Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 24
Kvikmyndaskóli Íslands útskrif-
aði 11 nemendur í gær, í fyrsta
skipti síðan skólinn var form-
lega viðurkenndur af mennta-
málaráðuneytinu. Þessir nem-
endur eru nú orðnir kvikmynda-
gerðarmenn. Hópurinn hóf nám
haustið 2003 og hefur því verið í
skólanum í 2 ár.
Námið í kvikmyndaskólanum
er að stærstum hluta verklegt
þótt bóklegur hluti námsins sé nú
orðinn fyrirferðameiri en áður.
Markmið skólans er að efla
íslenskan kvikmynda-, sjón-
varps- og tölvuleikjaiðnað til
mikilla muna og er nú svo komið
að skólinn er einn afkastamesti
framleiðandi kvikmyndaefnis á
landinu. „Skólinn er að fram-
leiða mikið af leiknum stutt-
myndum, tónlistarmyndbönd-
um, auglýsingum, heimildar-
myndum og skemmtiefni auk
mikils magns af kvikmyndaæf-
ingum,“ segir Böðvar Bjarki
Pétursson, formaður stjórnar
skólans.
Skólinn hefur í undirbúningi
þrjár nýjar brautir: handrita-
braut, hönnunarbraut og leik-
listarbraut. Nú þegar hafa verið
lagðar inn námsskrár fyrir þess-
ar brautir þar sem óskað er eftir
viðurkenningu á þeim frá
menntamálaráðuneytinu. Í skól-
anum er þverfaglegt andrúms-
loft þar sem nemendur skólans
koma úr ólíkum áttum og eru á
öllum aldri. „Hér eru nemendur
sem búnir eru með stúdentspróf,
jafnvel háskólanám, og svo er
auðvitað líka ungt fólk hér. Þetta
er virkilega skemmtileg blanda
og hér er þægilegt andrúms-
loft,“ segir Böðvar og tekur það
fram að hann bindi miklar vonir
við þennan útskriftarhóp sem
eflaust á eftir að láta til sín taka
í íslenskri kvikmyndagerð.
magnus.halldorsson@frettabladid.is
24 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
AUGUST STRINDBERG
(1849-1912) lést þennan dag
Munu láta mikið til sín taka
TÍMAMÓT: FYRSTA ÚTSKRIFT KVIKMYNDASKÓLA ÍSLANDS
„Ég dreymi og því er ég til.“
August Strindberg var sænskur rithöfundur. Hann er
þekktastur fyrir leikrit sín og áhrif á stefnur leikhúsa.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Helga Sveinsdóttir, fyrrverandi sím-
stöðvarstjóri, Vík í Mýrdal, er látin.
Teresa Hallgrímsson, Túngötu 2,
Grindavík, er látin.
Lára Sumarliðadóttir Gasch, 144-62
25th Rd, Flushing, New York, lést
fimmtudaginn 5. maí.
Henry Langvad lést föstudaginn 6. maí.
Jarðarförin hefur farið fram.
Guðrún María Eiríka Egilsdóttir lést
þriðjudaginn 10. maí.
Valgerður Finnbogadóttir, Bolungarvík,
lést miðvikudaginn 11. maí.
Erla Sigmarsdóttir, frá Vestmanna-
eyjum, lést miðvikudaginn 11. maí.
JAR‹ARFARIR
14.00 Magnús Einarsson, bifreiðastjóri
frá Tjörnum, Strandaseli 11,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Stóradalskirkju undir Eyjafjöllum.
14.00 Sigfús Magnús Steingrímsson,
Fossvegi 15, Siglufirði, verður jarð-
sunginn frá Siglufjarðarkirkju.
14.00 Helga Friðriksdóttir, frá Kristhóli,
Skagafirði, verður jarðsungin í
kapellunni á Löngumýri.
14.00 Haraldur Halldórsson, bifreiða-
stjóri, Bleiksárhlíð 14, Eskifirði,
verður jarðsunginn frá Eskifjarðar-
kirkju.
AFMÆLI
Ólafur Ragnar Gríms-
son forseti er 62 ára.
Sigríður Anna Þórðar-
dóttir umhverfisráð-
herra er 59 ára.
Anna Heiða Pálsdóttir
bókmenntafræðingur er
49 ára.
Hreinn Hreinsson upplýsingafulltrúi er
37 ára.
Hildur H. Dungal, forstjóri Útlendinga-
stofnunar, er 34 ára.
Meyvant Meyvantsson verður 75 ára
mánudaginn 16. maí. Þeir sem vilja
samgleðjast honum eru
hjartanlega velkomnir í
Sunnusal á Hótel Sögu
milli klukkan 15 og 18.
Afmælisbarnið afþakkar
gjafir en opnaður hefur
verið bankareikningur
til styrktar Umhyggju,
samtökum langveikra barna. Reiknings-
númerið er 0317-05-70100.
KVIKMYNDASKÓLINN Fjölbreytilegur hópur ungra kvikmyndagerðarmanna tilbúinn til að takast á við hin ýmsu verkefni.
MERKISATBURÐIR
1922 Fimm skip farast og með
þeim 44 sjómenn í aftaka-
veðri við Vestur- og Norð-
urland.
1948 Ísraelsríki verður
formlega til.
1955 Varsjársamningurinn er
undirritaður
1973 Fyrsta bandaríska geim-
stöðin Skylab er send á
sporbaug.
1998 Jóhanna Sigurðardóttir tal-
ar samfellt í fimm og hálfa
klukkustund á Alþingi.
2000 Rúta með fjörutíu eldri
borgurum veltur í Hvalfirði.
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
í smáletursdálkinn hér a› ofan
má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a
hringja í síma 550 5000.
Þekkir einhver til Magnúsar Einarssonar, föður Karls Kjerulfs Einarssonar
Dunganons, ,,hertoga af St. Kildu“.
Hver var Magnús Einarsson?
Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um viðkomandi eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við starfsfólk
Íslendingabókar með tölvupósti á netfangið islendingabok@islendingabok.is, í síma 540 7496 eða með því að
skrifa bréf til Íslendingabókar, Þverholti 18, 105 Reykjavík.
Magnús var fæddur um miðja nítjándu öld og var kaupmaður á Seyðisfirði og í
Færeyjum. Hann flutti með eiginkonu sinni til Vestdalseyrar frá Kaupmannahöfn
árið 1894 og svo aftur til Kaupmannahafnar 1897.
Enn er spurt Ekki hafa enn komið fram upplýsingar um föður Kristófers Bjarna Jónssonar sem spurt
var um í þarsíðustu viku. Það er þó ljóst að heimildir hafa ruglað saman þremur einstaklingum og
lesendur Fréttablaðsins hafa greitt aðeins úr þeirri flækju. Kristófer Jónsson, f. 1888, sjómaður í
Reykjavík, var faðir Jóhönnu hjúkrunarkonu, Kristófer Jónsson, sem gekk undir viðnefninu „Kólumbus“,
var verslunarmaður á Suðureyri við Súgandafjörð fram yfir 1930 og var ókvæntur og barnlaus. En enn
vantar upplýsingar um föður Kristófers Bjarna Jónssonar, f. 1881, d. 1923.
Okkar ástkæra systir ,
Hrönn Haraldsdóttir Civita
Lést á líknardeild St.Petersburg Florida þann 24. apríl síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram. Fyrir hönd fjölskyldu hinnar látnu og
annarra ættingja.
Guðmunda Bergvinsdóttir
Jóhanna Haraldsdóttir Jones David Jones
Halldóra Haraldsdóttir Carroll
Haraldur Ó Haraldsson Guðrún Adolfsdóttir
Guðjón Guðjónsson Ingibjörg Óskarsdóttir
Sigurjón Guðjónsson
Helena Guðjónsdóttir Björn Viðar Ellertsson
Gísli Guðjónsson Nancy Guðjónsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar,
Hjálmars S. Helgasonar
Holtagerði 84, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar
fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd vandamanna
Kristbjörg Pétursdóttir,
Þórir Hjálmarsson,
Magni Hjálmarsson.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna lýkur fimmtánda starfsári
Sí›ustu tónleikar stjórnandans
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
lýkur 15. starfsári sínu með tón-
leikum í Skálholtskirkju í dag
sem hún heldur ásamt Hátíðarkór
Bláskógarbyggðar. Ingvar Jónas-
son hefur verið aðalstjórnandi
hljómsveitarinnar og megindrif-
fjöður frá upphafi.
Tónleikarnir í dag verða hans
síðustu sem aðalstjórnandi hljóm-
sveitarinnar en Oliver Kentish
sellóleikari tekur við og hefur
verið ráðinn til eins árs.
„Þetta er mikið skref fyrir mig
en maður hefur verið í tónlist frá
barnæsku,“ segir Ingvar sem var
einn stofnfélaga Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands. Hann bjó í 19 ár í
Svíþjóð og spilaði meðal annars
með sinfóníunni í Malmö og óper-
unni í Stokkhólmi auk þess sem
hann kenndi bæði á fiðlu og víólu
við tónlistarháskólana í Malmö og
Gautaborg.
„Það er mjög góður andi í
hljómsveitinni og fólk spilar sér
virkilega til ánægju,“ segir Ingv-
ar sem finnst Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna hafa þróast í rétta
átt.
Á tónleikunum í dag verða
flutt kórverk eftir Mozart,
Vivaldi, Bach og Fauré, einsöngs-
mótetta eftir Mozart og trompet-
konsert eftir Hummel. Tónleik-
arnir hefjast klukkan fjögur og er
aðgangur frír. ■
INGVAR JÓNASSON Lætur af
störfum sem aðalstjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitar áhugamanna.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/H
EIÐ
A H
ELG
AD
Ó
TTIR