Fréttablaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 16
Þegar ég var lítill drengur varð ég
það sem gamlar konur vildu ef
þær báðu mig um það. Jú, það var
voða gaman í skólanum. Jú, ég var
voða duglegur að læra. Jú, ég tók
alltaf lýsi á morgnana. Jú, ég ætl-
aði að fara snemma að sofa. Við
hvert svar urðu konurnar ánægð-
ari með mig. Struku mér jafnvel
um kinn um leið og þær horfðu á
mig elskulegum augum. Þær sáu
æskuna; óspjallaða, hreinlynda og
fulla af fyrirheitum. Þegar ég
slapp frá konunum rauk ég út,
ruglaði vatnsgreiddan toppinn og
fór að hugsa um nammi, hvernig
ég kæmist hjá því að læra heima
og lét mig dreyma um að vaka
fram eftir – helst yfir sjónvarpi
og heimagerðum karamellum.
Við Íslendingar – eða sá þráður
í okkur sem þjóðerniskenndin
hríslast um – er jafn barnaleg. Við
virðumst ekki mega rekast á út-
lent fólk án þess að breytast í það
sem við höldum að það vilji sjá.
Jú, við borðum úldinn hákarl og
súra hrútspunga. Jú, við drekkum
okkur dauð á hverri nóttu, rísum
upp að morgni og förum í bað – í
heitum hver. Jú, við tölum við for-
sætisráðherrann á hverjum degi.
Hér þekkja allir alla.
Ekki veit ég af hverju við lát-
um svona. Eða hvers vegna við
viljum gefa þessa mynd af okkur.
Ég man ekki til þess að ég hafi
stigið fæti í heitan hver. Ég fór
einu sinni í heita lækinn í Naut-
hólsvík áður en Hitaveitan skrúf-
aði fyrir hann – en hann taldist
varla til náttúruundra. Ég get
borðað súrsaða hrútspunga ef ég
er manaður til þess en hef lært
það af reynslunni að vera ekki
innan um fólk sem það gerir. Mér
hefur ekki dottið í hug að borða
hákarl og efast um að ég láti
verða af því úr þessu. Ég hef
aldrei hringt í forsætisráðherra
nema fá borgað fyrir það. Og
hann svarar sjaldan. Stundum
hefur meira að segja liðið ár án
þess að forsætisráðherra svari
fjölmiðlum sem ég hef unnið hjá.
Ég gæti meira að segja trúað að
íslenskir forsætisráðherrar eigi
einhvers konar heimsmet í að láta
ekki ná í sig. Ég á enga flík úr
þæfðri ull – ekki nema gamla
ullarsokka sem lentu óvart í
þvottavélinni og passa núna á
fimm ára. Ekki heldur veski úr
steinbítsroði. Ég þekki engan sem
á veski úr steinbítsroði. Ég hef
aldrei heyrt neinn segjast trúa á
álfa sem ekki hefur beint eða
óbeint framfæri af því að halda
slíkri vitleysu fram – er annað
hvort í ferðabransanum eða
pólitík. Ég finn ekki til nokkurs
skyldleika með víkingum fremur
en aðrir Íslendingar. Ég veit að
það eru haldnar víkingahátíðir
fyrir atvinnulaust fólk frá Bret-
landi í Hafnarfirði en það kemur
okkur ekki meira við en ristilráð-
stefnur skandinavískra lækna á
Radisson SAS (sem hét áður Hótel
Saga og Bændahöllin, en nafninu
var breytt þar sem Íslendingar
vilja ekki láta minna sig á bændur
og sögu af þeim að fljúgast á).
Auðvitað er hér margt fagurra
kvenna og án efa einnig hraustir
menn. En við höfum líka fengið
okkar skerf af ófríðleik – eigum
okkar skessur, sköss og herfur.
Og það er sannarlega enginn telj-
andi skortur á liðónýtum vesal-
ingum á Íslandi; hér eru menn
latir og sérhlífnir, duglitlir og
máttvana ekki síður en meðal
annarra þjóða. Heilt yfir er fólk
hér alls konar – eins og víðast
hvar annars staðar.
Hvers vegna vilja Íslendingar
ganga inn í þessa delluhugmynd í
hvert sinn sem útlendingar yrða á
þá? Fagrar og ljóshærðar, slomp-
aðar og lauslátar konur sem baða
sig í hverum og éta úldinn fisk.
Hverjum datt þessi vitleysa í
hug? Einhvers staðar í fjarska
karlar með kraftadellu að jafn-
hatta hver öðrum. Þessi mynd
sem við tökum á okkur fyrir út-
lent fólk er fremur furðuleg en
fyndin – raunar svo gersamlega
út í hött að hún er náttúrleg blind-
gata í öllum samræðum. Hvað er
hægt að segja við svona fólk?
Ósköp venjulegt vestrænt milli-
stéttarfólk með nokkra ljósatíma í
andlitinu, klettasalat og kotasælu
í maganum og heimsmynd frá
Reuters í hausnum. Maður brosir
kurteislega og nógu lítið til að það
virki ekki hvetjandi og bíður þess
að það þagni. ■
Ítilefni af því að 60 ár eru liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldar-innar hafa menn víða í Evrópu rifjað upp styrjaldarárin, mann-fórnir í stríðinu og margs konar mannlega harmleiki sem áttu sér
stað meðan á stríðinu stóð og í kjölfar þess. Rússar minntust þessara
tímamóta með margvíslegum hætti um síðustu helgi. Það er ekki að-
eins að Rússar hafi minnst þessara tímamóta á Rauða torginu í
Moskvu, heldur hafa þeir efnt til samkoma víða um heim, þar sem
þeir hafa þakkað fyrir aðstoðina í stríðinu og heiðrað fjölmarga ein-
staklinga sem þar komu við sögu. Rússar hafa líka margt og mikið að
þakka, en þeirra fórn var mikil í stríðinu. Samkvæmt tölum sem hafa
verið rifjaðar upp í tilefni af þessum tímamótum létust hvorki meira
né minna en 27 milljónir Sovétmanna í síðari heimsstyrjöldinni, en
alls létust um 40 milljónir manna í þessum miklu stríðsátökum.
Mörgum hefur verið hugsað til Þýskalands nasismans hér og ann-
ars staðar að undanförnu, og þá ekki síst vegna myndarinnar um síð-
ustu daga Hitlers sem sýnd hefur verið hér fyrir fullu húsi dag eftir
dag. En það er fleira sem hefur verið rifjað upp og sem stendur okkur
Íslendingum nær.
Hvernig má það vera að 10 þúsund þýsk flóttabörn hafi dáið í
flóttamannabúðum í Danmörku eftir stríðið vegna lélegs aðbúnað-
ar, matar- og lyfjaskorts? Það hefur ekki verið mikið rætt um örlög
þessara barna fram til þessa, en nú hafa blossað upp umræður um
þau í Danmörku eftir að Kirsten Lylloff varði doktorsritgerð sína
við Kaupmannahafnarháskóla um örlög barnanna á dögunum. Hún
er fyrrverandi yfirlæknir í Álaborg en hóf að rannsaka örlög barn-
anna árið 1997. Á síðustu dögum stríðsins hröktust fleiri hundruð
þúsund Þjóðverjar undan Rússum vestur á bóginn og þeir sem ekki
komust með skipum til þýskra hafna enduðu margir í Danmörku.
Talið er að um 250 þúsund flóttamenn hafi komið þangað, og þar af
voru mörg börn sem höfðu misst foreldra sína í stríðinu eða orðið
viðskila við þá. Það eru örlög þessara barna sem hafa orðið tilefni
umræðna í Danmörku. Lylloff gagnrýnir meðferðina á þeim harð-
lega í doktorsritgerð sinni, og dregur fram margar ófagrar lýsing-
ar um meðferðina á börnunum. Aðrir reyna að bera í bætifláka fyrir
meðferðina á þeim og vitna þá gjarnan til mikils haturs margra
Dana á Þjóðverjum í og eftir heimsstyrjöldina, og að Danir hafi haft
nóg með sig.
Við lestur á dönskum blöðum um þetta mál er meðferðin á börnun-
um óskiljanleg nú til dags. Að Danir, þessi friðsama og elskulega
þjóð, sem leggur mikið upp úr því að borða góðan mat og hafa það
þægilegt, skuli vera með það á bakinu að hafa lokað blessuð þýsku
börnin inni í gaddavírsgirtum flóttamannabúðum, þar sem mörg
þeirra báru beinin. Það er erfitt fyrir nútímafólk að skilja þetta, enda
hafa margir Danir, eins og Jörgen Paulsen, framkvæmdastjóri Rauða
krossins þar í landi, kallað þetta „myrkan kafla“ í þjóðarsögunni, sem
þeir eigi að skammast sín fyrir. ■
14. maí 2005 LAUGARDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Tíu þúsund þýsk börn létust í flótta-
mannabúðum í Danmörku eftir stríð.
Mannlegur
harmleikur
FRÁ DEGI TIL DAGS
fia› er erfitt fyrir nútímafólk a› skilja fletta, enda hafa margir
Danir, eins og Jörgen Paulsen, framkvæmdastjóri Rau›a krossins
flar í landi, kalla› fletta „myrkan kafla“ í fljó›arsögunni, sem
fleir eigi a› skammast sín fyrir.
Stökktu til
Rimini
26. maí frá kr. 29.990
Verð kr. 29.990 í viku
/ kr. 39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Stökktu tilboð 26. maí.
Verð kr. 39.990 í viku
/ kr. 49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð í
1 eða 2 vikur – ath. enginn barnaafsláttur.
Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Stökktu tilboð 26. maí.
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á
síðustu sætunum til Rimini þann
26. maí. Nú getur þú notið fegursta
tíma ársins á þessum vinsælasta
sumarleyfisstað Ítalíu. Þú bókar og
tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Af hverju ættum vi›
a› vilja vera svona?
Þrisvar þrír
Valsarar fara mikinn þessa dagana og
leggja mikið undir á Íslandsmóti karla í
fótbolta sem hefst á mánudag. Hluti af
umsvifum þeirra skýrist af fyrirhugaðri
uppbyggingu á Valssvæðinu. Samning-
ar milli félagsins og Reykjavíkurborgar
um uppbygginguna voru undirritaðir á
dögunum og var þá mikið um dýrðir í
Valsheimilinu. Grímur
Sæmundsen, formaður
aðalstjórnar Vals, fjall-
aði um gang samn-
ingaviðræðnanna
og sagði margt hafa
gengið á. Skýrði
hann það með því
að mikið hefði
verið um manna-
breytingar í æðstu stöðum Reykjavíkur-
borgar. Þannig hefði þurft að eiga við
þrjá borgarstjóra, þrjá borgarverkfræð-
inga og þrjá borgarlögmenn frá upp-
hafi viðræðna til endaloka þeirra. Undir
þessari ræðu sat Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir borgarstjóri, sem hélt næstu
ræðu og sagði að þrátt fyrir þetta hefði
aðeins verið einn formaður Íþrótta- og
tómstundaráðs á þessum tíma, hún
sjálf. Eitthvað ku þetta hafa farið fyrir
brjóstið á nokkrum áheyrendum því
Anna Kristinsdóttir varð formaður
Íþrótta- og tómstundaráðs árið 2002
og hætt við að einhverjum framsóknar-
mönnum þyki lítið gert úr sinni konu.
Sprengjan
Endurkoma Guðjóns Þórðarsonar til Ís-
lands virðist ætla að slá öll fyrri met
um vandræðamál í fótboltanum. Fram-
an af síðasta hausti töldu Grindvíkingar
sig eiga góða möguleika á að hreppa
hann sem þjálfara sinn fyrir sumarið.
Það gekk ekki eftir, meðal annars
vegna þess að Guðjón hélt í vonina
um að fá stjórastarf í
Englandi, og í kjölfarið
hrepptu Keflvíkingar
stóra vinninginn,
héldu þeir. Nú er
Guðjón á braut aftur,
og líklega á leið til
þriðja félagsins sem
hann stýrir í Englandi,
Notts County. Spurn-
ing hvort sögunni er
lokið.
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL-
SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
LESTU GREININA Á VISIR.IS
OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA
brynjolfur@frettabladid.is
GUNNAR
SMÁRI
EGILSSON
Hvers vegna vilja Íslend-
ingar ganga inn í flessa
delluhugmynd í hvert
sinn sem útlendingar
yr›a á flá? Fagrar og ljós-
hær›ar, slompa›ar og
lauslátar konur sem ba›a
sig í hverum og éta úldinn
fisk. Hverjum datt flessi
vitleysa í hug?
LAUGARDAGSBRÉF
ÞRÁ ÍSLENDINGA EFTIR
FURÐULEGA VITLAUSRI
SJÁLFSMYND