Fréttablaðið - 03.06.2005, Page 57
41FÖSTUDAGUR 3. júní 2005
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nýr raunveruleikaþáttur BritneySpears og eiginmanns hennar
Kevins Federline þykir algjör hörm-
ung. Söngkonan, sem ekki
alls fyrir löngu var ein af
valdamestu stjörnum
heims, þykir hafa stór-
skaðað ímynd sína með
ósmekklegum yfirlýs-
ingum um kynlíf og
lífsstíl þeirra hjóna.
„Þetta er eins og að
horfa á eitthvað fallegt
rotna smátt og smátt,“
sagði þekkt fjölmiðla-
kona vestanhafs. Britney, sem und-
anfarin ár hefur verið eitt helsta
átrúnaðargoð ungra stúlkna, hefur á
tiltölulega stuttum tíma valdið aðdá-
endum sínum óteljandi vonbrigðum
með ósmekklegri hegðun.
Leikarinn Christian Slater varhandtekinn í New York á þriðju-
daginn vegna meintrar kynferðis-
legrar áreitni. Ónafngreind kona
heldur því fram að hann hafi ráðist
á sig úti á götu. „Hann greip í aftur-
enda konunnar þegar hún
var á gangi,“ sagði
lögreglumaður. Slat-
er var undir áhrif-
um vímuefna þeg-
ar meint atvik átti
sér stað og var færður
í handjárnum inn í
lögreglubíl. „Ég gerði
ekki neitt,“ sagði Sla-
ter við handtökuna
en hann er í haldi lög-
reglunnar á Manhattan.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leik-
arinn kemst í kast við lögin en hann
hefur verið sakfelldur fyrir fíkniefna-
misferli og ofbeldisbrot.
Jennifer Aniston hefur hent öllumrúmfötum sem hún og Brad Pitt
keyptu saman. Parinu hefur ekki
tekist að sætta ágreining sinn en
þau skildu að borði og sæng í byrj-
un árs. Hún er einnig
sögð hafa losað sig við
öll þau dýru undirföt
sem Brad gaf henni því
minningarnar séu of
sárar. „Jennifer vill losa
sig við allt sem tengist
Brad. Hún ætlar bara
að eiga nokkra ómet-
anlega skartgripi, en
annað mun hún selja
eða gefa,“ sagði vin-
kona stjörnunnar. Jenni-
fer sótti um skilnað frá
Brad en mikill leyndar-
dómur ríkir yfir ástæðum
skilnaðarins. Sú ástæða
sem þykir líklegust er að
Brad hafi fallið fyrir Angel-
inu Jolie við gerð myndar-
innar Mr. and Mrs. Smith. Þau
hafa sést mikið saman undanfarið
en neita þó að um ástarsamband sé
að ræða.