Fréttablaðið - 03.06.2005, Síða 8

Fréttablaðið - 03.06.2005, Síða 8
1Hvað heitir nýi bæjarstjórinn í Kópa-vogi? 2Hvar verður Landbúnaðarstofnunstaðsett? 3Við hverja leika Íslendingar landsleikí knattspyrnu á morgun? SVÖRIN ERU Á BLS. 46 VEISTU SVARIÐ? 8 3. júní 2005 FÖSTUDAGUR Lögreglan svarar gagnrýni í Dettifossmálinu: Gættum rannsóknarhagsmuna FÍKNIEFNAMÁL Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lög- reglunnar, segir vinnubrögð lög- reglunnar í Dettifossmálinu hafa verið eðlileg og gefur lítið fyrir gagnrýni sem kom fram hjá Jóni Magnússyni og Brynjari Níels- syni, hæstaréttarlögmönnum og verjendum tveggja sakborninga í málinu. „Vinnubrögð lögreglunnar í þessu tiltekna máli finnst mér vera eðlileg og í samræmi við að- ferðir sem notaðar eru í svona stórum málum“. Ásgeir varði sérstaklega þá að- ferð lögreglunnar að grípa ekki til aðgerða fyrr en heildarmynd væri komin á málið. „Það að bíða með inngrip í mál, þangað til allir aðilar sem að glæpnum koma eru orðnir viðriðnir málið, er sú að- ferð sem virkar best í svona mál- um, og er í raun eina aðferðin sem getur fært lögreglunni nógu góð- ar upplýsingar til þess að komast til botns í málinu“. -mh ÁSGEIR KARLSSON Telur vinnubrögð lögreglunnar í Dettifoss- málinu eðlileg og ver sérstaklega seint inn- grip lögreglunnar í málið. FRÍSTUNDABYGGÐ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn Reykja- víkur, segist ósáttur við að Orkuveita Reykjavíkur komi til með að taka þátt í uppbyggingu á frístundabyggð við Úlfljóts- vatn. „Ég tel það ekki hlutverk Orkuveitunnar að standa í starf- semi af þessu tagi. Eðlilegt er að bjóða öðrum að taka þátt í máli af þessum toga en ég er ekki sammála þessari aðferð. Þetta mál þarf að ræða í borgar- stjórn,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. ■ Skoðanakönnun: Vilja halda í flugvöllinn KÖNNUN Meirihluti landsmanna, eða 55 prósent, vill hafa Reykja- víkurflugvöll þar sem hann er, samkvæmt könnun IMG Gallup. Mikill munur er þó á viðhorfi eftir búsetu og fylgi við stjórn- málaflokka. Rúmur helmingur íbúa á höfuðborgarsvæðinu vill færa flugvöllinn en rúm 68 prós- ent íbúa á landsbyggðinni vilja flugvöllinn áfram þar sem hann er. Meirihluti Vinstri grænna og Samfylkingarfólks vill flugvöllinn burt en fylgismenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks eru á móti því að færa flugvöllinn. -ghs SJÁVARÚTVEGUR Þegar dagbátar voru settir undir krókaaflamark og Al- þingi samþykkti línuívilnun voru aflaheimildir að andvirði um eins milljarðs króna færðar með handafli frá Vestmannaeyjum. Sindri Viðarsson útskriftarnemi bendir á þetta í lokaritgerð sinni frá sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri. Hann staðhæfir einnig að veiðigjaldið hafi kostað sjávarút- veginn umtalsverðar upphæðir. Magnús Kristinsson, útgerðar- maður í fyrirtækinu Bergur-Huginn ehf. í Vestmannaeyjum, segist sjálf- ur hafa glatað rúmlega 100 þorsk- ígildistonnum vegna þessara tilfærslna ríkis- stjórnarinnar. „Það er enda- laust verið að færa frá einum til annars og ég get ekkert borið hönd fyrir höf- uð mér í þessu máli. Þetta er einhver pólitískur skollaleikur um línuívilnun og að krókaaflamarks- bátar fái þetta og hitt og við alltaf látnir blæða þó maður sé búinn að fjárfesta í kvóta fyrir nokkra millj- arða“, segir Magnús. Magnús segir sína útgerð tapa tugum milljóna ár hvert vegna aðgerðanna. Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra segir veiðigjaldið auðvitað koma til með að kosta útgerðar- menn meira þegar það verði að fullu komið í framkvæmd en verða þó afkomutengt fyrir útgerðina. Árni vill ekki meina að Vestmanna- eyingar hafi tapað á krókaaflamarki vegna þess að fiskaflahámarksbát- ar hafi nú frjálsa sókn í svokallaðar aukategundir. Hann bendir einnig á að þegar breytingin var gerð hafi kvótinn verið aukinn, „þó Vest- mannaeyingar hafi fengið lægri prósentu fengu þeir samt enn sama magnið,“ segir Árni. „Þegar til lengri tíma er litið og framtíðarvið- gangs fiskistofnsins skiptir engu máli hvort fiskurinn er veiddur inn- an aflamarks eða frjálsri veiði, hann er jafn dauður fyrir það. Það var einungis verið að færa þennan hóp inn í aflamarkið til að ná betri stjórn á veiðunum og það tókst svo vel að nú er staðan sú að aflamark í ýsu hefur aldrei verið meira og það er Vestmannaeyingum til góðs,“ segir Árni. Árni viðurkennir að vegna eðlis útgerðar í Vestmannaeyjum hafi línuívilnunin valdið því að þar sé minna veitt. oddur@frettabladid.is LÖGREGLUFRÉTT BÍLVELTA UPPI UNDIR BÚRFELLI Bíll valt á Landvegi til móts við Rjúpnavelli, um níu kílómetra frá Galtalæk. Bílinn, sem var pallbíll með hýsi á pallinum, eyðilagðist í veltunni. Þýskt par, sem var í bíln- um, slapp við meiðsli. Mildi þykir að ekki fór verr. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 3 3 3 2 VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON „Þetta mál þarf að ræða í borgarstjórn.“ Hafa tapa› milljar›i Línuívilnun og krókaaflamark hafa kosta› Vest- mannaeyinga einn milljar› króna sí›an kerfi› var teki› upp, samkvæmt n‡rri úttekt. ÁRNI MATHIESEN VESTMANNAEYJAR Sindri Viðarsson, útskriftarnemi í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri, heldur því fram í lokaritgerð sinni að línuívilnun og krókaaflamark hafi kostað Vestmannaeyjar einn milljarð króna. DÓMSMÁL Hæstiréttur mildaði í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Jóni Þorra Jónssyni, sem dæmdur var fyrir að ræna útibú Búnaðar- bankans við Vesturgötu. Hæstiréttur dæmdi Jón Þorra í fimmtán mánaða fangelsi en Hér- aðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt hann í tveggja ára fangelsi. Jón Þorri játaði sök og viður- kenndi bótaskyldu sína vegna brot- anna. Grunur lögreglu beindist fljótt að Jóni Þorra þar sem hún taldi sig þekkja hann á myndum öryggis- myndavéla á svæðinu, þar sem hann kom inn með lambhúshettu á höfði og með hníf í hendi. - mh FRÁ VETTVANGI Ránið í Búnaðarbankaúti- búinu við Vesturgötu var eitt nokkurra bankarána sem framin voru með stuttu millibili á höfuðborgarsvæðinu. Dæmdur fyrir bankarán í Vesturgötu: Fékk dóminn milda›an JAPAN TÝNDRA HERMANNA LEITAÐ Japan- ar hafa kallað erindreka sína heim frá Filippseyjum en þeir voru sendir þangað til að leita tveggja japanskra hermanna sem sögur segja að hafi lifað í frumskógum eyjanna allt frá seinni heimsstyrj- öldinni. Erindrekarnir hafa reynt að hafa uppi á mönnunum síðan fyrir helgi en ekki tekist það. Oddviti sjálfstæðismanna: Ósáttur vi› Orkuveitu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.