Fréttablaðið - 17.05.2005, Side 2
2 17. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Ofbeldisverk á Seltjarnarnesi:
Smástrákur skilinn eftir í ruslatunnu
LÖGREGLA Tveir fjórtán piltar lok-
uðu sjö ára dreng ofan í rusla-
tunnu, skorðuðu undir svölum og
skildu eftir á Seltjarnarnesi síðasta
þriðjudagskvöld. Stúlka heyrði
bank í tunnunni 30 til 40 mínútum
síðar og bjargaði drengnum.
Móðir drengsins gaf skýrslu
hjá lögreglu á þriðjudag og aftur á
miðvikudag. Hún segir strákinn
bera sig vel og hafa trú á að lög-
regla bjargi málum, en sjálf hefur
hún þungar áhyggjur. Við eftir-
grennslan kom í ljós að piltarnir
höfðu áður lokað drenginn inni
með sama hætti.
Drengirnir sem að verki voru
eru bræður sem átt hafa erfitt
og hafa mál þeirra ítrekað kom-
ið inn á borð bæði skóla- og fé-
lagsmálayfirvalda á Seltjarnar-
nesi. Í kjölfar árásarinnar á
drenginn var annar sendur í
neyðarvistun á meðferðar-
heimilið að Stuðlum.
Snorri Aðalsteinsson, félags-
málastjóri á Seltjarnarnesi,
segist lítið annað geta sagt en að
málið sé á borði barnaverndar-
yfirvalda. Hann segir erfitt um
að spá hvort hægt hefði verið að
koma í veg fyrir atvikið, eða
hvort fyrirbyggja að það endur-
taki sig. „Til eru ýmis úrræði
sem grípa má til, en öll meðferð-
arúrræði eru tímabundin,“ segir
hann. - óká
fireka›ur og sjóblautur
vi› brennandi bátinn
Skipstjóri mótorbátsins Hrundar BA-87 frá Patreksfir›i mátti hafa sig allan vi› a›
koma sér frá bor›i eftir a› eldur kom upp í bátnum. Hann komst í björgunarbát
og var bjarga› fla›an í annan bát, en reykurinn frá brennandi bátnum sást ví›a a›.
SLYSFARIR Mannbjörg varð þegar
mótorbáturinn Hrund BA-87
brann á Patreksfjarðarflóa fyrir
klukkan fimm aðfaranótt mánu-
dags. Skipstjóri bátsins komst við
illan leik í björgunarbát þaðan
sem honum var bjargað. Hann féll
illa þegar hann var í flýti að koma
sér frá borði og lenti hálfur í sjón-
um við að fara í börgunarbát.
Júlíus Sigurjónsson, skipstjóri
á Ljúfi BA-302, sagðist hafa séð
mikinn svartan reyk stíga til him-
ins þar sem hann var við veiðar
um 30 mílur norðvestur af Pat-
reksfirði. „Ég hafði grun um að
þetta væri Hrundin, ég hafði séð
hana sigla hjá þegar ég vaknaði
um nóttina. Það fyrsta sem ég
gerði var að hringja í 112 sem gaf
mér samband við Gæsluna,“ sagði
hann en samkvæmt upplýsingum
frá stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar var þetta fimm mínútum
fyrir fimm um morguninn. „Þegar
þetta var hafði ekkert neyðarkall
borist frá bátnum en þeir sögðu
mér að hann væri nýdottinn út af
sjálfvirku skyldunni. Ég setti
strax á fulla ferð og var kominn
að bátnum svona korteri síðar.
Þetta voru langar fimmtán mínút-
ur að mér fannst, en fyrst um sinn
vissi ég ekki hvort það hafði orðið
mannskaði. Á leiðinni sá ég neyð-
arblys og létti mjög að það skyldi
vera lífsmark.“ Þegar Júlíus bar
að var skipstjóri Hrundar kominn
í björgunarbát, en báturinn sjálf-
ur logaði stafna á milli. „Mér gekk
sæmilega að koma honum um
borð, var enda mjög stressaður,
adrenalínið flæddi og ég fékk
þann kraft sem þurfti,“ sagði
Júlíus, en skipbrotsmaðurinn var
mjög þungur, enda blautur og í
kraftgalla. „Hann hefur lent í
sjónum við að komast í bátinn og
var mjög dasaður og þreklítill.
Hann hafði slasast á höfði og lík-
lega víðar.“ Júlíus segist hafa gef-
ist upp við að taka björgunarbát-
inn um borð og kallað til aðstoðar
bátinn Kríuna BA-75 við það.
Hann tók stímið í land til að koma
manninum sem fyrst á sjúkrahús.
„Ég hafði grun um að hann hefði
andað að sér eitruðum reyknum,“
sagði hann en heimferðin tók lið-
lega einn og hálfan tíma.
Lögreglan á Patreksfirði rann-
sakar bátsbrunann, en slík rann-
sókn fer alltaf fram þegar bátur
ferst, auk þess sem sjópróf eru
haldin. Lögregla gerði ráð fyrir að
skýrslutaka færi fram í gærkvöld
og í dag. -hms/óká
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Boeing 747
þota frá Air Atlanta lenti í Kína klukkan
14.00 að staðartíma með fjölmennan ís-
lenskan hóp.
Forsetinn kominn til Kína:
Hyggst ræ›a
mannréttindi
HEIMSÓKN Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, kom til Kína í
gær þar sem hann mun dvelja í 5
daga. Zhang Yesui, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Kína, tók á móti
Ólafi og fylgdarliði á flugvellin-
um í gærmorgun. Eiður Guðna-
son, sendiherra Íslands í Kína, og
Eygló Helga Haraldsdóttir sendi-
herrafrú héldu móttökuboð á
Hilton-hótelinu í Peking.
Í dag fundar Sigríður Anna
Þórðardóttir umhverfisráðherra
með ráðherra umhverfismála í
Kína. Ráðherrarnir munu ræða
forvarnir við jarðskjálftum og
önnur sameiginleg umhverfismál.
Þá ætlar Ólafur að ræða
mannréttindamál við kínversk
ráðamenn. - mh
SPURNING DAGSINS
Georg, er fletta stö›ulækkun?
„Nei, þetta er stöðuhækkun.“
Georg Lárusson er forstjóri Landhelgisgæslunnar
sem flutti á dögunum stjórnstöð sína úr 110 fer-
metra þakhýsi niður í 60 fermetra kjallara á
meðan ný álma er í smíðum.
LÖGREGLUMÁL
PRÍSUNDIN VIÐ IÐUNNI Drengur í fyrsta bekk mátti í rúman hálftíma dúsa ofan í rusla-
tunnu skorðaður undir svölum við fataverslunina Iðunni á Seltjarnarnesi í síðustu viku.
Hann gat ekki opnað lok tunnunnar nema rétt til að koma út fingrunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Mannrán í Afganistan:
Ítalskri konu
rænt í Kabúl
KABÚL, AP Vopnaðir menn rændu
ítalskri konu í miðborg Kabúl í gær.
Konan starfar fyrir bandarísku
hjálparsamtökin CARE í borginni.
Sjónarvottar segja fjóra menn hafa
neytt hana inn í hvíta Toyota-bif-
reið snemma í gærmorgun.
Afgönsk yfirvöld töldu að konan
væri kanadísk en yfirmaður henn-
ar og ítalskur embættismaður í
Afganistan staðfestu að hún er
ítölsk. Yfirmaður hjálparsamtak-
anna sem konan starfar hjá vildi
ekki gefa upp hvað hún heitir. Of-
beldismenn í Kabúl hafa haft í hót-
unum við útlendinga í Kabúl
undanfarið og nýlega lést starfs-
maður Sameinuðu þjóðanna í
sprengjutilræði á kaffihúsi. ■
Rangárvallaafrétt:
Vélsle›ama›-
ur slasa›ist
SLYSFARIR Þyrla landhelgisgæslunn-
ar sótti vélsleðamann með opið
beinbrot á fæti inn að Hrauntind-
um í Rangárvallaafrétt um miðjan
dag í gær og flutti á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi. Einnig
voru kallaðar til björgunarsveitir
frá Hellu og Hvolsvelli.
Fyrsta hjálparbeiðni vegna
slyssins barst um klukkan eitt, en
beiðni um aðstoð þyrlunnar barst
klukkan 14.16. Þyrlan var lent með
manninn í Reykjavík klukkan
16.19. Að sögn lögreglu á Hvols-
velli hafði maðurinn ekið sleða sín-
um fram af snjóhengju og fótbrotn-
að við það. - óká
VERKFÆRUM STOLIÐ Fyrir hádegi
í gær barst lögreglunni í Kefla-
vík tilkynning um að brotist hefði
verið inn í verkfærakerru í ná-
grenni við Djúpavatn. Eigendur
kerrunnar telja að úr henni hafi
verið stolið verðmætum fyrir um
1,5 milljónir króna, en meðal þess
sem stolið var eru tvær litlar raf-
stöðvar og verkfæri sem notuð
eru við að girða land. Ekki er vit-
að hver var að verki, en málið er
í rannsókn.
HRAÐAKSTUR VIÐ HVOLSVÖLL 25
voru teknir fyrir of hraðan akst-
ur í umdæmi lögreglunnar á
Hvolsvelli frá því á föstudag og
fram á mánudag. Flestir voru á
milli 120 og 130 kílómetra hraða.
LÖGREGLUMÁL
Þrítug kona í Neskaupstað:
Féll sjö metra fram af svölum
SLYS Kona á þrítugsaldri slasaðist
mikið þegar hún féll sjö metra
niður á steyptan kant og stétt
fram af svölum á þriðju hæð fjöl-
býlisshúss í Neskaupstað um
tvöleytið aðfaranótt mánudags.
Hún fór í aðgerð á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað og í
sjúkraflug til Reykjavíkur, en er
úr lífshættu.
Að sögn lögreglu virtist sem
konan hefði verið læst úti og ætl-
að að fara á milli svala hússins úr
íbúð sem stóð tóm og ólæst, inn í
sína eigin íbúð. Taldi lögregla að
miðað við aðstæður væri mesta
mildi að konan hefði lifað af fallið,
en Jón H. H. Sen, yfirlæknir á
Fjórðungssjúkrahúsinu, segir all-
ar líkur á að konan nái sér að
fullu. „Stúlkan var með brjóst-
holsáverka sem gerð var aðgerð á
hér í [fyrri]nótt og svo beinbrot,
en öðru leyti er kraftaverk hvað
hún slapp vel. Þarna var ekkert
sem dró úr fallinu,“ sagði hann, en
konan var svo flutt með sjúkra-
flugi á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús til sneiðmyndatöku og
frekari rannsóknar. „Þegar áverki
er svona mikill þá geta verið innri
skaðar sem ekki er hægt að greina
nema með sneiðmyndatæki,“
sagði Jón, en búist er við að konan
fari af gjörgæsludeild á almenna
deild í dag. - óká
BLOKK Í NESKAUPSTAÐ Svalirnar sem konan féll fram af eru á þriðju hæð og um sjö
metra fall niður á steinsteyptan kant og stétt. Mildi þykir að konan komst lífs af og hún
nær sér trúlega að fullu.
M
YN
D
/E
LM
A
G
U
Ð
M
U
N
D
SD
Ó
TT
IR
JÚLÍUS SIGURJÓNSSON Júlíus, sem sagður er rammur að afli, kom að Hrund BA alelda og
þurfti að beita öllum sínum kröftum til að bjarga sjóblautum og þrekuðum skipstjóra
mótorbátsins um borð til sín.
HRUND BA-87 Báturinn sem var alelda á
skammri stund á Patreksfjarðarflóa fyrir
klukkan fimm í gærmorgun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AU
KU
R
M
ÁR
S
IG
U
RÐ
SS
O
N