Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 37
TIL SÖLU
TILKYNNINGAR
11
TILKYNNINGAR
FORVAL
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda
að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. maí
2005, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 6. maí 2005 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og
ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2005, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og trygg-
ingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu,
áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þunga-
skatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtana-
skatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöld-
um, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af öku-
tækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á
ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúk-
dómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur
manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnað-
argjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald markaðsgjald, gjald í fram-
kvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barna-
bótaauki og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna
ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjár-
námsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.350 kr. og stimpilgjald
1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjár-
magnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyr-
irvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin
af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast
við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á
þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í
þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. maí 2005.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
Umsókn um stæði fyrir sölutjöld
á 17. júní 2005 í Reykjavík
Þeir sem óska eftir stæðum fyrir sölutjöld á þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní 2005, vinsamlegast vitjið sækjið
um á á www.skataland.is.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi miðvikudaginn
25. maí fyrir kl. 16.00 Í Skátamiðstöðina Hraunbæ
123.
Úthlutun verður föstudaginn 27. maí kl. 16.00 í Skáta-
miðstöðinni, Hraunbæ 123. Aðeins er úthlutað til
þeirra er greitt hafa leyfisgjald.
Vakin er athygli á því, að lausasala frá tjöldum og á
hátíðarsvæðinu er stranglega bönnuð.
Gjald v/ söluleyfa ásamt uppsettu sölutjaldi og
söluborðii er:
Dagsölustæði : kr. 23.500,-
Dag- og kvöldsölustæði: kr. 27.500,-
Stæði fyrir sölutjöld er ekki veitt einkaaðilum, heldur
einungis félögum og samtökum sem sinna æskulýðs-,
íþrótta- og félagsstarfi í Reykjavík.
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur og Skátasamband
Reykjavíkur.
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar:
Langholtsskóla – múrviðgerðir og endursteiningu –
Útboð nr. 897 D.
Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss
Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 27. maí 2005, kl 10:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur
10567
Endurgerð lóðar við leikskólann Geislabaug
– Útboð nr. 957.
Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000, frá kl. 13:00, 18. maí 2005, í
upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 30 maí 2005, kl. 14.30 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
10568
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
F.h. Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar er
óskað eftir umsóknum hönnuða um að fá að taka
þátt í lokuðu útboði á Evrópska efnahagssvæðinu
vegna verksins:
Suðurhlíðar Úlfarsfells – Gatnahönnun
Stærð verkefnisins er lauslega metið eftirfarandi:
Heildarflatarmál svæðis u.þ.b. 56 ha
Lengd gatna „ 6,2 km
Lengd stíga „ 2,4 km
Lengd ræsa utan gatna og stíga „ 2,0 km
Fjöldi útboðsgagn „ 4 – 6 stk
Áætluð verklok eru í lok júlí 2007.
Forvalsgögn verða afhent í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykja-
víkur, frá miðvikudeginum 18. maí 2005.
Umsóknum og forvalsgögnum skal skilað fyrir kl.14:00 mánudag-
inn 30. maí 2005 í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
10562
Nánari upplýsingar er að finna á: www.reykjavik.is/utbod