Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 16
Ástir samlyndra sósa
Bandaríski matvælaframleiðandinn Heinz, sem
þegar er ódauðlegur eftir að bakaðar baunir fyrir-
tækisins komust á spjöld listasögunnar í verkum
Andy Warhol, hefur keypt franska fyrirtæk-
ið Danones, sem á HP Foods. Heinz fram-
leiðir einhverja þekktustu og vinsælustu
tómatsósu heimsins. HP Foods framleiðir
ekki síður merkilega sósu, sem er HP-
sósan fræga. Þessar sósur hafa átt það
sameiginlegt að koma fiski ofan í þá sem
ekki finnst fiskbragðið gott og hafa ófá
börn notið hollustu soðningarinnar
vegna bragðaukans af þessum frægu
sósum sem nú eru komnar í eina sæng.
Heinz greiddi ríflega sextíu milljarða
króna fyrir HP Foods.
Peningaþvottavél sem kaupir Bretland
Breskir fjölmiðlar hafa farið mikinn eftir að sá kvitt-
ur komst á kreik að íslenskir fjárfestar væru að
koma sér fyrir í hluthafahópi Marks & Spencer.
Fjölmiðlar í Bretlandi hafa gengið býsna langt í
að gefa í skyn að fjármunir íslendinga séu illa
fengið fé og hafa meðal annars látið að því
liggja að efnahagslífið á Íslandi sé peninga-
þvottavél fyrir rússnesku mafíuna. Bresku fjöl-
miðlarnir hafa ekki lagt fram nein gögn máli
sínu til stuðnings og sú kenning að Íslending-
ar séu að kaupa í M&S er líklega ekki rétt
heldur. Hins vegar er orðrómur á kreiki nú
um að Baugur hyggi á kaup á tískukeðjunni
Jane Norman. Þar kynnu breskir fjölmiðlar að
vera nær sanni en í umfjöllun um M&S og
mafíupeningaþvætti.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.040
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 203
Velta: 3.978 milljónir
-0,18%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
16 21. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Avion Group hefur fest kaup á
The Really Great Holiday
Company, sem á og rekur ferða-
skrifstofurnar Travel City Direct,
Transatlantic Vacations og Car-
shop. Félagið verður rekið sam-
hliða Excel Airways Group, sem
sérhæfir sig einnig í sölu á
skemmtiferðum til Breta.
Travel City Direct er
leiguflugfélag sem selur við-
skiptavinum sínum beint í gegn-
um tvær símsölur í Blackpool og
Swansea. Höfuðstöðvar fyrirtæk-
isins eru í Gatwick.
Félagið býður einkum ferðir
frá Bretlandi til Flórida en einnig
til Mallorka og Spánar. Flugum til
Flórída var fjölgað á árinu í tvö á
viku og flugu 170 þúsund manns
til Flórída á vegum félagsins árið
2004. Meirihluti flugsæta félags-
ins er frá vélum Air Atlanta
Europe, dótturfélagi Avion
Group, en önnur sæti koma frá
öðrum leiguflugum og áætlunar-
flugum.
Heildarvelta The Really Great
Holiday Company árið 2004 var
118 milljónir punda, rétt rúmlega
14 milljarðar íslenskra króna.
Áætluð velta Avion Group verður
því um 125 milljarðar króna á
þessu ári.
Kaupverð The Really Great
Holiday Company er ekki gefið
upp en Íslandsbanki fjármagnaði
kaupin að hluta.
Við samrunann verður Excel
Airways, dótturfélag Avion
Group og The Really Great Holi-
day Company, áttunda stærsta af-
þreyingarflugfélag Bretlands
með fjórar milljónir farþega árið
2004. Fyrirtækið var stofnað í maí
1995 og þar vinna 270 manns.
Í fréttatilkynningu frá Avion
segir Magnús Þorsteinsson,
stjórnarformaður félagins, að
kaupin leiði til frekari vaxtar á
afþreyingarsviði. Að auki náist
hagræðing í nýtingu á flugvélum
Atlanta.
dogg@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 39,50 +0,30% ... Atorka 5,90 -
1,70% ... Bakkavör 36,90 - ... Burðarás 14,80 +1,40% ... FL Group 15,80
- ... Flaga 4,23 -0,50% ... Íslandsbanki 13,25 -0,40% ... KB banki 522 -
0,80 ... Kögun 60,00 +0,20% ... Landsbankinn 16,50 +0,60% ... Marel
56,40 -0,50% ... Og fjarskipti 3,92 - ... Samherji 12,10 - ... Straumur
12,10 - ... Össur 80,00 -
Avion Group kaupir
breskar ferðaskrifstofur
Velta The Really Great Holiday Company, sem á og rekur þrjár ferðaskrifstofur,
var um 14 milljarðar króna á síðasta ári. Félagið verður rekið samhliða Excel
Airways, dótturfélagi Avion Group.
Atlantic Petroleum +2,78%
Burðarás +1,37%
Tryggingamiðstöðin +0,92%
Atorka -1,67%
KB banki -0,76%
Marel -0,53%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Frjáls íbúðalán
4,15% verðtryggðir vextir
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar.
Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000
eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Engin sk
ilyrði
um önn
ur
bankav
iðskipti
100%veðsetningarhlutfall
Samræmd vísitala neysluverðs í
maí samanborið við maí 2004 var
hálft prósent hér á landi saman-
borið við 1,9 prósent í viðskipta-
löndum Íslands. Meðaltal Evrópu-
sambandslandanna og evrusvæð-
isins var einnig 1,9 prósent.
Samræmd vísitala neysluverðs
er reiknuð á svipaðan hátt og vísi-
tala neysluverðs að stórum hluta
fyrir utan einn veigamikinn þátt,
sem er húsnæðisliður. Ef tekið
væri tillit til hans mældist hækk-
un á vísitölu neysluverðs mun
meiri.
Mesta verðbólga á Evrópska
efnahagssvæðinu á þessu 12 mán-
aða tímabili var 6,5 prósent í Lett-
landi og 3,7 prósent í Lúxemborg.
Minnst var verðbólgan 0,2 pró-
sent í Svíþjóð, 0,5 prósent á Ís-
landi og 0,6 prósent í Finnlandi.
Vísitala neysluverðs stóð í stað
milli ára í Japan.
Samræmd vísitala neysluverðs
hækkaði um 0,3 prósent frá apríl
til maí. Samræmd vísitala neyslu-
verðs í EES-ríkjunum hækkaði á
sama tíma um 0,2 prósent. - dh
STÆRSTI MARKAÐURINN ER SKEMMTIFERÐIR TIL FLÓRÍDA 170 þúsund farþegar
fóru á vegum flugfélagsins þangað á síðasta ári.
VERÐ Á MATVÖRU LÆKKAR HÉR Á
LANDI Vísitala neysluverðs var hálfu
prósenti hærri í maí en í maí 2004.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
VERÐBÓLGA Í NOKKRUM
RÍKJUM* - MAÍ ‘04 - MAÍ ‘05
Japan 0,0%
Svíþjóð 0,2%
Ísland 0,5%
Finnland 0,6%
Danmörk 1,3%
Noregur 1,5%
Viðskiptalöndin 1,9%
Meðaltal ESB og evrusvæðisins 1,9%
Bretland 1,9%
Bandaríkin 2,8%
Lettland 6,5%
*Tölur frá Hagstofu Íslands
Lítil ver›bólga
á Íslandi
Mun minni en í viðskipta-
löndunum og á evrusvæðinu.
Mælir me›
Bakkavör
Greiningardeild Landsbankans
mælir með kaupum í Bakkavör
samkvæmt nýju verðmati.
Heildarvirði félagsins sam-
kvæmt verðmatinu var 83,4
milljarðar og 39,9 krónur á hlut.
Lokagengi Bakkavarar í gær var
36,9.
Verðmat Landsbankans á
Bakkavör hefur hækkað um 42
prósent á aðeins þremur mánuð-
um en það skýrist af breyttum
ytri aðstæðum og breyttum
rekstrarforsendum. Vextir hafa
lækkað og gengi pundsins hefur
hækkað en tekjur félagsins eru í
breskum pundum. Einnig er
búist við meiri framlegð hjá
fyrirtækinu en áður. - dh
Hlutabréf Moasaic Fashions
hf. verða skráð á Aðallista Kaup-
hallarinnar í dag. Útgefnir hlutir í
Mosaic Fashions hf. eru alls um
2,9 milljarðar króna að nafnverði.
Velta dagvöruverslana var
þrettán prósent meiri í maí en í
sama mánuði árið 2004, að
teknu tilliti til verðlagsbreytinga,
samkvæmt mælingu Rannsókna-
seturs verslunarinnar.
Samkvæmt Fasteignamati
ríkisins hækkaði fasteignaverð í
maí síðastliðnum um 3,8%. Fast-
eignaverð hefur hækkað um 24%
frá upphafi árs.
Gengi íslensku krónunnar
veiktist um 0,74 prósent í gær en
viðskipti á millibankamarkaði
námu rúmlega sex milljörðum
króna.