Fréttablaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 48
3. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Ég fékk þá frá-
bæru hugmynd
á dögunum að
taka til í skúff-
um og skápum.
Ég hófst handa
á skápnum
sem hefur
verið fullur af
dularfullu dóti
um árabil. Ég byrjaði af
miklum krafti og rótaði öllu út.
Þessi athöfn tók um það bil fimm
mínútur. Eftirleikurinn var hins
vegar ekki jafn auðveldur. Mér
finnst nefnilega miklu erfiðara að
henda dóti en að sanka því að mér.
Gamlir bíómiðar geta haft sitt
gildi og miða með skemmtilegum
orðsendingum tími ég ekki að
setja í ruslafötuna. Svo eru það af-
mæliskort og jólakort. Mér finnst
alltaf svo samviskulaust að henda
korti sem einhver hefur haft fyrir
að kaupa og skrifa á. Svona eins og
mér sé alveg sama um viðkom-
andi. Þessi stefna gengur vitan-
lega ekki alveg upp – því ekki vil
ég búa í haug.
Lengi vel gat ég leyft mér
þennan lúxus, að henda aldrei
neinu. Á æskuheimili mínu mátti
lengi bæta við einum kassa en
þegar foreldrar mínir fluttu
neyddist ég til að taka á honum
stóra mínum og henda ýmiss
konar dóti sem þar leyndist.
Dúkkulísunum mínum þar á meðal
og verður að segjast að ég hef
hálfgert samviskubit yfir því.
Barbídótið mitt fékk hins vegar að
vera. Sömuleiðis brot af því besta
úr skólagöngunni. Vandlega
skreyttar vinnubækur úr barna-
skóla, eitt og annað úr mennta-
skóla og háskólaglósur. Ég náði
ekki að fara í gegnum allt og
þurfti því á endanum að setja
óskilgreint dót í kassa sem ég ætla
að skoða síðar – ekki get ég hent
því án þess að hafa lagt á það fag-
legt mat. Þessi stefna skýrir ef til
vill hvers vegna geymslan er
orðin full þrátt fyrir einungis árs
búskap.
En aftur að skápnum. Mér tókst
að taka til í hluta hans. Haugurinn
sem eftir var fékk svo að fara
aftur inn í skáp. Ég hef fullan hug
á að taka til í honum síðar. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
SIGRÍÐUR B. TÓMASDÓTTIR GEYMIR GAMLA MIÐA.
Tilraun til tiltektar
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
0
20
40
60
80
100
-stærsti fjölmiðillinn
,,Gull, silfur og brons”
-stærstu fjölmiðlar landsins.
81%
91% 89%
Íslendingar 12-80 ára
Fréttablaðið er stærsti fjölmiðill landsins.
Yfir 90% landsmanna lesa blaðið yfir vikuna.
Þetta er í annað sinn á hálfu ári sem
Fréttablaðið tekur þetta sæti af
Ríkissjónvarpinu. Stöð 2 er í þriðja sæti
og helsti keppinautur Fréttablaðsins
á dagblaðamarkaði , Morgunblaðið,
er nokkuð á eftir í 5. sæti
*Uppsöfnuð dekkun vikunnar
*
STÖ
Ð
2
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Húðflúrið er
punkturinn yfir
i-ið.
...rúsínan í
pulsuendanum.
Hæ, þið
þarna.
Hæ
Hæ! Oh! Mamma!
Hæ! Þetta er Anja! Ég
meina Tanja!
Hún var að laga kaplana mína.
Ég meina kaplana í bílnum.
Hún er virkilega góð. Að laga
svona meina ég.
Er eitthvað sem gæti gert
þetta augnablik verra en
það er orðið?
Sara er í
símanum.
Mjáááá!!
Kötturinn
er svangur. Það borgar
sig að kunna
mannamál.
Ég gleymi því aldrei þegar við
flugum til Spánar að
heimsækja vini okkar.
Við fórum ekki til Spánar. Við
fórum til Akureyrar og við
keyrðum þangað.
Það voru heldur ekki vinir
okkar sem við heimsóttum,
heldur amma og afi.
Ó, já!
Hvað um það,
við gleymum því
aldrei.