LISTAHÁTÍÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.