Fréttablaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 16
3. júní 2005 FÖSTUDAGUR Bobby Fischer leitar enn að íbúð: Sækist eftir kyrr› FISCHER Skáksnillingurinn Bobby Fischer leitar enn að íbúð til kaups í Reykjavík. Upphaflega var ætlun Fischers að festa kaup á íbúð í Kvosinni í hjarta Reykjavíkur. Hann hefur enn ekki fundið draumaíbúðina og hefur þess vegna ákveðið að líta til annarra hverfa í Reykjavík enda sækist hann eftir kyrrð. Einar S. Einarsson, sem komið hefur að málum Fischers hér á landi, segir Fischer vel geta unað við að búa í öðrum hverfum en mið- borg Reykjavíkur. „Hann hefur ferðast með strætisvagni og það er ekkert því til fyrirstöðu að hann búi utan miðborgarinnar. Hann vill helst búa í hljóðlátu hverfi,“ segir Einar. Fischer leitar nú að íbúð til leigu með húsgögnum enda vill hann vanda valið þegar kemur að kaup- um. Einar segir Fischer ætla að fjárfesta til langtíma og því vilji hann vanda valið og bíði eftir réttu eigninni. Að öðru leyti er það að frétta af skákmeistaranum að hann nýtur góða veðursins í Reykjavík og ræðir við fólk um málefni líðandi stundar. - hb MENNTAMÁL Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavík- urborgar, telur að með nýstofnuðu menntasviði borgarinnar geti sam- starf leikskóla og grunnskóla eflst til muna. Menntasviðið tekur við starf- semi Leikskóla Reykjavíkur og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. „Við teljum okkur geta með þessu eflt bæði faglegt og þjónustulegt samstarf leikskóla og grunnskóla. Við erum að horfa til þess að geta minnkað skilin milli leikskóla og grunnskóla, svo þekkingin geti með auðveldari hætti farið á milli þessari tveggja stiga í skólakerf- inu,“ segir Stefán. Að auki telur Stefán að hagræð- ing í rekstri geti náðst, þótt starfs- fólki verði ekkert fækkað. „Starfs- fólkið ætti að geta nýst betur með þessum hætti. Höfuðmarkmiðið með þessum breytingum er ekki endilega að hagræða heldur frekar að fagleg forysta á þessum tveimur stigum sem sameinast, nái saman um nýsköpun og þróun mótunar fyrstu þrepa skólastigsins“. Fyrrverandi fræðslustjóri Reykjavíkur, dr. Gerður G. Óskars- dóttir, verður sviðsstjóri mennta- sviðsins. Menntaráð Reykjavíkur, sem skipað er sjö kjörnum full- trúm, annast stefnumörkun og eft- irlit með starfsemi sviðsins. - mh BOBBY FISCHER Er til í að leggja á sig ferðir með strætisvagni fyrir réttu íbúðina. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R FÉLAGSMÁL „Ég varð fyrst og fremst dálítið sár,“ sagði Kristján Vilmundarson, 74 ára reykvískur ellilífeyrisþegi, sem fékk þau svör hjá stéttarfélagi sínu að hann væri of gamall til að fá styrk frá því til kaupa á heyrnartæki. Kristján kvaðst hafa heyrt um dæmi þess að fólk hefði fengið að- stoð stéttarfélagsins til að kaupa heyrnartæki. Sjálfur þyrfti hann að nota tvö og kostaði hvort um sig eitt hundrað þúsund krónur. Nú hefði verið komið að því að endurnýja tækin en hann hefði ekki treyst sér í svo mikil útgjöld á einu bretti. Því hefði hann ákveðið að kaupa bara eitt tæki. Í gærmorgun hefði hann svo hringt í stéttarfélagið sitt Eflingu til að athuga með styrkveitingu til kaupanna. „Jú, stúlkan sem varð fyrir svörum sagði að það gæti gengið og bað um kennitölu,“ sagði hann. „Þegar ég sagði henni kennitöluna sá hún að ég var orðinn 74 ára. Þá sagði hún að ég væri orðinn of gamall til að fá aðstoð frá verka- lýðsfélaginu mínu.“ Kristján kvaðst hafa greitt til verkalýðsfélagsins síns alla tíð og fengi vissulega ellilífeyri frá því að upphæð 54 þúsund krónur á mánuði. Aðra styrki hefði hann aldrei fengið frá félaginu. Hann hefði þurft að nota heyrnartæki í 25-30 ár og hann hefði aldrei sótt um aðstoð hjá félaginu fyrr en nú. „En mér fannst afar leiðinlegt að heyra að ég væri orðinn of gamall til að fá þessa aðstoð hjá þeim,“ sagði hann. „Mér skilst að úr því að ég er hættur að borga í félagið eigi ég ekki rétt á henni. Mér finnst þetta skjóta svolítið skökku við, því það er fyrst þegar maður er hættur að vinna sem maður getur þurft á stuðningi að halda. Eitt tæki kostar mig meira en ég fæ útborgað á mánuði, því það nær ekki hundrað þúsund- um.“ Sigurður Bessason, formaður Eflingar, sagði að samkvæmt reglugerð um sjúkrasjóð væri hann fyrir þá sem væru á vinnu- markaði. jss@frettabladid.is STEFÁN JÓN HAFSTEIN Telur sóknar- færi fyrir Reykjavíkburborg skapast með auknu samstarfi á yngstu þrep- um skólastigsins. Of gamall til a› fá heyrnartæki Reykvískur ellilífeyrisflegi fékk flau svör hjá stéttarfélagi sínu, flegar hann ba› um styrk til kaupa á heyrnartæki, a› hann væri or›inn of gamall. Hann kve›st hafa greitt í félagi› alla tí› og er sár vegna synjunarinnar. HEYRNARTÆKI Heyrnartækin eru dýr. Hvert stykki kostar um 100 þúsund krónur. Sjúkra- sjóðir stéttarfélaganna hafa stundum hlaupið undir bagga með félagsmönnum um kaup á slíkum hjálpartækjum. Nýstofnað menntasvið Reykvíkurborgar: Eykur samstarf milli leik- skóla og grunnskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.