Fréttablaðið - 14.05.2005, Side 34
8
ATVINNA
Brúarskóla vantar kennara í eftirtaldar stöður:
Heimilisfræðikennsla, matargerð, húshald og
fleira tengt rekstri heimilis, 60% staða
Textílkennsla og vefnaður, fullt starf
Brúarskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Skólinn
er staðsettur í Öskjuhlíðinni einni af náttúruperlum Reykjavíkur
og var stofnaður haustið 2003 og er því í mótun og þróun. Í
skólanum eru nemendur sem eiga í alvarlega geðrænum,
hegðunar- og félagslegum erfiðleikum. Nemendur skólans
hafa allir verið áður í almennum grunnskólum þar sem reynt
hefur verið til hins ýtrasta að mæta námsþörfum þeirra. Hlut-
verk skólans er að mæta þörfum nemenda sem eru með
námstilboð við hæfi í lengri eða skemmri tíma og veita ráðgjöf
til kennara og annars starfsfólks skóla. Skólinn sér ennfremur
um kennslu nemenda á Stuðlum og nemenda sem eru
innlagðir á BUGL.
Kennslan er einstaklingsmiðuð og unnið er út frá færni, getu
og áhuga hvers og eins nemanda. Kennt er í 4-12 manna
hópum Rík áhersla er lögð á kennslu í félagslegum samskipt-
um og verklegum greinum. Jákvæðni og gleði eiga að ein-
kenna starf í Brúarskóla. Stuðst er við hugmyndafræði Upp-
byggingarstefnunnar í daglegu skólastarfi.
Samstarf er einn af mikilvægustu þáttum skólastarfsins, bæði
inna skóla sem utan.
Leitað er að kennurum sem eru m.a.:
Með kennaramenntun
Liprir í mannlegum samskiptum
Til í mikla samvinnu og þróunarstarf
Jákvæðir, fjölhæfir og sveigjanlegir í starfi
Til í að takast á við krefjandi verkefni
Brúarskóli
Kennarar fyrir
skólaárið 2005-2006
Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík, www.grunnskolar.is
sími: 535 5000, fmr@reykjavik.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björk Jónsdottir, skólastjóri
bjorkjo@bruarskoli.is, sími 520 6000. Skriflegar umsóknir sendist
í Brúarskóla, Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til
10. júní nk. Laun samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.
Mannauðsráðgjafi
Starfsmannaþjónusta Menntasviðs óskar eftir að ráða
mannauðsráðgjafa til starfa. Starfsmannaþjónustan
annast ráðgjöf á sviði starfsmannamála til allra leik- og
grunnskóla Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni starfsmannaþjónustu eru að:
veita ráðgjöf um ráðningar, kjaramál og vinnurétt
vinna að bættu starfsumhverfi
veita ráðgjöf um stjórnun og upplýsingamiðlun
aðstoða við lausn ágreiningsmála og bætt
samskipti á vinnustað
veita ráðgjöf um simenntun og sjá um símenntun
fyrir ákveðna hópa
vinna að skólaþróun í samstarfi við fagskrifstofur
sviðsins
Auk ýmissra annarra þátta sem lúta að því að gera leik-
og grunnskóla borgarinnar að aðlandi og eftirsóknar-
verðum vinnustöðum.
Gerðar eru eftirfarandi kröfur til umsækjanda:
Háskólamenntun
Framhaldsmenntun á sviði starfsmannamála eða
sambærileg reynsla
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu á
kjarasamningum og vinnurétti
Lipurð í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, metnaður, sjálfstæði í vinnubrögðum
og áhugi á takast á við margvísleg verkefni
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Gísladóttir, starfsmannastjóri,
ingunn.gisladottir@reykjavik.is sími 535 5000.
Sérfræðingur í fjármáladeild
Fjármáladeild Menntasviðs óskar eftir sérfræðingi til
starfa. Meginverkefni fjármáladeildar Menntasviðs er
gerð fjárhagsáætlunar og eftirfylgd hennar, fjármálaleg
þjónusta við stjórnendur leik- og grunnskóla ásamt því
að hafa umsjón með innkaupum/útboðum, trygginga-
málum og innheimtu þjónustugjalda fyrir alla grunn- og
leikskóla Reykjavíkur.
Starfs- og ábyrgðarsvið
Starf sérfræðings felst í þátttöku, áætlanagerð og
greiningarvinnu, auk aðkomu að öðrum verkefnum
fjármáladeildar. Í fjármáladeild starfa um 10 starfsmenn
sem sinna fyrrgreindum verkefnum. Í starfinu felst
umtalsverð samvinna við aðra starfsmenn í fjármála-
stjórnun og stjórnendur skólanna. Næsti yfirmaður er
deildarstjóri fjármáladeildar.
Gerðar eru eftirfarandi kröfur til umsækjanda:
Háskólamenntun á sviði viðskipta og/eða rekstrar
Mjög góð þekking á excel
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að
vinna í hópi.
Nánari upplýsingar veitir Hallur Símonarson,deildarstjóri fjár-
máladeildar, hallur.simonarson@reykjavik.is, í síma 563-5800
Tölvunarfræðingar
Upplýsingatækniþjónusta Menntasviðs óskar eftir að
ráða tvo tölvunarfræðinga til starfa.
Helstu verkefni eru:
Þjónusta og rekstrur á miðlægum miðlurum
skólanetsins
Uppsetning á rafrænu kennsluefni til leik- og
grunnskóla
Almenn net- og notendaþjónusta við tölvu-
umsjónarmenn í hverjum skóla
Menntasvið þjónustar leik- og grunnskóla Reykjavíkur.
Núverandi kerfi samanstendur af 40 klasamiðlurum
staðsettum á Menntasviði sem sinna mismunandi
hlutverkum fyrir mismunandi hugbúnaðarkerfi.
Gerðar eru eftirfarandi kröfur til umsækjanda:
Tölvunarfræðimenntun eða sambærilegt nám
Reynsla í verkefnavinnslu með gagnagrunnum
Þekking á Java og netforritunarmálum
Þekking á netkerfum og Windows miðlurum
Þekking á Lotus Notes er æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Guðmundsson, deildarstjóri
upplýsingatækniþjónustu sigthor.gudmundsson@reykjavik.is,
sími 535 5000.
Störf á Menntasviði Reykjavíkurborgar
Menntasvið tekur formlega til starfa 1. júní 2005 við samruna Leikskóla Reykjavíkur og Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur og er eitt af 10 sviðum Reykjavíkurborgar. Undir Menntasvið heyra 78 leikskólar þar sem eru 5.800
börn og um 1.700 starfsmenn og 38 grunnskólar með 15.500 nemendum og þar starfa um 2.500 starfsmenn.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 27. maí næstkomandi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist á Menntasvið Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík. Laun eru skv. kjarasamningi
Reykjavíkurborgar við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar um laus störf hjá leik- og
grunnskólum Reykjavíkurborgar er að finna á www.leikskolar.is og www.grunnskolar.is
Starf í gleraugnaverslun
Gleraugnasmiðjan ehf. rekur gleraugnaverslun
í Kringlunni og á Laugavegi. Fyrirtækið aug-
lýsir eftir starfsmanni eldri en 22 ára í versl-
anir sínar til almennra afgreiðslustarfa sem
meðal annars felast í ráðgjöf til viðskiptavina.
Góð enskukunnátta, þarf að geta sýnt sjálfstæði í
vinnubrögðum, vera framsækin, heiðarlegur og eiga
auðvelt með mannleg samskipti.
Umsóknum skal skilað til Gleraugnasmiðjunnar ehf.,
Laugavegi 36, 101 Reykjavík, fyrir 18. maí 2005.
Sumarafleysingastörf
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. óskar eftir að ráða sumarstarfsfólk í
vaktavinnu á fasteignasvið félagsins. Umsækjendur þurfa að geta hafið
störf 1. júní n.k. og geta starfað út ágústmánuð.
Starfið felst í ýmsum þjónustustörfum við farþega og er á vegum FLE hf.
Við leitum að reyklausum, snyrtilegum og þjónustuliprum
einstaklingum með góða tungumálakunnáttu og hæfni í mannlegum
samskiptum. Aldurstakmark 20 ár.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar hf. á 2. hæð og á heimasíðu flugstöðvarinnar www.airport.is.
Umsóknum með ljósmynd skal skila fyrir 23. maí n.k.
Upplýsingar um starfið veitir starfsþróunarsvið í síma 425 0432.
Tölvupóstfang: thorunn@fle.airport.is
M
Á
T
T
U
R
N
N
O
G
D
†
R
‹
IN
0
5
0
5
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
Hlutverk Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar er að tryggja
framúrskarandi þjónustu á
Keflavíkurflugvelli.
Framtíðarsýn Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar er að vera í fremstu röð
flughafna. Að bjóða einstaka
upplifun og eftirsóknarverða
þjónustu og gera flughöfnina að
vinsælum viðkomustað sem stenst
samanburð við þá bestu í heimi.