Fréttablaðið - 03.06.2005, Page 54
3. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Vinningar eru:
Miðar fyrir tvo á Mr & Mrs Smith.
Glæsilegur varningur tengdur
myndinni t.d. úr og bolir.
DVD myndir.
Margt fleira.
Sendu SMS skeytið
JA MMV á
númerið 1900 og
þú gætir unnið.
12. hver vinnur.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið.
SM
S leikur
D3
H
EIM
SFR
U
M
SÝ
N
IN
G
9. JÚ
N
Í
Arna Borgþórsdóttir og Elma
Lísa Gunnarsdóttir eru umsjón-
armenn flóamarkaðsins í
Sirkus-portinu. Markaðurinn
hóf göngu sína síðasta sumar og
fóru viðtökurnar fram úr björt-
ustu vonum. Í gegnum tíðina
hafa þær verið miklir aðdáend-
ur flóamarkaða og verið ötular
við að halda markaði í heima-
húsum, Kolaportinu og Sirkus.
Oft hefur æsingurinn verið svo
mikill að þær hafa hreinlega
selt utan af sér spjarirnar. Á
flóamarkaðnum í sumar munu
Arna og Elma Lísa leggja
áherslu á fjölbreytt úrval svo
allir ættu að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi eins og föt,
plötur, glingur, skart og dót úr
geymslunni.
Þegar þær stöllur eru spurð-
ar út í eigin fatastíl segjast þær
vera mjög ólíkar.
„Elma fæddist í second-hand
fötum, en ég var í íþróttagallan-
um til tvítugs, en eftir það fór
allt að gerast,“ segir Arna og
brosir. Elma Lísa á einn vegleg-
asta og frumlegasta fataskáp
landsins. Hún mun selja fötin
sín á Sirkusmarkaðnum meðan
Arna ætlar að djúsa ávexti ofan
í gesti og gangandi.
„Sumarið leggst rosalega vel
í okkur. Þetta verður algert
stuð og við verðum með óvænt-
ar uppákomur á laugardögum,
dj-a, hljómsveitir og margt
margt fleira. Við hvetjum alla
til að mæta og eins ef fólk vill
hreinsa út úr fataskápum og
geymslum hjá sér þá getur það
leigt af okkur bás á góðu verði.
Áhugasamir geta sent línu á
floamarkadur@elv.is,“ segir
Arna.
martamaria@frettabladid.is
Djús, dj-ar og gömul föt
Fjöllistahópurinn Siggi er einn af
þeim hópum sem munu starfa á
vegum Hins hússins í sumar í
Skapandi sumarstarfi. Siggi er
skipaður fjórum strákum og
tveimur stelpum sem eru sautján
og átján ára. Nafnið Siggi er frek-
ar óvenjulegt fyrir listahóp því
oft eru þeir með mjög flókin og
útpæld nöfn. „Við viljum frekar
að hópurinn geri nafnið flott en að
nafnið geri hópinn flottan,“ segir
Úlfur einn af liðsmönnum Sigga.
Þau koma öll hvert úr sinni áttinni
í listum og ætla einmitt að láta
það vera styrkleika sinn. Þau ætla
að hafa þemavikur þar sem lögð
er áhersla á einhverja listgrein og
þannig læra hvert af öðru svo að
allir geti tekið þátt. Þau ætla
meira að segja að tvinna almenn-
ingi inn í starfið og geta vegfar-
endur átt von á að lenda inni í
miðju verki hjá þeim í sumar.
Fyrsta vikan, sem hófst 1. júní, er
helguð kökum og ljóðagerð.
Krakkarnir ætla að baka kökur og
gefa gestum og gangandi og svo
ætla þau að láta tómar stílabækur
inn á kaffihús þar sem kaffihúsa-
gestir geta tjáð tilfinningar sínar í
ljóðum, máli og myndum. Í lok
sumarsins stefna þau svo að því
að gefa út Ljóðabók Reykjavíkur
með þeim ljóðum sem safnast í
þessar stílabækur. „Markmið
okkar er að gera Reykjavík að
skemmtilegri stað,“ segir Úlfur
og verða uppákomur þeirra afar
fjölbreyttar allt frá tónleikum og
dansi til gjörninga og myndlistar.
Þetta er aðeins fyrsta vikan af
átta svo það er greinilega margt
spennandi framundan í Reykja-
víkurborg í sumar.
soleyk@frettabladid.is
Almenningur hluti af
listsköpun Sigga
SIGGI Úlfur, Gulla, Anton, Sindri, Geiri og Steinunn standa á bak við fjöllistahópinn.
ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR OG ARNA BORGÞÓRSDÓTTIR Verða í miklu stuði á flóamarkaði Sirkuss í sumar.