Fréttablaðið - 03.06.2005, Qupperneq 30
Fatnaður fyrir börn á öllum aldri
Þórdís Lilja segir að verslunin Hnokkar og hnátur hafi fengið góðar viðtökur.
Við Skólavörðustíg 20 er litrík og
skemmtileg barnavöruverslun sem
heitir því skemmtilega nafni Hnokkar
og hnátur.
Verslunin Hnokkar og hnátur var opnuð í lok
febrúar. Þar má finna falleg barnaföt í öllum
regnbogans litum og skemmtilega fylgihluti
sem lífga upp á barnaherbergið. Þórdís Lilja
Árnadóttir, annar tveggja eigenda verslunar-
innar, segir að viðbrögðin við versluninni
hafi verið góð enda sé úrvalið mikið.
„Við erum með alls konar föt á börn og
reynum að hafa þetta sem fjölbreyttast. Hér
er hægt að fá hversdagsföt, spariföt, skó og
alls konar fylgihluti. Við erum t.d. með mjög
vinsælar danskar vörur frá Katvig sem rjúka
út, enda á góðu verði. Þetta er litríkur og
þægilegur fatnaður sem þolir allt. Svona
heimaföt sem er allt í lagi að skíta út og leika
sér í. Svo erum við líka með rúmföt frá
Katvig sem hafa slegið í gegn. Þau eru litrík
og skemmtileg og fást í öllum stærðum, líka
fyrir fullorðna,“ segir Þórdís.
Í búðinni má einnig finna fín spariföt á
krakka á öllum aldri og vandaðar franskar
vörur frá Catimini og Kenzo. Þórdís segir að
vöruúrvalið aukist smátt og smátt og hug-
myndin sé að reyna að fjölga fylgihlutunum.
„Hér fást til dæmis mjög skemmtilegar
textílvörur frá Anne-Claire Petit. Þetta eru
brúður, leikföng, lyklakippur og alls konar
skemmtilegir hlutir sem henta jafnt fyrir
börn og fullorðna og eru sniðug gjafavara,“
segir Þórdís. ■
Íslensk hönnun sækir sífellt á og skargripahönnun er þar engin undan-
tekning. Í versluninni Or á Laugaveginum þar sem einnig er vinnustofa
eigendanna eru seldir einstakir og undurfagrir skartgripir, allir hand-
gerðir úr gulli, hvítagulli og silfri í bland við eðalsteina frá öllum
heimshornum.
Or hefur starfað í fimm ár en það voru þeir Ástþór Helgason og
Kjartan Örn Kjartanson sem stofnuðu fyrirtækið og nýlega bætt-
ist svo í hópinn hönnuðurinn María Kristín Jónsdóttir.
Það er mikil gróska í skartgripasmíðinni hjá Or og þar sem all-
ir gripirnir eru handsmíðaðir eru engir tveir eins, hver og einn
skartgripur er einstakur og nýr hringur eða nýtt men bætist
við úrvalið á degi hverjum. ■
Nýr gripur á hverjum degi
Verslunin og vinnustofan Or hefur verið starfrækt síðustu fimm
árin. Þar eru seldir íslenskir skartgripir í bland við eðalsteina
utan úr heimi.
afsláttur
á herrafatnaði,
leðurpilsum
og leðurbuxum
Laugavegur 66 • 101 Reykjavík
Sími 552 2040
mona@internet.is
20%
Ný og fersk verslun
fyrir verðandi mæður
Valdar vörur á tilboði föstudag
og laugardag.
Full búð af nýjum vörum
Blóm Á laugardaginn er blómadagur á Skólavörðu-
stígnum. Það er því tilvalið að skreyta sig aðeins með
blómum, setja rós í hárið eða fífil í hnappagatið. Maður
getur jú alltaf á sig blómum bætt. [ ]
Eyrnalokkar kr.
18.500 (perlur)
Hringur, hvítur
íslenskur ópall
kr. 22.000
Hálsmen, opall og
aquamarine kr. 46.000
Hringur, ýmsir
steinar kr. 37.000
Eyrnalokkar, onix og
circon kr. 12.900
Hálsmen og armband kr.
56.000 og kr. 35.000
Verslunin er litrík og skemmtileg og þar má finna vönduð barnaföt í öllum
verðflokkum.
Textílvörur frá Anne-Claire Petit. Fallegir skór á litla fætur.