Fréttablaðið - 03.06.2005, Qupperneq 46
3. júní 2005 FÖSTUDAGUR
> Við furðum okkur á því ...
... að heimasíða íþrótta- og Ólympíusam-
bands Íslands skuli liggja niðri svo dögum
skiptir þá loksins að einhver hafi áhuga á
að nýta sér hana. Áhuga-
samir sem ætluðu að
nota hana til að fá fréttir
frá Andorra hafa gripið í
tómt enda flestir
starfsmenn ÍSÍ í Andorra
og geta væntanlega lítið
gert þaðan.
Heyrst hefur ...
... að Snæfellingar séu æfir af reiði eftir
að nágrannar þeirra í Skallagrími „stálu“
Makedónanum Dimitar Karadjovski fyrir
framan nefið á þeim og leiddist það víst
ekki mikið. Þetta verður ekki til þess að
minnka ríginn og andrúmsloftið sem er á
milli þessara nágrannabæja.
sport@frettabladid.is
30
> Við hrósum ...
.... KSÍ fyrir að lækka miðaverð á lands-
leikina gegn Ungverjum og Möltu. Það var
kominn tími til að miðaverðið sé í
samræmi við það sem í
boði er en KSÍ skaut
sig eftirminnilega í
fótinn fyrir landsleikinn
gegn Búlgaríu.
Batnandi mönnum er
best að lifa.
Ásgeir Sigurvinsson landsli›sfljálfari segir a› Ísland eigi a› leggja Ungverjaland a› velli á gó›um degi.
Hann segir a› í versta falli flurfi li›i› a› fá fjögur stig úr næstu tveimur leikjum en krafan er sex stig.
Við erum sterkari en Ungverjar
FÓTBOLTI „Það er alveg ljóst að við
þurfum að halda hreinu og sýna
karakter í þessum leik. Hlutverk
okkar er að ná upp góðri baráttu í
liðið, þetta er leikur sem við þurf-
um að vinna.“ sagði Ásgeir Sigur-
vinsson eftir æfingu landsliðsins
á Laugardalsvelli í gær. „Okkar
besti leikur í riðlakeppninni til
þessa var fyrri leikurinn gegn
Ungverjalandi þar sem við töpuð-
um niður góðri stöðu.
Þeir hafa gott lið en mitt mat er
að þeir séu veikari en við núna, ég
sá þá keppa á móti Frakklandi þar
sem þeir áttu slakan fyrri hálf-
leik. Í hálfleik gerðu þeir fimm
breytingar og tóku til að mynda
sína reyndustu menn af velli, eins
og Zoltan Gera og Imre Szabi.
Komu síðan sterkir inn í seinni
hálfleik og þar sást að þeir hafa
ýmsa leikmenn sem má ekki van-
meta. Þeir hafa ágætis lið en á
góðum degi eigum við að vinna
þá.“ sagði Ásgeir í gær. Fyrri leik-
ur þjóðanna í Ungverjalandi end-
aði með 3-2 sigri heimamanna.
„Krafan er kannski sex stig úr
næstu tveimur leikjum. Aðalatrið-
ið fyrir mig er að liðið sýni góða
baráttu og eigi góðan leik, að þess-
ir ungu strákar nái að sýna sitt
rétta andlit. Eiður Smári er kom-
inn inn en Hermann getur ekki
verið með, sem veikir vörnina
verulega. Ég hef sagt það að í
versta falli þurfum við fjögur stig
úr þessum tveimur leikjum.“
sagði Ásgeir, en aðspurður sagðist
hann ekki ætla að hætta þó þessi
markmið myndu ekki nást. „Við
erum samningsbundnir KSÍ út
október þannig að við erum ekk-
ert að hugsa út í það að hætta.“
Menn hafa verið að velta því
fyrir sér hvort Eiður verði einn í
fremstu víglínu í leiknum á laug-
ardag eða jafnvel nær miðsvæð-
inu. „Eiður hefur verið að spila
þarna fyrir aftan sóknarmennina
með sínu félagsliði og gert það
vel. Við prufuðum hann í þessa
stöðu í Englandi en það gekk ekki
nægilega vel, það er samt aldrei
að vita nema við höfum hann
þarna aðeins fyrir aftan fremstu
menn.“ sagði Ásgeir.
Þrír leikmenn sem leika hér
heima eru í íslenska hópnum, þar
á meðal Helgi Valur Daníelsson
hjá Fylki. „Hann er að stimpla sig
inn, mjög fjölhæfur strákur sem
við höfum fylgst vel með í gegn-
um tíðina og við getum notað hann
bæði í bakverðinum og á miðj-
unni,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson,
landsliðsþjálfari Íslands í
knattspyrnu.
elvar@frettabladid.is
Jakob Örn Sigurðarson, sem hefur gert
það gott með háskólaliðinu sínu
Birmingham Southern undanfarin ár,
hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið
BayerGiants Leverkusen um að leika
með því næsta vetur.
Að sögn umboðsmanns Jakobs, sem er
faðir hans Sigurður Hjörleifsson, voru
mörg lið í Evrópu á höttunum eftir
stráknum. Lið frá Hollandi, Belgíu og
Spáni höfðu sett sig í samband við
Jakob og lýst yfir áhuga á að fá
hann í sínar raðir.
Jakob er fyrsti leikmaðurinn sem
liðið fær til sín eftir miklar breyt-
ingar sem gerðar voru í kjölfar
óviðunandi gengis á síðasta tíma-
bili og er liðið stórhuga fyrir
komandi tímabil,
enda er Leverkus-
en lið með mikla
sigurhefð.
Þegar Fréttablaðið
náði tali af Sigurði
í gær var hann
mjög ánægður
með
samninginn sem hann nældi í fyrir
Jakob og sagði að samningur hans væri
mjög ásættanlegur og nokkuð hár mið-
að við fyrsta atvinnumannasamning.
„Jakob fékk mjög góðan samning og er
til að mynda með um helmingi hærri
laun en Bandaríkjamaðurinn Brandon
Woudstra sem verður í þessu liði með
honum,“ sagði Sigurður, en Woudstra
þessi lék sem kunnugt er með Njarðvík-
ingum tímabilið 2003-04.
„Margir furðuðu sig á því af hverju
Leverkusen fékk sér ekki bara Bandarík-
jamann, en þeir eru tiltölulega ódýrir á
miðað við þá evrópsku, en þeir vildu
aðeins fá Jakob og engan annan,“ sagði
hinn seigi samningamaður Sigurður að
lokum.
KÖRFUKNATTLEIKSMAÐURINN JAKOB ÖRN SIGURÐARSON: Á LEIÐ TIL ÞÝSKALANDS
Me› tvöfalt hærri laun en Woudstra
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
31 1 2 3 4 5 6
Föstudagur
JÚNÍ
■ ■ LEIKIR
18.00 Ísland og Ungverjaland
mætast á Víkingsvelli í undankeppni
HM U-21 árs.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn.
07.30 Olíssport á Sýn.
08.00 Olíssport á Sýn.
08.30 Olíssport á Sýn.
16.50 Smáþjóðaleikarnir á RÚV.
(3:5). Endursýndur þáttur um þriðja
dag Smáþjóðaleikanna í Andorra.
17.45 Olíssport á Sýn.
19.00 Gillette sportpakkinn á Sýn.
Flottur íþróttaþáttur sem líf er í.
19.30 Motorworld á Sýn. Hestöfl,
ofurhugar og fallegar konur í alvöru
þætti fyrir akstursáhugamenn.
20.00 World Supercross á Sýn.
21.00 HM í póker á Sýn. HM í Las
Vegas. Hver er með besta
„pókerfeisið“?
21.45 Smáþjóðaleikarnir á RÚV.
(4:5). Samantekt frá atburðum
dagsins í Andorra.
23.15 NBA úrslitakeppni á Sýn.
Endursýndur leikur.
LAGT Á RÁÐIN Þjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson leggja hér á ráðin á
æfingu landsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Aðeins þrír leikmenn í íslenska landsliðinu leika í Landsbankadeildinni:
Vi› föllum vel inn í flennan hóp
FÓTBOLTI Þeir Tryggvi Guðmunds-
son úr FH, Kristján Finnbogason
úr KR og Helgi Valur Daníelsson
úr Fylki eru nokkuð sér á báti í ís-
lenska landsliðinu því þeir eru
einu leikmennirnir í hópnum sem
leika með knattspyrnuliðum hér-
lendis. Fréttablaðið spurði þá fé-
laga hvernig tilfinning það væri
að vera einu heimamennirnir í
hópnum.
„Venjulega eru þetta ekki
nema einn eða tveir menn í hópn-
um sem spila hérna heima og það
er bara gaman. Það er mjög góður
andi í hópnum og við stefnum á að
vinna Ungverjana hérna á laugar-
daginn. Við sem spilum hérna
heima föllum bara vel inn í þenn-
an hóp og erum aðallega spurðir
frétta úr íslenska boltanum,“
sagði Kristján Finnbogason mark-
vörður. Blaðamaður sneri sér því
næst að Tryggva Guðmundssyni,
sem var að ljúka við annað viðtal
á Laugardalsvellinum og þá mátti
heyra einn félaga hans kalla
hæðnislega úr bakgrunninum
„hrokann, hrokann“, en svo virtist
sem Tryggvi heyrði það ekki.
„Tilfinningin er góð og þótt
hópurinn sé nokkuð breyttur síð-
an ég var hérna síðast er kjarninn
sá sami og það er alltaf gaman að
hitta strákana aftur,“ sagði
Tryggvi. „Það er alltaf viðurkenn-
ing að vera valinn í landsliðið því
það gefur til kynna að maður hafi
verið að standa sig vel í því sem
maður er að gera. Svo verður bara
að koma í ljós hvort ég fæ að spila
eða ekki, en ég get lofað því að ég
legg mig fram ef ég fæ tækifæri,“
sagði Tryggvi.
En fá þeir engar glósur frá
„stjörnunum“ sem leika með
stærri liðum erlendis?
„Nei, það eru engir kóngastæl-
ar í þeim, enda þýðir það ekkert.
Við erum að standa okkur hérna
heima alveg eins og þeir, þannig
að það er ekkert hægt að stríða
okkur,“ sagði Tryggvi léttur í
bragði og bætti við að hann myndi
gera sitt besta til að komast í tug
landsliðsmarka ef hann fengi
tækifæri, en hann hefur skorað
níu mörk fyrir landsliðið.
„Það er gaman til þess að vita
að þeir Ásgeir og Logi eru að
fylgjast vel með því sem er að
gerast hérna heima fyrst þeir
velja okkur þrjá í hópinn,“ sagði
Helgi Valur. „Að mörgu leyti er
þetta bara eins og að koma aftur á
æfingu með yngra landsliðinu, því
þetta eru margir sömu strákar og
maður hefur verið að spila með í
gegnum árin“.
En hvernig er að vera að spila
með stóru löxunum? „Maður var
nú kannski dálítið smeykur svona
fyrst þegar maður kom inn í þetta,
en um leið og maður byrjaði að
spila var þetta fljótt að fara.“ - bb
HRESSIR Í DALNUM „Íslendingarnir“ í landsliðshópnum - Helgi Valur Daníelsson, Tryggvi
Guðmundsson og Kristján Finnbogason - voru léttir á því í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.