Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 31
5
ATVINNA
Laugar Café
Rekstrarstjóri
Laugar Café leitar eftir rekstrarstjóra. Viðkomandi að-
ili þarf að geta starfað sjálfstætt, verið drífandi, hafa
hæfni í mannlegum samskiptum, útsjónarsamur,
framsækinn og hafa góða þjónustulund.
Verksvið:
• Daglegur rekstur veitingastaðar og fundarsala
• Innkaupa- og birgðastýring
• Yfirumsjón og þjálfun starfsfólks
Hæfniskröfur:
• Viðskipta- eða rekstrarfræði menntun æskileg en
ekki skilyrði
• Haldbær reynsla rekstrar á veitingasviði
• Skipulögð og fagleg vinnubrögð
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila til starfsmannastjóra
með netpósti á thorunn@worldclass.is eða í pósti Laugar
Café – (starfsumsókn b.t. Þórunn Auðunsdóttir) –
Sundlaugavegi 30a – 105 Reykjavík.
Laugar Café er staðsett í heilsu- og sundmiðstöðinni
Laugum en þar er einnig að finna heilsurækt, baðstofu,
snyrti- og nuddstofu, íþróttavöruverslun og hárgreiðslustofu.
Um 2.000,- manns heimsækja Laugar daglega svo hér er
um líflegan og spennandi vinnustað að ræða.
Umsóknarfrestur er til 25. maí
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst