Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 19
3ÞRIÐJUDAGUR 21. júní 2005
SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ
Mataræði
Það er staðreynd að á fjögurra til sjö
ára fresti endurnýjast 98% líkamans!
Það þýðir að við erum úr þeim hráefn-
um sem við höfum lagt okkur til
munns undanfarin 4-7 ár! Ef við lifum
á gosdrykkjum og súkkulaði, þá er lík-
ami okkar úr þeim hráefnum.
Gangandi slikkerí?
Ef við hugsum um það myndrænt þá
er það ekki fögur sjón, eða hvað?
40-70%
Líkaminn er úr vatni að mestu leyti.
Milli 40-70% líkamans er vatn en það
ræðst mest af fitumagni þ.e. líkami
þeirra sem eru feitir inniheldur minna
vatn en líkami þeirra sem eru grannir.
Megnið af restinni er prótein!
Ef allt vatn væri fjarlægt úr líkamanum
þá væri rúmlega helmingur þess sem
eftir sæti – prótein og próteinskyld
efni.
En hvað eigum við
þá að borða?
Ég er persónulega á því að flestir viti
NÁKVÆMLEGA hvað er í lagi fyrir þá
að borða og hvað ekki! Fyrir þá örfáu
sem eru algjörlega glórulausir er m.a.
hægt að notast við listann hér fyrir
neðan til viðmiðunar.
Eitt að vita, annað að gera!
Það vill hins vegar brenna við hjá allt
of mörgum að þó þeir viti upp á hár
hvað er í lagi fyrir þá að borða þá
borða þeir ALLT OF SJALDAN! Þá er
um að gera að fá einhverja aðstoð
með það!
Hér fyrir neðan er tillaga að mataræði.
Hún miðar við einstaklinga sem
stunda líkamsrækt en við það eykst
próteinþörf þeirra.
Því er líklega ekki ráðlegt fyrir börn og
unglinga að borða eins og listinn segir
til um. Það er auðvelt að panta tíma
hjá næringarfræðingi eða næringar-
ráðgjafa eða öðrum fagaðilum sem
sérhæfa sig í að veita ráð varðandi
fæðuneyslu.
Máltíð nr. 1: T.d. Cheerios + léttmjólk
Máltíð nr. 2: Ávöxtur + skyr (ca 200 g)
Máltíð nr. 3: Disknum skipt í þrennt,
grænmeti (helst kjarngott og „massí-
vt“) + próteingjafi (kjöt/fisk-
ur/egg/baunir/helst fitulítið) + kol-
vetni (t.d. hrísgrjón/kartöfl-
ur/pasta/brauðmeti/)
Máltíð nr. 4: Samloka (gróft brauð)
með grænmeti og próteinríku áleggi
s.s. skinku+kotasælu
Máltíð nr. 5: Svipað og máltíð nr. 3.
Máltíð nr. 6: Ávöxtur
Reyna að drekka ca 8 glös af vatni á
dag (ekki allt í einu ; O )
Hægt er að finna ítarlegri upplýsingar
um mataræði víða á netinu m.a. mat-
arvefurinn.is, abet.is, og að sjálfsögðu
á vefsvæði Heilsuráðgjafar www.heils-
uradgjof.is
Sölvi Fannar Viðarsson
Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar.
Hann hefur starfað við einkaþjálfun
og heilsuráðgjöf
um árabil.
Allar
heilsuvörur
á einum
stað
Opið virka daga kl. 10-20
laugardaga kl. 10-17
Þegar þú tekur inn Fjörefni færðu ekki aðeins vítamín
og steinefni heldur einnig öflugan skammt af ginseng og ginkgo.
Fjörefni stuðlar að auknu starfsþreki og betra úthaldi!
1 hylki á dag, fyrir sólböð,
á meðan og eftir þau.
Staðfest með vísindalegum
rannsóknum
Eykur brúnan
húðlit í sól
Viðheldur brúnum
húðlit eftir sólböð
Undirbýr húðina fyrir sólböð
Afstaða tekin til lífs og dauða
UNNIÐ ER AÐ ÞVÍ HJÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU AÐ KOMA Á FÓT SÉRSTAKRI
LÍKNASKRÁ UNDIR HEITINU LÍFSSKRÁ SEM MUN MEÐAL ANNARS GEYMA UPPLÝS-
INGAR UM VILJUGA LÍFFÆRAGJAFA.
Fljótlega munu sérstök eyðublöð líta
dagsins ljós sem gerir fólki kleift að
taka ákvörðun um hvort lengja megi líf
þess til dæmis með endurlífgun og
öndunarvél, auk vilja fólks til líffæra-
gjafar. Lífsskráin er gagnagrunnur sem
mun halda utan um þessar upplýsingar
og mun koma til með að auðvelda ætt-
ingjum erfiðara ákvarðanatökur. Mögu-
legt er að breyta skráningu sinni
hvenær sem er, auk þess sem engin
skylda er að skrá sig í Lífsskrána. Við
skráningu gefst fólki kostur á að skrá
sig sem líffæragjafa þó ekki krafist þess
að fólk taki afstöðu í þeim málum við
skráningu.
Hingað til hefur farið lítið fyrir umræð-
unni um líffæragjöf en á hverju ári
þarfnast um það bil tíu sjúklingar hér
landi ígræðslu. Forsenda ígræðslu er að
líffæri fáist frá nýlántum, þótt ekki sé
unnt að nýta líffæri nema í litlum hluta
dauðsfalla en hver líffæragjafi getur
bjargað allt að sex mannslífum. Auk
þess að geta skráð vilja sinn í Lífs-
skrána getur fólk nálgast sérstök líf-
færagjafakort í öllum helstu lyfjaversl-
unum, sem einfalt er að fylla út og
koma fyrir í seðlaveski. Líffæragjöfum
er þó bent á að ræða ákvörðunina við
sína nánustu og gera þeim kunnugt um
afstöðu sína.
Berlínarbúar búa sig nú undir komu
mikils fjölda vændiskvenna til borgar-
innar á meðan Heimsmeistarakeppnin
í fótbolta fer þar fram á næsta ári.
Heilbrigðisyfirvöld reikna með því að
dreifa um hundrað þúsund smokkum
ókeypis. Kona íklædd smokk mun
einnig hjálpa til við að koma skila-
boðum um öruggt kynlíf til skila fyrir
utan Ólympíuleikvanginn.
Með smokkunum fylgir bæklingur sem
kennir karlmönnum að umgangast
vændiskonur þar sem tíu reglur fyrir
viðskiptavini verða kynntar, meðal
annars sú að vera kurteis og um-
gangast vændiskonurnar af virðingu,
að hafa persónulegt hreinlæti í háveg-
um, vera nákvæmur í beiðnum sínum
um þjónustu og auðvitað að nota
alltaf smokk. Búist er við því að
vændiskonur hvaðanæva að úr Þýska-
landi eigi eftir að flykkjast til Berlínar
vegna Heimsmeist-
arakeppninnar.
Líffæragjafi getur bjargað allt að sex mannlífum.
M
YN
D
G
ET
TY
Hundrað þúsund smokkum dreift ókeypis
BERLÍNARBÚAR BÚAST VIÐ MIKLU VÆNDI MEÐAN HEIMSMEISTARAKEPPNIN Í
FÓTBOLTA STENDUR YFIR Á NÆSTA ÁRI.