Fréttablaðið - 17.05.2005, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 2005
Við Laufásveg stendur virðu-
legt steinhús sem ber nafnið
Þrúðvangur. Húsið á sér langa
og merkilega sögu og hefur
þjónað sem heimili fjölda fólks
fyrir utan að þjóna gyðjum
mennta og tónlistar. Í dag búa
hjónin Páll V. Bjarnason arki-
tekt og Sigríður Harðardóttir
ritstjóri í húsinu og í kjallaran-
um hafa dóttir þeirra, Ólöf, og
maðurinn hennar, Guðmundur
Albert Harðarson, hreiðrað um
sig með syni sína tvo.
Páll og Sigríður keyptu húsið
árið 1990 og gerðu upp efri hæð-
irnar, en kjallarinn sat eftir
þangað til nýlega að dóttir
þeirra kom heim frá námi í arki-
tektúr. Hún hefur nú innréttað
kjallarann frá grunni fyrir sig
og fjölskyldu sína.
Páli þykir afar vænt um hús-
ið og þekkir sögu þess vel.
„Húsið er byggt árið 1918, en
það var Margrét Zoëga sem
byggði það. Hún átti og rak Hót-
el Reykjavík við Austurvöll sem
brann í brunanum mikla árið
1915, en þetta hús byggði hún
þremur árum seinna.“
Páll segist ekki vita ástæðu
þess að ekkjan réðst í byggingu
þessa stóra húss, orðin frekar
fullorðin og börnin löngu farin
að heiman.
„Margrét var tengdamóðir
Einars Benediktssonar,“ segir
Páll. „Eftir brunann 1915 bjó
hún í Höfða hjá Einari og Val-
gerði dóttur sinni, og þegar hún
byggði þetta hús hefur hún
greinilega verið undir einhverj-
um áhrifum frá Höfða. Þegar
Einar og Valgerður komu heim
frá Kaupmannahöfn árið 1921
leigðu þau hér og bjuggu hjá
Margréti til ársins 1927, að þau
fluttu út aftur. Margrét seldi
svo húsið Kjartani Gunnlaugs-
syni stórkaupmanni árið 1928.
Hann var forstjóri fyrirtækis
sem hét Helgi Magnússon og Co.
sem var eitt stærsta fyrirtækið í
byggingarvörum og slíku. Sú
fjölskylda átti húsið til ársins
1951, en þá keypti Tónlistar-
félagið í Reykjavík húsið og hér
var Tónlistarskólinn í Reykja-
vík í tíu ár. Hér var kennt á öll
hugsanleg hljóðfæri og tónlist
og söngur ómaði um húsið, enda
sérlega góður andi hér,“ segir
Páll brosandi.
Stórslysi afstýrt
„Þrúðvangur var seldur
Framkvæmdabankanum árið
1961. Þá var bankastjóri þar dr.
Benjamín Eiríksson og hann
keypti líka húsið númer 9 við
Laufásveginn og tvö hús við
Miðstrætið, allt til niðurrifs því
hann hugðist byggja stórhýsi
fyrir Framkvæmdabankann á
lóðunum. Sem betur fer varð
ekkert úr því slysi, en í staðinn
leigði Framkvæmdabankinn
Menntaskólanum í Reykjavík
húsið fyrir kennslustofur.
Menntaskólinn var svo hér til
ársins 1999 þegar við keyptum.“
Þrúðvangur er um það bil 450
fermetrar með viðbyggingunni
sem Kjartan Gunnlaugsson lét
byggja, líklega þegar þau hjón
voru orðin eldri og komust illa
milli hæða. Nú er teiknistofa Páls
og Ólafar í þeim hluta hússins.
Páll er formaður Torfusam-
takanna og mikill húsverndar-
maður. Hann tók húsið í gegn
frá grunni, skipti um lagnir og
gólfefni, og klæddi það að innan.
„Við verðum að passa að
afmá ekki söguna, það verða
stórslys öðru hvoru en við
höfum sem betur fer skánað
hvað þetta varðar,“ segir Páll.
Heiðni og kristni togast á
„Í Þrúðvangi hafa í gegnum
tíðina glatast ómetanleg verð-
mæti eins og tréskurðamyndir
eftir Ríkarð Jónsson, en nokkr-
ar þeirra prýða húsið enn. Rík-
arður skar út í stofuhurðir og
gerði rismyndir fyrir ofan hurð-
irnar. Hér voru til dæmis út-
skornar rennihurðir milli stof-
anna en þær eru glataðar. Hins
vegar eru sem betur fer nokkr-
ar rismyndanna hér enn. Það er
eitthvað trúarlegt hér í gangi
sem ég átta mig ekki alveg á,“
segir Páll hlæjandi. „Ein mynd-
anna er með tilvitnun úr Biblí-
unni, „Ef að drottinn ekki bygg-
ir húsið erfiða smiðirnir til
einskis“, en svo er hinum megin
mynd úr norrænu goðafræðinni,
af þremur valkyrjum sem ganga
um beina í Valhöll. Þær eru
nafngreindar og heita Hildur,
Þrúður og Hlökk. Það togast hér
eitthvað á úr heiðni og kristni en
ég hef aldrei komið því alveg
saman hvað það á að þýða. En
andinn hér er góður og húsið
stórkostlegt.“ edda@frettabladid.is
„Ef að drottinn ekki
byggir húsið...“
Bætt líðan
með betra lofti
Nánari upplýsingar á www.ecc.is og í síma 511 1001
Skúlagötu 63 - 105 Reykjavík
Hreinsar lof t ið | Eyðir lykt | Drepur bakter íur
NÝTT! LOFTHREINSITÆKI
Í stofunni er nýju og gömlu blandað saman.
Skemmtileg skil milli flísategunda.
Páll V. Bjarnason arkitekt er mikill hús-
verndarmaður. Hér er hann með barna-
barni sínu, Herði Sindra Guðmundssyni.