Fréttablaðið - 07.06.2005, Page 36
Björn Jörundur Friðbjörnsson og
Bryndís Ásmundsdóttir leikkona
og söngkona eru að fara að syngja
með Stuðmönnum í sjónvarpsþætti
á Ítalíu. Bryndís er þó ekki að taka
við af Hildi Völu Einarsdóttur sem
söngkona sveitarinnar í sumar, að
sögn Jakobs Frímanns Magnússon-
ar stuðmanns. „Þetta er í rauninni
alveg ótengt öllu sem við höfum
verið að gera,“ segir Jakob. „Þetta
er bara ein stutt ferð, hún hleypur
í skarðið fyrir Hildi Völu eina
helgi á Ítalíu. Hildur Vala var búin
að ráðstafa sér á þremur stöðum
fyrir þessa helgi og þá leystum við
málið með því að fá Bryndísi í stað
þess að Hildur frestaði sínum
plönum,“ segir hann. Bryndís, sem
var um tíma umsjónarmaður
Djúpu laugarinnar, er lærð leik-
kona og ætti því að geta haldið
uppi stuðinu með Stuðmönnum.
Hún hefur einnig reynslu af söng
því hún hefur áður sungið með
Búðarbandinu og Íslenska fánan-
um.
„Stuðmenn eru að halda merki
Íslands á lofti og í því samhengi
var talið rétt að fá tvo íslenska
fánabera með til Ítalíu,“ segir
Jakob. Þar vísar hann til Bryndísar
og Björns Jörundar félaga hennar í
Íslenska fánanum. „Íslenski fáninn
er sú hljómsveit sem Björn Jörund-
ur stofnaði í fyrra og hefur komið
fram við hátíðleg tækifæri. Björn
og Bryndís eru þar í fremstu víg-
línu. Við Stuðmenn höfum þekkt
þau lengi og erum hrifin af þeim,“
segir Jakob. „Þau eru iðandi af já-
kvæðri lífsorku og gleði.“ Jakob
bætir við að framkoman í sjón-
varpsþættinum hafi kallað á fjöl-
raddaðan söng og því hafi Stuð-
menn fengið aðstoð fánaberanna.
Að sögn Jakobs var sveitin búin
að lofa sér í sjónvarpsþáttinn fyrir
talsvert löngu. Þátturinn er á veg-
um þýskrar sjónvarpsstöðvar sem
sendir út frá Ítalíu og er þetta í
þriðja sinn sem hljómsveitin kem-
ur fram í þættinum. „Þetta er bara
stutt innslag í skemmtiþátt sem
berst til tíu til tuttugu milljón
manna,“ segir Jakob.
rosag@frettabladid.is
30 7. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Ian Wright,knattspyrnugoð
úr Arsenal, var
staddur hér á
landi um helg-
ina. Hann var
á leiðinni til
Grænlands
og síðar
norðurpóls-
ins til þess
að taka
upp þátt
fyrir BBC.
Wright hefur
að ferli sínum
loknum á
græna vellinum tekist að slá í gegn
á skjánum og er
mjög vinsæll í
Bretlandi. Wright
spókaði sig meðal
annars á Akureyri í
þann stutta tíma
sem hann
var hér en
Hermann
okkar
Hreiðars-
son var
honum
innan
handar. Á
sunnudags-
kvöldið sást
Wright svo í
miðbæ
Reykjavíkur
ásamt hjóna-
kornunum
Hemma og
Rögnu Lóu.
Reykjavík er þétt setin af íþrótta-mönnum þessa dagana enda
bæði landsliðin í handknattleik og
knattspyrnu heima við æfingar og
keppni. Hinn nýi staður Kaffi Óliver
virðist vera að gera það gott þessa
dagana og landsliðsmennirnir í
knattspyrnu, sem fyrr um daginn
höfðu tapað fyrir Ungverjum, gerðu
sér glaðan dag þar inni. Það fór svo
ekki á milli mála hver var
kominn til landsins á
sunnudeginum þegar
Ólafur Stefánsson,
besti handknattleiks-
maður okkar, spókaði
sig á Laugaveginum,
glæsilegur til fara, en
hann hefur víst fest
kaup á íbúð á
Hverfisgötunni.
Lárétt: 1 tímamælir, 6 borg, 7 svar,
8 hvílt, 9 vörumerki, 10 verkfæri, 12 sam-
göngufyrirtæki, 14 blundur, 15 tvíhljóði,
16 á nótu, 17 framhandleggur, 18 skítur.
Lóðrétt: 1 dýrindis matur, 2 landspilda,
3 varðandi, 4 listamaður, 5 í röð, 9 drátt-
ur, 11 pússa, 13 romsa, 14 blaður,
17 píla.
Lausn.
Lárétt: 1klukka,6róm,7já,
8áð,9tab,10bor, 12svr, 14mók,
15au,16an,17öln,18saur.
Lóðrétt: 1krás,2lóð,3um,4kjarval,
5aáb,9tos,11bóna,13 runa,14mas,
17ör.
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Opið laugardaga frá 10-14.30
SIGIN GRÁSLEPPA
OG SJÓ SIGINN
FISKUR
SIGIN
RÁSLEPPA
OG KÆST SKATASTÓR H M R
,
Ávöxtur sambands Chris Martin
og Gwyneth Paltrow, Apple, vill
ekki sjá nýju plötuna með hljóm-
sveit pabba síns, Coldplay, X & Y,
sem kom út í gær, að sögn tónlist-
arvefjarins contactmusic.com.
Það eina sem Apple vill hlusta á er
íslensku strákarnir í Sigur Rós.
Apple hefur ekkert hlustað á
nýju plötuna með pabba sínum og
hún er varla sett á fóninn heima
hjá fjölskyldunni frægu. Þess í
stað fær tónlist Sigur Rósar að
hljóma, sem er að sögn Martins
uppáhaldshljómsveit Apple ásamt
Bítlunum. „Við spiluðum Sigur
Rós þegar Apple fæddist og það
er ekki hægt að koma í heiminn
við betri tóna,“ upplýsir Martin.
Það er því greinilegt að
stúlkukindin, sem aðeins er eins
árs, hefur mjög þroskaðan tónlist-
arsmekk og er strax orðin mikill
Íslandsvinur, án þess að hafa
komið hingað til lands.
Chris og félagar hans í Cold-
play eru hins vegar að leggja upp
í tónleikaferðalag sem hefst í
París nú á fimntudaginn en því
lýkur í Bandaríkjunum í lok sept-
ember. Það verður því forvitnilegt
að sjá hvort Coldplay láti sjá sig á
Klakanum eins og vinsælt er
meðal erlendra hljómsveita þegar
sveitin hefur lokið sér af í Banda-
ríkjunum.
freyrgigja@frettabladid.is
GWYNETH MEÐ APPLE Apple er greini-
lega með góðan tónlistarsmekk miðað við
aldur og heldur mikið upp á strákana í Sig-
ur Rós.
BRYNDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR Vildi lítið segja um samstarfið við
Stuðmenn enda er Hildur Vala aðalsöngkona sveitarinnar í sumar.
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON „Iðandi af jákvæðri lífs-
orku og gleði,“ segir Jakob Frímann um söngvarann.
STUÐMENN: Í SJÓNVARPSÞÆTTI Á ÍTALÍU
Björn og Bryndís í Stuðmenn
FRÉTTIR AF FÓLKI
...fær Birna Bjarnadóttir fyrir að
vera elsti rappaðdáandi lands-
ins. Hún fílar Snoop Dogg í botn
en eflaust eru fáir á hennar aldri
aðdáendur rapphundsins góða.
HRÓSIÐ
RÖNG MYND BIRTIST Í BLAÐINU
á sunnudag með viðtali við Hall-
grím Helgason rithöfund. Í stað
Hallgríms birtist mynd af
Björgólfi Guðmundssyni, for-
manni bankaráðs Landsbankans.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum. Jafnframt skal tekið
fram að Hallgrímur lítur engan
veginn á skáldsögu sína, Höfund-
ur Íslands, sem lykilskáldsögu
um Halldór Laxness þótt svo hafi
mátt skilja á því sem blaðamaður
hafði eftir honum. Hallgrímur
hafði hins vegar sagt blaðamanni
að sum dagblöð í Þýskalandi
teldu söguna vera lykilróman.
LEIÐRÉTTING
Dótið? Harley Davidson Fatboy, fimmtán ára afmæl-
isútgáfan.
Sem er? Ef þig langar til þess að líða eins kvik-
myndastjörnu, nú eða eins og rokkstjörnu, þá er
þessi fimmtán ára útgáfa af Harley Davidson Fatboy
málið. Þetta er klassísk hönnun með undirliggjandi
dempurum og krómfelgum. Ekki skemmir vélin fyrir
en hún verður 1550 cc. Eins og þeir sem til þekkja
vita hefur mikið verið lagt í þetta hjól og mun það
vera með mikið af krómi og mörgum aukahlutum.
Hvernig virkar það? Það virkar, svo mikið er víst.
Sjálfur Tortímandinn, Arnold Schwarzenegger, keyrði
um á Fatboy hjóli. Það er fyrirmynd allra japanskra
hjóla í dag og er í rauninni klassísk hönnun á mótor-
hjóli.
Hvar fæst það? Hjólið er væntan-
legt til landsins á næstu tveimur
vikum. Aðeins eitt hjól kemur til
landsins, en það verður svart og er
nú statt í Svíþjóð. Hjólið verður selt
í Harley Davidson búðinni á Grens-
ásvegi 16.
Hvað kostar það? Hjólið mun
kosta rétt rúmlega þrjár milljónir
sem er ekki mikið fyrir þá virðingu
sem þér hlotnast á vegum úti
þegar þú þeysist um á mótorfák og
hræðist ekki neitt.
DÓTAKASSINN
Apple vill bara Sigur Rós og Bítlana
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI