Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR – fyrir allt sem þú ertUpplýsingar í síma 550 1200, 550 1400 eða á www.spron.is Íbúðalán SPRON eru háð útlánareglum SPRON öllum opin4,15% Íbúðalán SPRON Engin skilyrði um önnur bankaviðskiptiHiminn o g h a f / S ÍA SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 KIA Picanto *M.v. 398.000 kr. útborgun og bílasamning hjá SP fjármögnun í 84 mánuði. 9.9 3 KIA umboðið á Ís landi er í e igu Heklu hf . KIA Picanto er lipur, fallegur og nútímalegur smábíll með skynsamlegri rýmisnýtingu og veglegum aukabúnaði. Það sakar svo ekki að verðið á sér ekki hliðstæðu. KIA Picanto fimm dyra kostar aðeins 1.088.000 kr. KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í heiminum í dag. Það er ekkert skrítið þegar hægt er að bjóða svona gæði á þessu verði. Njóttu þess að vera á nýjum bíl! Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5000 • www.hekla. is KIA Picanto – smábíll ársins 2004 á Íslandi Hér á bæ eru stundum bakaðargrænar pönnukökur sem vekja ómælda lukku. Sem ég nú sit og hræri í risastórri skál af grænni súr- mjólk velti ég því fyrir mér hver ætti skilið að fá svo sem eina gusu af mið- inum mjúka. Skyldu það vera ráð- herrar sem draga vopnlausa þjóð til ábyrgðar í stríðsátökum úti í heimi? Skyldi það vera foringi sem makar krókinn með sölu á almenningsbönk- um? Skyldi það vera kerling á kúst- skafti sem ferðast um fjórðungana og leggur álfjötra á aðþrengt sveitafólk? Skyldi það vera karl sem vill leggja hraðbraut norður yfir náttúruperlur? SKYLDI það vera draugahópur sem reglulega úthlutar feitum embættum eftir flokkslínum og vinatengslum? Skyldi það vera dómari sem dæmir ekkju látins höfuðskálds til að greiða háan málskostnað með hlægilegum rökum? Skyldi það vera klíka sem stendur fyrir stórfelldum skemmdar- verkum á hálendi ævintýraeyjunnar? Skyldu það vera ráðgjafarnir sem enn syngja sálma um hinn mikla efnahagslegan ávinning af stóriðju? Skyldi það vera...? NEI, auðvitað ekki. Best væri að nýta súrmjólkina í góðan stafla af grænum pönnsum og bjóða til kaffi- samsætis - til dæmis á Þingvöllum. Rótsterkt kaffi og grænar pönnu- kökur á hvítum blúndudúk, í sólskini og lóusöng. Fyrirmenni Frónverja gætu setið og raðað í sig pönnsum með rjóma og sultu, setið með fullan munn og mettan maga, þagað og hlustað á eigendur atkvæðanna. Þeir gætu setið hljóðir og hlustað á ótal skoðanir og framtíðardrauma. Þeir gætu hlustað svo takast mætti verð- ugt markmið ráðamanna í starfi - að fara að þjóðarvilja. AÐ leggja eyra að hjarta þjóðar virkar líkt og þegar indíánar villta vestursins lögðu eyra að móður jörð forðum og hlustuðu eftir hófataki, hættumerkjum, rigningu og þurrki. Þannig má ef til vill lesa umhverfið af næmni og skilningi og taka svo ákvarðanir. Að tala er silfur, að þegja er gull, sagði amma mín sáluga svo oft. Að meinalausu mætti bæta því við að hlustun sé á við allar demanta- námur veraldar. En hlustun er kann- ski ofmetin og lykillinn að hamingj- unni er að heyra sem minnst, tala sem mest og þegja svo þunnu hljóði þegar vandamálin verða of stór. ■ BAKÞANKAR KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR Grænar pönnukökur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.