Fréttablaðið - 03.06.2005, Síða 41

Fréttablaðið - 03.06.2005, Síða 41
25FÖSTUDAGUR 3. júní 2005 Fyrstu merki Kárahnjúkavand- ans Í dag mátti lesa a.m.k. tvær fréttir í blöðunum um Kárahnjúkavandann. Hvorug fréttin bar reyndar þá yfir- skrift en hann var þó aðalumfjöllun- arefni þeirra. Sú fyrri er auðvitað sú skelfilega frétt að núna um mánaða- mótin var 140 starfsmönnum sagt upp hjá fjórum fyrirtækjum á lands- byggðinni; á Bíldudal, Akureyri, Reyð- arfirði og Stöðvarfirði. [...] Þetta eru bara með fyrstu merkjum um Kára- hnjúkavandann. Þetta sýnir hins vegar að einsýn atvinnustefna stjórn- valda er þegar farin að hafa alvarleg- ar afleiðingar. Fyrirætlan þeirra um að byggja risavaxið álver og virkjun til að bjarga atvinnuástandinu á lands- byggðinni er þegar farin að bitna á öðrum atvinnufyrirtækjum sem leggja upp laupana. Katrín Jakobsdóttir – murinn.is Ráðamenn ekki masókistar En þrátt fyrir að [Mannréttindastofn- un] sé að gera góða hluti er ekki þar með sagt að hún eigi að fá styrki frá ríkinu. Mannréttindi eru aðallega sett til að vernda einstaklinga gegn ofríki stjórnvalda. Ríkisrekin mannréttindi eru því þversögn í sjálfu sér enda verulega óeðlilegt að aðili greiði fyrir baráttuna gegn sjálfum sér. Ástæð- urnar fyrir þessu eru einfaldar. Stjórn- mála- og embættismenn eru ekki masókistar. Þeir fá enga sérstaka ánægju út úr því að borga einhverju fólki út í bæ fyrir að ráðast á sig og gagnrýna. Af því leiðir að líkurnar á því að einhver hörundsár stjórnmála- eða embættismaður misnoti stöðu sína til að hafa áhrif á gagnrýnina eru það miklar að slíkt fyrirkomulag er ekki trúverðugt. Andri Óttarsson – deiglan.com AF NETINU BRÉF TIL BLAÐSINS A›alsafna›ar- fundur í Gar›asókn Í 52. grein laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar segir orðrétt: „Aðalsafnaðarfund skal að jafnaði halda fyrir maílok ár hvert o.s.frv.“. Nú er kominn júní og ekki hefur, svo mér sé kunnugt um, verið boðað til aðalsafnaðar- fundar og vaknar því sú spurn- ing hvað valdi, við hvað eru sitj- andi sóknarnefndarmenn hræddir? Þætti mér vænt um að fá svör frá Biskupi Íslands og sóknar- nefnd Garðasóknar um hvenær megi búast við fundi þessum. Formanni sóknarnefndar hefur borist áskorun undirrituð af fjölda sóknarbarna sem óska eftir því að aðalsafnaðarfundur- inn verði haldinn sem fyrst. Engin svör og engin viðbrögð hafa fengist við áskorun þess- ari, þar af leiðandi er þetta eina leiðin sem virðist fær en það er að koma fram með þessa ein- földu spurningu á opinberum vettvangi. Ég vonast til að báðir þessir aðilar sem spurningunni er beint til bregðist skjótt við og veiti afdráttarlaust svar, þar sem brýna nauðsyn ber til að haldinn verði aðalsafnaðarfund- ur í Garðasókn. Sé þessi staða, þ.e.a.s. að fresta fundi þessum, einhliða ákvörðun sitjandi safnaðar- stjórnar er það einlæg ósk að Biskup Íslands beiti sér fyrir því að fundur þessi fari fram hið fyrsta, og verði boðaður helst í þessari eða næstu viku. Þórunn Lúðvíksdóttir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.