Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 38
30 21. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR F jölmiðlafólk hafði í nógu að snú-ast um helgina. Ekki vegna þess að David Beckham hafi verið á land- inu heldur gengu fjórir fjölmiðla- menn í það heilaga um helgina. Fyrst af öllu ber að sjálfsögðu að óska Loga Bergmanni og Svanhildi Hólm til hamingju með daginn en þau gengu í það heilaga á fimmtudags- kvöldinu. Veislan var víst frábær og segjast einhverjir hafa séð Svanhildi spóka sig um í hvítum baðslopp í svítunni á Hótel Borg. Þá gekk Sig- mar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi í Idolinu, að eiga Bryn- dísi Björgu Einarsdóttur og Her- mann Fannar Valgarðsson, betur þekktur sem Hemmi feiti á X - inu, giftist Söru Óskarsdóttur í Hafnar- firði. TónleikahaldarinnRagnheiður Hans- son fór um síð- ustu helgi á tvenna tón- leika í London með hljómsveitinni U2. Vonast nú margir eftir því að Ragnheiður, sem m.a. hefur flutt Metallica inn til landsins, hafi þarna verið að leggja línurnar fyrir komu stórsveitarinnar hingað til lands á næsta ári. Nýverið sást til handboltakappansÓlafs Stefánssonar í hrókasam- ræðum við Þórhall miðil í miðbæ Reykjavíkur. Virtust þeir hafa um margt að ræða, sem er kannski ekki skrítið því Ólafur er kunnur fyrir áhuga sinn á andlegum málefnum og heimspekilegum vangaveltum. Ólafur hefur væntanlega fengið góða strauma frá Þórhalli, því skömmu síð- ar unnu Íslendingar Hvít-Rússa í undankeppni Evrópumótsins, þar sem Ólafur stóð sig með mikilli prýði. Leit að statistum fyrir hópatriði ínýjustu kvikmynd Clint Eastwood, Flags of Our Fathers, sem á að taka að hluta til upp hér á landi, stendur nú yfir. Aðili sem sér um að velja rétta fólkið í myndina kemur hingað til lands í byrjun júlí og eftir það kemur í ljós hverjir detta í lukku- pottinn. Eitt skilyrði settu framleið- endur myndarinnar sér. Það var að vöðvastæltir menn kæmu ekki til greina og dvína því vonir margra ís- lenskra kraftajötna um að koma fram í myndinni til mikilla muna. Lárétt: 1 þögull, 6 fugl, 7 í röð, 8 fimmtíu og einn, 9 væta, 10 tíu, 12 dá, 14 ellegar, 15 nesoddi, 16 sérhljóðar, 17 stefna, 18 rór. Lóðrétt: 1 hrap, 2 fjandi, 3 skóli, 4 létt og ., 5 ásaki, 9 for, 11 eyja, 13 ský, 14 trjáteg- und, 17 tímabil. Lausn. 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Ekkert MSG Allur okkar fiskur er án MSG (þriðja kryddið) Mikið úrval af grilfiski. Grillspjót, risarækjur, hörpuskel og humar. Sjónvarpsmaðurinn Hlynur Sig- urðsson fer á suðrænar slóðir í sumar til að finna handa Íslending- um spænskt þak yfir höfuðið. „Það er bara rökrétt framhald að fjalla um eignir á Spáni núna,“ segir Hlynur, sem ætlar að skoða sumar- hús og aðrar eignir á Íslendinga- slóðum á Spáni og mun úttektin birtast í byrjun ágúst og áfram með haustinu í Þak yfir höfuðið á Skjá einum. „Það er gríðarlegur áhugi á eignum á Spáni og salan hefur al- gjörlega margfaldast síðustu ár,“ segir Hlynur um áhuga Íslendinga á sumarhúsum þar. „Það er hægt að gera góð kaup. Fjölmargir eru að hugsa sinn gang, ég tala nú ekki um núna þegar fasteignaverð hefur hækkað svona mikið. Og þessi um- fjöllun er líka sniðug leið fyrir fast- eignasala til að kynna það sem í boði er,“ segir Hlynur. Hann er í sam- bandi við íslenska fasteignasölu sem starfrækt er á Spáni, Perla Investments. Fasteignasalan sér- hæfir sig í sölu spænskra eigna til Íslendinga og virðist hafa nóg að gera. „Ég heyrði það einhvers stað- ar að það væru tvö þúsund Ís- lendingar á Spáni á þessu Alicante svæði sem er vinsælast, Alicante og Torrevieja á austurströndinni, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það,“ segir Hlynur, en hann mun taka þáttinn upp í lok júlí. ■ fiak yfir höfu›i› á Spáni „Ég átti upphaflega bara að sjá um söngtextann, en síðan fór ég að trana mér fram í að breyta byrjuninni á verkinu sjálfu og síðan vatt þetta upp á sig og ég endaði á því að gera leikgerðina að verkinu,“ segir Höskuldur Ólafsson, fyrrum meðlimur í hljómsveitinni Quarashi, sem hefur gert leikgerð á rokk- óperunni Örlagaeggin eftir smá- sögu Mikhaíls Búlgakov. Áætlað er að verkið verði sett upp á Litla sviði Borgarleikhússins hinn 7. júlí. Auk leikgerðarinnar semur Höskuldur tónlistina í upp- færslunni ásamt Pétri Þór Bene- diktssyni, sem getið hefur sér gott orð með því að spila með Ís- firðingnum Mugison. „Ég hefði ekki viljað gera tónlistina einn því mér hefði líklega fundist sem ég væri orðinn of tengdur verkinu auk þess sem það er nógu einmanalegt að hafa unnið einn að leikgerðinni í nokkra mánuði,“ segir Höskuldur. „Þetta er alt- kántrý músík með nauðsynlegum söngleikjaeiginleikum en ekki einhver Andrew Lloyd Webber- froða. Bæði leikverkið og tón- listin gætu staðið eitt og sér án hins því það er ekki verið að þröngva öðrum hvorum miðlinum upp á hinn,“ segir Höskuldur. Höskuldur segir söguna vísindaskáldsögu í anda H.G. Wells og þó að hún hafi verið skrifuð á fyrri hluta síðustu aldar sé margt í henni sem hægt sé að heimfæra upp á nútímann. „Skæð fuglaflensa geisar í óþekktu landi og gengur af hænsnastofninum í landinu dauðum, hungursneyð og efna- hagsleg kreppa vofa yfir en á sama tíma finnur prófessor nokkur upp geisla sem hann kallar lífsgeislann, sem getur margfaldað frumuframleiðslu þeirra lífvera þúsundfalt sem honum er beint að. Fjölmiðlarnir frétta af þessu, stjórnmálamennirnir blandast inn í málið til að þjóðnýta geislann og nota hann til að gera tilraunir á innfluttum hænsna- eggjum með vægast sagt skelfi- legum afleiðingum,“ segir Stefán Hallur Stefánsson, leikari í Örlagaeggjum, um söguþráð sýningarinnar. Meðal leikara í sýningunni verða þær Ilmur Kristjánsdóttir, Esther Talía Casey og Maríanna Clara Lúthersdóttir. Leikstjóri er Bergur Þór Ing- ólfsson. ■ HÖSKULDUR ÓLAFSSON: SEMUR LEIKGERÐ OG TÓNLIST Úr rappinu í leikhúsið FRÉTTIR AF FÓLKI Dótið? Töframálning. Sem er? Akrýlmálning sem er þeim eigin- leikum gædd að hún breytir yfirborði allra veggja í segulstál. Málningin er einstaklega hentug og hún er sett á veggi eins og hver önnur málning. Hún er sérstaklega hentug ef mála á ísskápshurðir, yfir ljót göt í veggj- um eða ef fela á límbandsför. Þar að auki er hægt að nota hana í skólastofuna, barnaherbergið, fyrir listaverk, á mynda- veggi, skrifstofuna, veggi sem teikna má á og svo framvegis. Möguleikarnir eru í rauninni endalausir. Hvernig virkar hún? Málningin er, sem fyrr segir, nánast eins og venjuleg málning. Fyrst er segulstálsgrunnurinn settur á vegginn og síðan er hvaða litur sem er valinn og settur yfir grunninn. Þannig er hægt að fá litríka veggi með segulstáli. Kostir? Kostir segulstálsveggjanna eru margir. Þeir eru til að mynda algjörlega hættulausir börnum sem fullorðnum og uppfylla alla heilsustaðla. Segulstálið hefur engin áhrif á tölvur eða önnur raftæki, enda virkar það svipað og ísskápshurðir. Einn helsti kosturinn er hversu auðveld segul- stálmálningin er í notkun. Það eina sem þarf að passa er að láta málninguna þorna í fjóra tíma, en ekki má setja neina segulhluti á veggina fyrr en 24 tímum seinna. Gallar? Helsti gallinn sem fylgir segul- málningunni er sá að ef fólk vill afsegla vegginn getur það tekið nokkurn tíma. Nánari upplýsingar? Allar upplýsingar um vöruna, spurningar og svör, er hægt að nálgast á heimasíðunni: www.kling.com/magneticpaintindex.html. DÓTAKASSINN ...fær Jóhanna Bergsteinsdóttir, sem hlaut hæstu einkunn sem gefin hefur verið í hagfræði við Háskóla Íslands. HRÓSIÐ HLYNUR SIGURÐSSON Er á leiðinni til Spánar með þátt sinn Þak yfir höfuðið. Hlynur bjó sjálfur á Spáni fyrir nokkru. Lárétt: 1fámáll,6ara,7aá,8li,9agi, 10tug, 12rot,14eða,13tá,16ie,17átt,18 kyrr. Lóðrétt: 1fall,2ári,3ma,4laggott,5lái,9aur, 11æðey, 13táta,14eik,17ár. » FA S T U R » PUNKTUR HÖSKULDUR ÓLAFSSON Semur leikgerðina að uppfærslu á smásögu Mikhaíls Búlgakov sem sett verður upp á Litla sviði Borgar- leikhússins í byrjun júlí. Allur okkar grillfiskur er án MSG (þriðja kryddið) Mikið úrval af grillfiski. Grillspjót, risarækjur, hörpuskel og humar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.