Fréttablaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 26
Pasta Ítalía er vagga pastagerðar og um aldir hafa gengið sögusagnir um
uppruna pastans. Ein elsta sögnin er á þann veg að gyðjan Þalía hafi fyrir-
skipað Makareó nokkrum að smíða tæki úr járni sem útbúið gæti lengjur úr
hveitideigi. Síðan á hún að hafa soðið lengjurnar, bætt sósu út á og þannig
fætt marga sveltandi munna.
[ ]
Mamma eldar mat í moskunum
Alex hefur dvalið á Íslandi í um það bil fimm ár og segir að það sé alltaf nóg að gera á Purple Onion.
Skyndibitastaðurinn Purple Onion var opnað-
ur í Hafnarstræti 18, í miðbæ Reykjavíkur, fyr-
ir ekki svo löngu. Staðurinn er ekki eins og
flestir skyndibitastaðir í Reykjavík, á matseðl-
inum er bæði rússneskur og arabískur matur.
„Ég vissi að þú myndir spyrja mig að þessu,“ segir
Alex Masaid, eigandi Purple Onion, þegar blaðakona
spyr hann af hverju hann sé bæði með rússneskan og
arabískan mat. „Félagi minn, sem stofnaði með mér
staðinn en rekur hann ekki lengur, er frá Litháen og
þess vegna ákváðum við að bjóða upp á mat frá Aust-
ur-Evrópu sem Pólverjar, Litháar og Rússar kunna
að meta því þeir borða allir svipaðan mat. Síðan er ég
auðvitað með rétti frá Mið-Austurlöndum því ég er
sjálfur frá Jórdaníu,“ segir Alex.
Matseðillinn er athyglisverður og mjög fjöl-
breyttur. Þar eru rússneskar pönnukökur sem hægt
er að fá með hvaða fyllingu sem er, rússneskt Peli-
meni sem eru deigbollur fylltar með kjöti, ekki
ósvipað pasta í útliti, Sheshlek sem er maríneraður
kjúklingur á spjóti, Shawarma samloka og
Shawarma í ekta arabísku brauði, en Purple Onion er
eini staðurinn á Íslandi sem býður upp á arabískt
brauð. Einnig eru á matseðlinum nokkrir íslenskir
réttir eins og fiskifingur, ostastangir, fylltir jalapen-
obelgir og kjúklingavængir.
„Ég er ekki lærður kokkur en ég veit mjög mikið
um mat. Fjölskyldan mín býr öll í Bandaríkjunum og
þar vinnur mamma mín við að elda í moskunum. Hún
hefur kennt mér gríðarlega mikið um matreiðslu,“
segir Alex sem hyggst færa út kvíarnar á næstunni
enda nóg að gera á staðnum í Reykjavík. „Ég kom til
Íslands árið 2000 og þetta er fyrsti veitingastaðurinn
sem ég stofna. Mjög bráðlega ætla ég að opna staði
bæði í Keflavík og á Akureyri.“
Og Alex er aldeilis ekki í vanda með að segja
blaðakonu hver vinsælasti rétturinn á staðnum sé.
„Það er tvímælalaust Shawarma.“
lilja@frettabladid.is
Forsoðnar rófur, niðurskornar og
pakkaðar í lofttæmdar umbúðir,
bjóða upp á marga möguleika í mat-
argerð.
Það má skera þær í þunnar
sneiðar og nota í salöt, nota þær
með öðru grænmeti í gratín, græn-
metislasagna og fleira, stappa þær
saman við baunir og steikja græn-
metisbuff, og svo er tilvalið að
krydda þær á ýmsan hátt og grilla
þær eða steikja á pönnu, annað-
hvort einar sér eða með öðru græn-
meti.
Gott er að skera rófurnar í ten-
inga, krydda þær ef til vill með
engifer, kummini, pipar og salti og
pönnusteikja þær í olíu við meðal-
hita þar til þær eru farnar að
brúnast. Þetta er mjög gott sem
meðlæti með til dæmis svínakjöti
eða kjúklingi.
Ekki bara rófustappa
Rófur eru ekki bara góðar í rófustöppu eða með gamla,
góða slátrinu.
DEAKIN ESTATE:
Bragðmikið og þroskað vín
Deakin Estate er framleitt í Victoria, einu
frjósamasta og gjöfulasta svæði Ástralíu. Vín
Deakin úr Cabernet Sauvignon-þrúgunni þykir afar
kraftmikið og blaðið Herald Sun segir að það sé
óvenjulega kraftmikið og sérstakt og endurspegli
einkenni svæðisins betur en algengt sé um
áströlsk vín.
Sökum óvenjukaldra aðstæðna voru þrúgurnar í
þessu víni tíndar úr allmörgum víngörðum í lang-
an tíma. Þær voru því tíndar með það í huga að
þær hefðu náð fullum þroska til að úr yrði vín
með fallegum blæ og fullkomnu bragði Cabernet
Sauvignon-þrúgunnar. Í ferlinu voru notaðar amer-
ískar eikartunnur til að ná fram ristuðu eikar-
bragði sem félli vel að hinu ríka ávaxtabragði.
Þetta vín er bragðmikið þar sem fram koma
þroskuð ber með eikarívafi. Þetta vín er gott til
neyslu núna en má vel geyma í allt að þrjú ár. Fer
vel með öllu grilluðu kjöti, lamba-, svína- og
nautakjöti, einnig gott með grilluðum krydduðum
kjúklingi.
Verð í Vínbúðum 1.290 kr.
Shawarma er steikt á pönnu í ekta arabísku brauði.
Vinsælasti rétturinn. Shawarma er borið fram með þrem mismun-
andi sósum, fullt af grænmeti og mozzarella osti.
Forsoðnar rófur er hægt að nota á marg-
víslegan hátt í matargerð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Vince Neil er betur þekktur sem rokkari
en ætlar nú að deila vínást sinni með
heiminum.
Rokkað vín
VINCE NEIL HYGGUR Á STÓRTÆKA
VÍNFRAMLEIÐSLU.
Rokkstjarnan Vince Neil úr hljóm-
sveitinni Motley Crue ætlar að setja á
markað tvær tegundir af víni í sumar,
annars vegar Cabernet Sauvignon
árgerð 2003 og hins vegar Sonoma
Chardonnay árgerð 2003. Vínin verða
seld í Las Vegas, Los Angeles, Nas-
hville og New York fyrst um sinn en
verður síðan dreift á alþjóðamarkaði.
M
YN
D
G
ET
TY