Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 64
ÞAÐ ER PÆJU-
LEGT að vera í
flauelsbuxum
við stígvél eða
bara dansskó.
Þær fást í
Spútník.
LEIKKON-
AN Keira
Knightley
spókaði sig í
hnébuxum úr
gallaefni í Lund-
únum á dögunum.
HÖNNUÐIR voru ekki
að finna upp hjólið þeg-
ar hnébuxurnar
voru sýndar.
Hér sést fyrir-
sætan Mar-
ella pósa í
hnébuxna-
dressi árið
1970.
Í VERSLUN-
INNI SPÚTNÍK
fást hnébuxur
úr gallaefni sem
eru æði smart.
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
Spillta kynsló›in
Fólk virðist sjaldan þreytast á því að finna nöfn á mína kynslóð.
Lengst af vorum við kölluð X-kynslóðin en svo höfum við verið köll-
uð krúttkynslóðin, pítsukynslóðin og lyklakynslóðin, svo einhver
nöfn séu nefnd. Ef ég ætti að velja nafn á okkur myndi ég kalla okk-
ur spilltu kynslóðina en það er bara af því flestir haga sér eins og
bestíur þegar kemur að neyslu. Flestir hafa það allt of gott þrátt
fyrir að vera kvartandi yfir hinu og þessu. Þegar ég var lítil var tal-
að um að fólk væri að byggja. Foreldrar minnar kynslóðar keyptu
sér hús og komu þeim í stand smátt og smátt. Á þeim tíma voru eng-
in kreditkort og fólk gat ekki labbað inn í bankann til að fá yfirdrátt.
Í þá daga var sparað. Í dag er keypt íbúð eða hús, allt gert tipp topp
áður en flutt er inn og nýtt innbú keypt í heilu lagi. Meðfram þessu
er farið til útlanda þrisvar á ári því það er svo ódýrt að fljúga á
milli. Heimilisbíllinn þarf helst að vera nýr og í fleirtölu. Hjá spilltu
kynslóðinni fer líka dágóður skildingur í alls kyns fegrunardót eins
og klippingar og snyrtingar.
Í raun gerum við allt sem okkur langar til og sú tilfinning að láta
sig verulega langa í eitthvað og safna fyrir því er ekki til í orðaforða
þessarar kynslóðar. Þegar ég leiði hugann að þessu verður mér oft
óglatt. Ég hugsa til þess þegar við fjölskyldan borðuðum fisk fimm
sinnum í viku og ef það var keypt sætt morgunkorn var því skipt í
nákvæmlega fjóra parta á milli okkar systkinanna. 250 grömm á
mann. Manni fannst það frekar súrt í þá daga en í dag er ég þakklát
og ég elska dagana þegar ég eyði engum peningum. Þegar kemur að
fatakaupum er líka spreðað út í eitt. Málið er þó að persónulegur og
fallegur fatastíll er ekki fenginn með því að vera alltaf í nýjum föt-
um. Auðvitað er gaman að kaupa sér eina og eina flík og það veitir
mikla ánægju en það verður að fara milliveginn. Kúnstin við að
vera smart er að kunna að blanda saman gömlu og nýju og íhuga
fatakaupin vandlega. Það er nefnilega mun líklegra að þú gerir
tískumistök í flýti. Það er til dæmis alveg nóg að eiga eitt hippapils
og ein kúrekastígvél og gerir mann alveg jafn glaðan.
44 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
Eitt af „über“ svölustutískutrendum sumarsinseru hnébuxur. Þær eru
sniðugar fyrir þær sem vilja sýna
bera leggi en nenna ekki að vera í
pilsum eða bara fyrir þær sem
hafa smekk fyrir fallegum flík-
um. Í sumartískunni eru nokkur
afbrigði af þeim sýnileg. Galla-
hnébuxur eru mest áberandi. Þær
eru þröngar yfir lærin og ná niður
að hnésbótum. Margar af þeim
eru ekki faldaðar að neðan heldur
einungis klipptar. Það er æði snið-
ugt enda auðvelt fyrir kvenþjóð-
ina að föndra slíkar buxur heima
hjá sér án þess að vera sérlega
handlagnar. Eina vandamálið sem
gæti skapast er þegar klippt er
beint. Það verður þó að gæta
þess að buxurnar séu örugg-
lega í hárréttri sídd, alls ekki of
síðar og alls ekki of stuttar. Þær
verða að nema við hnésbót
ef þær eiga að vera klæði-
legar. Við þessar hnébuxur
er fallegt að vera í mynstr-
uðum gatasokkabuxum eða
hnésokkum. Þegar sólin
fer að ylja okkur er smart
að vera berleggjaður, mun-
ið bara að vera með vel
snyrta fætur og leggi.
Hitt afbrigðið af hnébux-
um er víðar í svokölluð-
um safarístíl. Þær koma
gjarnan í ljósum litum
eða hermannamynstri.
Þær eru víðar og sumar hafa
föll að framan eins og alvöru-
uppabuxur níunda áratugar-
ins. Við þessar buxur er flott að
vera í aðsniðnum jökkum, bolum
og toppum og blanda má tískuá-
hrifunum skemmtilega við þessar
buxur. Hvað skótauið varðar er
fallegt að vera í stígvélum við eða
í penum og dömulegum sumar-
skóm. Sandalar með fylltum hæl
myndu gera ýmislegt fyrir heild-
arútlitið enda gera þeir hverja
konu æði spengilega.
martamaria@frettabladid.is
Taktu
þátt þ
ú gæt
ir unn
ið:
Sings
tar po
p
Sings
tar hlj
óðnem
a
Geisla
diska
Kippu
r af Fa
nta
DVD m
yndir
og ma
rgt fle
ira!
Send
u SM
S
skey
tið
BTL
SSF
á
núm
erið
190
0
og þ
ú gæ
tir
unn
ið!
11.
hver
vinn
ur.
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
D3
30 ný
lög!
Svalasta sumartrendið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
H
EL
G
AD
Ó
TT
IR
O
G
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
ÞESSAR ERU með
sérlega fallegu sniði.
Karen Millen.
SÖNGKONAN Christina Aguilera tekur
sig vel út í svörtum hnébuxum.
DIESEL er alltaf með trendin á hreinu. Gallerí Sautján.SAFARÍ hnébuxur frá Karen Millen.
FYRIR ÞÆR sem eru löngu hættar að
nenna að sauma út geta keypt sér bróder-
aðar töskur í Spútník.
SANDALAR með fyllt-
um hæl eru æði flottir
við hnébuxur. Þeir eru
frá Karen Millen.
HÖNNUÐURINN Nicole Miller sýndi
hnébuxur í sumarlínu sinni.
Það er ekkert mikilvægara en að hylja andlitið fyrir sólinni til að koma í veg
fyrir ótímabæra öldrun húðarinnar. Þá er gott að hafa skyggni við höndina
til að geta smellt því á sig
þegar tækifæri gefst. Það er þó ekki sama
hvernig skyggnið lítur út því skyggni er
ekki sama og skyggni. Skyggni alsett
pallíettum gerir heilmikið fyrir heild-
arútlitið og passar vel við galla-
buxnatískuna sem ræður ríkj-
um núna. Þetta forláta
skyggni fæst í versluninni
Spútník og er það til í fleiri lit-
um. Með þetta skyggni að vopni
áttu að geta farið sæl inn í sumarið.
Pallíettuskyggni