Fréttablaðið - 14.05.2005, Síða 29
3LAUGARDAGUR 14. maí 2005
Opel á uppleið
KANNANIR BER AÐ SAMA BRUNNI.
Tvær rannsóknarstofnanir á sviði
bílaiðnaðar hafa kannað ánægju
sölumanna á þýska bílamarkaðn-
um. Rannsóknamiðstöð bílaiðnað-
arins við Bamberg-háskóla gerði
könnun á 26 bíltegundum og rann-
sóknastofnun bílaiðnaðarins við
fagháskólann í Nürtingen gerði út-
tekt á 28 tegundum. Opel fékk
hæstu einkunn í báðum rannsókn-
unum.
Á „Dealer Satisfaction Index“, lista
rannsóknamiðstöðvarinnar í Bam-
berg, skaraði Opel fram úr öðrum
þýskum bílaframleiðendum og náði
næstefsta sæti í flokknum „gæði
nýrra bíla“. Á aðeins tveimur árum
hefur Opel stokkið af miðju listans,
í fjórða sætið í fyrra, og í annað
sætið á þessu ári. Þetta endur-
speglar niðurstöður gæðakönnunar
þýska bílatímaritsins Auto Bild, frá
nóvember 2004, þar sem Opel var
einnig kosin besta þýska bíltegund-
in. Í skýrslu Nürtingen-stofnunar-
innar, þar sem fylgst hefur verið
með ánægju söluaðila frá árinu
1998, skipar Opel fyrsta sætið fyrir
árið 2005, meðal þýskra stórfram-
leiðenda í bílaiðnaði.
Því er svo við að bæta að í mars
jókst markaðshlutdeildin í 11,3%
og tryggði Opel sér þannig aftur
annað sætið hvað varðar fjölda
seldra bíla á fyrsta ársfjórðungi
2005 í Þýskalandi.
Nýjungar á leið-
inni frá BMW
MARGT Á DÖFINNI HJÁ BMW.
Aðdáendur kraftmikilla sportbíla
geta glaðst, þar sem hinir nýju
BMW M5 og M6 eru komnir í fram-
leiðslu. Þá er hluti af 5 línunni að
aldrifvæðast með þeim afleiðingum
að bæði 525 og 530 eru í boði í xi-
útgáfu, sem stendur fyrir hið öfluga
x-drive aldrif.
Þetta eru jafnframt fyrstu BMW-
bifreiðarnar sem eru með x-drive
aldrifinu sem fram að þessu hefur
eingöngu fengist í X3 og X5
jeppalínuna. Ný og endurbætt út-
gáfa á 7 línunni er enn fremur á
leiðinni og í vetrarbyrjun kemur nýr
130i úr 1 línunni.
Það er því ljóst að nýja 3 línan,
sem kom á markað hér á landi um
síðustu helgi, markar aðeins upp-
hafið á spennandi ári hjá BMW.
Nýlega var svo tilkynnt að BMW
myndi markaðssetja tvær nýjar
línur á næstu árum.
Kia Sorento sigraði örugglega í sínum
flokki í fyrstu árlegu JD Power & Associ-
ates ánægjuvogarkönnun sem hann tók
þátt í. Sorento var álitinn besti 4x4 bíllinn
og varð í sjöunda sæti af 124 bílum alls.
Yong-Hwan Kim, aðstoðarforstjóri og yfir-
framkvæmdastjóri hjá Kia Motors Cor-
poration, segir að þegar Sorento sport-
jeppinn kom á markað árið 2002 hafi Kia
gert töluverðar breytingar á framleiðslu-
stefnu sinni og hætt að leggja alla áherslu
á smíði lítilla og mjög hagkvæmra bíla.
Síðan hafi ekki verið litið um öxl. Árið
2004 var Sorento þriðji söluhæsti bíll Kia
en alls seldust 106.269. Búist er við að
Sorento verði söluhæsti bíll framleiðand-
ans og að hann seljist í nær 121.000 ein-
tökum. Hjá Kia hefur verið lagt mikið upp
úr því að bæta alla framleiðslulínuna á
undanförnum árum. Samkvæmt könnun-
inni virðist það átak hafa skilað sér.
Könnun JD Power fór þannig fram
að haft var samband við 90.000 bí-
leigendur í Bretlandi sem keypt
höfðu nýja bíla frá september 2002
til ágúst 2003. Eigendur voru beðn-
ir um að svara 70 spurningum og
að minnsta kosti 50 útfyllt svarblöð
þurfti til þess að bílgerð kæmist á listann.
Vísitala ánægjuvogarinnar (Customer Sat-
isfaction Index – CSI) var reiknuð á
grundvelli mats eigenda á átta þáttum,
frammistöðu bílsins, þægindum og hag-
kvæmni innréttingar, ytri frágangi, bilun-
um í vélbúnaði, göllum í innréttingu og
úthlið, þjónustu umboðsaðila og kostnaði
við rekstur.
Aukin ökuréttindi
Kynning á nýrri námskrá verður haldin
þriðjudaginn 17. maí 2005 kl. 20.00
Kennsla hefst 18. maí kl. 18.30
Ökuskólinn í Mjódd
Sími 567-0300
Þarabakka 3 109 Reykjavík
Netfang mjodd@bilprof.is
www.bilprof.is
Almenn smurþjónusta
Hjólbarðaþjónusta
Sjálfskiptingaþjónusta
Rafgeymaþjónusta
Ísetning bremsuklossa
Dempara – ísetningar o.fl.
Vegmúli 4 • Sími 553 0440
Eigendur ánægðir með Kia Sorento
EINI 4X4 BÍLLINN SEM NÁÐI HÁMARKSSKORI, 5 STJÖRNUM.
VÍSITALA ÁNÆGJUVOGAR
JD POWER 2005
4x4 bílar
1 Kia Sorento 5 stjörnur 84,0%
2 Honda CRV 4 stjörnur 83,1%
3 Hyundai Santa Fe 4 stjörnur 82,7%
4 Toyota RAV-4 4 stjörnur 82,5%
5 Nissan X-Trail 4 stjörnur 81,5%
Eigendur Kia Sorento eru afar ánægðir
með bíla sína samkvæmt árlegri JD Power
& Associates ánægjuvogarkönnun.
Þýskum þykir Audi A8 fallegastur
ÞRÍR AUDI BÍLAR OG EINN VOLKSWAGEN ÞYKJA FALLEGASTIR Í SÍNUM FLOKKI.
Þjóðverjum þykir Audi A4, A6 og A8 fall-
egustu bílarnir hver í sínum flokki, Mini
fallegasti smábíllinn og VW Touareg fall-
egasti jeppinn. Þetta er er mat 36.500 les-
enda tveggja þýskra bílatímarita. Drauma-
bíll lesendanna er Porsche Carrera GT.
Þetta er annað árið í röð sem Mini þykir
fallegasti smábíllinn en á eftir honum
koma Peugeot 206 og VW Polo. Alfa
Romeo 147 þykir fallegastur í flokki minni
meðalbíla og á eftir honum Audi A3 og
Opel Astra. Audi A4 þykir fallegastur í
meðalflokki, þá Mercedes C og Alfa
Romeo 156. Í efri milliflokki er Audi A6
metinn fallegastur og á eftir koma
Mercedes E og BMW 5. Audi A8 er efstur
í flokki stórra fólksbíla en hann hlaut
langflest stig og þykir því fegursti bíllinn í
augum Þjóðverja.
Fallegasti jeppinn þótti vera VW Touareg.
Á eftir honum kom BMW X5 og Audi All-
road. Af litlum fjölnotabílum þótti Seat Al-
tea fallegastur og þar á eftir Mazda 5 og
VW Touran.
Fallegasti sportbíllinn þykir Þjóðverjum
vera Mercedes SLK sem þykir fallegri en
Porsche Boxter og Audi A4 Cabrio.
Porsche Carrera GT er þó draumabíll
Þjóðverja og á eftir honum Mercedes SLR
og Porsche 911.
Audi A8 er fallegastur allra bíla að mati
Þjóðverja.
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á LAUGARDÖGUM