Fréttablaðið - 14.05.2005, Qupperneq 30
Á netinu Atvinnumiðlanir í dag eru nú flestar á netinu og þar getur
fólk séð hvaða störf eru í boði og sótt um þau í gegnum netið. Ef fólk á
erfitt með að komast í tölvu þá er vert að benda á það að aðgangur er
að internetinu á öllum bókasöfnum.[ ]
Umkringd eintómum karl-
mönnum heima og heiman
Anna Linda Magnúsdóttir er hæstánægð með starfið sitt og karlana.
Anna Linda Magnúsdóttir er einn
eigenda Vatnsvirkjans og Tækja-
tækni. Hún er umkringd fjall-
myndarlegum pípurum alla daga.
„Samskiptin ganga bara vel því píparar
eru yfir höfuð mjög skemmtilegir og
þeir eru einnig mjög þægilegir og skiln-
ingsríkir,“ segir Anna Linda. „Ég sé um
sölumál hér hjá fyrirtækinu, en við sér-
hæfum okkur í innflutningi á vörum til
pípulagna bæði fyrir vatnsveitur og
pípulagnaverktaka auk þess sem við
erum með gott úrval af hreinlætistækj-
um í Vatnsvirkjanum í Ármúla 21.“
Anna Linda og eiginmaður hennar
Fjölvar Darri keyptu fyrirtækið ásamt
Róberti Melax og Hjalta Ólafssyni í
febrúar síðastliðnum, en faðir Önnu
Lindu átti og rak fyrirtækið í 20 ár.
„Ég var auðvitað oft að vinna hér hjá
honum og þá sérstaklega síðustu fimm
árin þannig að ég þekki reksturinn vel,
en ég hef ekki sérstakt vit á pípulögn-
um sem slíkum. Mitt starf felst aðal-
lega í því að afla nýrra viðskiptavina
og ná tilboðum úti á markaðnum. Þetta
er vissulega karlaveröld og það kemur
fyrir að pípararnir halda að ég kunni
ekki neitt á þetta, en þeir eru fljótir að
sjá að þeir koma ekki að alveg tómum
kofunum,“ segir hún hlæjandi.
Það er ekki bara á vinnustaðnum
sem Anna Linda er umkringd karl-
mönnum því hún á tvo syni og er sem
stendur eini kvenmaðurinn á heimil-
inu. „Það stendur nú til bóta,“ segir
hún brosandi, „því ég á von á stelpu í
byrjun september.
Jú, það gengur bara vel að sameina
fjölskyldulíf og vinnu, það getur oft
verið erfitt en þá koma ömmurnar og
afarnir sterk inn. Við rekum þetta allt
í sameiningu, ég og maðurinn minn,
nema hann tekur lítinn þátt í húsverk-
unum með mér, en hann gerir þá bara
eitthvað annað hjálplegt í staðinn. Við
höfum bæði brennandi áhuga á við-
skiptum og hjálpumst að með alla
hluti. Maður er auðvitað alltaf með
hugann við vinnuna, og stundum er
það púl að vera þungaður í rúmlega
fullri vinnu og með tvo litla stráka, en
þetta gengur alltaf upp. Þegar ég er
búin að koma strákunum í rúmið á
kvöldin getur verið gott að leggjast í
sófann með tærnar upp í loft, en ég
geri það sjaldan því ég þarf helst
alltaf að vera að.“
edda@frettabladid.is
Selfoss
Bifreiðasali
Starfssvið:
Sala á nýjum Toyota bílum ásamt umboðssölu á notuð-
um bílum, einnig persónuleg ráðgjöf og þjónusta við
viðskiptavini.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Löggiltur bifreiðasali er stór kostur. Reynsla æskileg.
Viðkomandi þarf að vera jákvæður, eiga auðvelt með
að vinna undir álagi, ásamt því að vinna með öðrum
og með ríka þjónustulund.
Bókhald – afleysing til 1/1 2006.
Starfssvið:
Almenn skrifstofustörf, frágangur og uppgjör lána,
ásamt öðrum tilfallandi störfum er snúa að bílasölu og
frágangsvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Kunnátta á bókhaldsforritið DK er æskileg. Reynsla af
skrifstofustörfum og lánaumhverfi er æskileg.
Viðkomandi þarf að vera jákvæð/ur, eiga auðvelt með
að vinna undir álagi, ásamt því að vinna með öðrum og
með ríka þjónustulund.
Eingöngu verður tekið við skriflegum umsóknum og
skal þeim skilað fyrir 1. júní 2005
Þær skal senda til Toyota Selfossi – Fossnesi 14 – 800
Selfossi, merkt: Umsókn, einnig er hægt að senda þær
með tölvupósti á netfangið: ragga@toyotaselfossi.is
Bílasala Suðurlands er umboðsaðili Toyota á Selfossi.
Hjá Bílasölu Suðurlands starfar um 15 manna samheldinn
hópur. Bílasala Suðurlands starfar í nýlegu og glæsilegu
húsnæði þar sem vinnu og starfsmannaaðstaða er til
fyrirmyndar.
A
ug
l.
Þó
rh
ild
ar
2
20
0.
24
5
Skólaskrifstofa
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
Leikskólinn Mánabrekka
Seltjarnarnesi
Leikskólakennarar
Viltu vera stærstur, bestur og njóta aðdáunar?
Við bíðum eftir þér í Mánabrekku.
Laus er staða deildarstjóra frá
1. ágúst eða eftir samkomulagi.
Í uppeldisstarfinu er lögð sérstök áhersla á
skapandi starf, umhverfismennt og tónlist.
Við leitum að leikskólakennara sem hefur
áhuga á fjölbreyttu og gefandi starfi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.
Nánari upplýsingar gefa:
Dagrún Ársælsdóttir leikskólastjóri í síma
5959280 og 6946621,
dagrun@seltjarnarnes.is eða Guðbjörg
Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma
5959280, guðbjorgjo@seltjarnarnes.is
Umsóknarfrestur er til 10. júní.
Álfasala SÁÁ
19. – 22. maí
Vantar sölufólk í eftirfarandi hverfi:
107 Vesturbær
170 Seltjarnarnes
109 Breiðholt
111 Breiðholt
112 Grafarvogur
Góð sölulaun í boði.
Upplýsingar í síma 5307600 • saa@saa.is