Fréttablaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 1
TÍMAMÓT 18
Sett upp á
tyllidögum
GUÐBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR
▲ ▲
ORÐUVEITING
Úr rappinu
í leikhúsi›
HÖSKULDUR ÓLAFSSON
FÓLK 30
LEIKHÚS
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Fréttasími: 821 7556
FJÖLMIÐLAR Íslenska sjónvarps-
félagið, sem er að hluta í eigu ríkis-
fyrirtækisins Símans og rekur sjón-
varpsstöðina Skjá einn, hefur geng-
ið frá samningi um efniskaup frá
bandaríska klámframleiðandanum
Playboy. Playboy TV í Evrópu er
meðal annars með sjónvarpsstöðv-
arnar The Adult Channel, Spice
Extreme, Spice Platinum og
Climax3 á sínum snærum.
Myndefni Playboy verður hluti
af framboði gagnvirks sjónvarps
Skjás eins, sem hefur göngu sína
um ADSL-háhraðatengingar í
byrjun september. „Þetta er hugsað
sem hluti af efnisframboði þar, en
verður að sjálfsögðu harðlokað og
læst þeim sem ekki eiga að hafa að-
gang þar að,“ segir Magnús Stefáns-
son, sjónvarpsstjóri Skjás eins.
Hann segir vörumerkið í raun skýra
sig sjálft, en efnið sé vænt og fólk
geti vitað að hverju það gangi.
„Þetta er alls ekki eini svona samn-
ingurinn sem er í gangi,“ sagði
Magnús jafnframt og benti á að 365
ljósvakamiðlar væru með mjög
sambærilegan samning við fyrir-
tæki sem heitir Private Blue. „Og
enn svæsnari samning við Private
Gold, en við treystum okkur ekki til
að fara jafn langt í efni.“ - óká
Það verður á
laugardaginn
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
28
72
0
0
6/
20
05
ÞRIÐJUDAGUR
21. júní 2005 - 166. tölublað – 5. árgangur
Skæruliðar klæða styttur
í bleikt
Óþekktur hópur femínista sem
kallar sig Bleiku skæruliðana
hengdi um helgina
bleika borða á stytt-
ur Reykjavíkur.
MENNING 24
Til styrktar góðu málefni
Valgerður Bjarnadóttir segir það reyna
meira á menn sem vanir eru að út-
deila fríðindum og greiðum úr
opinberum sjóðum og bönk-
um að vera við völd þegar
búið er að markaðsvæða.
SKOÐUN 14
Hundarnir halda
mér í formi
BÁRA HLÍN ERLINGSDÓTTIR
Í MIÐJU BLAÐSINS
● heilsa
▲
GRÁLÚSUG OG FALLEG HRYGNA Það var borgarstjórinn í Reykjavík sem náði fyrsta laxinum á land úr Elliðaánum í gær, en Steinunni
Valdísi tókst að landa um fjögurra punda grálúsugri hrygnu í fossinum eftir skemmtilega og snarpa viðureign.
Landbúna›arrá›herra flrjá
milljar›a fram úr fjárlögum
Gu›ni Ágústsson landbúna›arrá›herra hefur fari› rúma flrjá milljar›a fram úr fjárlögum í rá›herratí›
sinni, um 650 milljónir króna á ári a› me›altali, sem er vel yfir fjögurra prósenta vi›mi›unarmarki fjár-
málará›uneytisins. Uppsafna›ur vandi segir fjármálastjóri rá›uneytisins.
FJÁRLÖG Í ráðherratíð Guðna
Ágústssonar hefur landbúnaðar-
ráðuneytið farið um 3,3 milljarða
fram úr fjárlögum. Guðni Ágústs-
son tók við embætti 1999 en frá
þeim tíma hefur ráðuneytið farið
fram úr fjárlögum að meðaltali er
nemur um 650 milljónum króna ár-
lega.
Ingimar Jóhannsson, fjármála-
stjóri landbúnaðarráðuneytisins,
segir að framúrkeyrslan stafi einna
helst af rekstrarhalla landbúnaðar-
skólanna og embættis yfirdýra-
læknis en af ólíkum ástæðum þó.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöð-
um um framkvæmd fjárlaga á síð-
asta ári var landbúnaðarráðuneytið
það ráðuneyti sem fór hlutfallslega
mest fram úr rekstrarliði laganna.
Hann segir að embætti yfirdýra-
læknis hafi tapað um 60 milljónum
vegna gjaldþrots sláturhúsa fyrir
nokkrum árum. „Í tilviki yfirdýra-
læknis er því ekki um árvissa fram-
úrkeyrslu að ræða heldur tap sem
velt hefur verið á milli ára,“ segir
Ingimar. Aðspurður segir hann að
ráðuneytið hafi margoft sóst eftir
því að tapið yrði hreinsað upp en
það hafi enn ekki gengið eftir.
„Hvað varðar skólana má deila
um það hvort fjárveitingar séu of
lágar eða hvort skorti á forgangs-
röðun verkefna innan skólanna,“
segir Ingimar. Hann segir að þegar
Landbúnaðarskólanum á Hvann-
eyri hafi verið breytt í háskóla hafi
ekki nægilegar fjárveitingar fylgt.
„Þar hefur skapast uppsafnað
vandamál síðustu þriggja til fjög-
urra ára,“ segir Ingimar en bætir
við að sífellt sé verið að reyna að
vinna á vandanum. „Í raun hefur
landbúnaðarráðuneytið verið rekið
á fjárlögum á árunum 2001 til 2001
ef frá er talið embætti yfirdýra-
læknis og skólarnir,“ bendir Ingi-
mar á.
Samkvæmt reglugerð um fram-
kvæmd fjárlaga ber ráðuneytum að
bregðast við ef útgjöld verða meiri
en fjögur prósent umfram heimild-
ir. Ingimar segir að sífellt sé verið
að bregðast við samkvæmt reglu-
gerðinni, fara yfir einstaka fjár-
málaliði og hvetja til sparnaðar.
- sda
Það verður á laugardaginn
ÞURRT AÐ KALLA suðvestan til og
einnig um norðaustanvert landið. Annars
rigning eða skúrir, einkum þó austan og
suðaustan til. Hiti 5-14 stig, hlýjast sunnan
til. VEÐUR 4
VEÐRIÐ Í DAG
FRAMÚRKEYRSLA RÁÐUNEYTISINS 1999-2003 MILLJÓNIR KRÓNA
Ár Fjárlög Ríkisreikningur Mismunur Prósentur
1999 8.529,6 9.345,8 816,2 9,57
2000 8.971,4 9.502,7 531,3 5,92
2001 10.525,9 11.039,4 513,5 4,88
2002 10.821,0 11.610,3 789,3 7,29
2003 11.465,1 12.096,0 630,9 5,50
Samtals 50.313,0 53.594,2 3.281,2
*Ekki fengust upplýsingar frá fjármálaráðuneytinu eða landbúnaðarráðuneytinu í gær um fjáraukalög á
tímabilinu og eru útreikningarnir því annars vegar miðaðir við fjárlög eins og þau voru samþykkt á Alþingi
á hverjum tíma og hins vegar ríkisreikninga áranna.
Gagnvirkar sjónvarpssendingar á ADSL í haust:
Skjár einn semur vi› Playboy
Sjálfbært samfélag í Hrísey:
Einstakt
tækifæri
UMHVERFIÐ Verkefnið Sjálfbært
samfélag í Hrísey, sem hófst árið
2003, byggir á að mæta kröfum íbú-
anna án þess að stefna í voða tæki-
færum komandi kynslóða. Iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytið hafa lagt
sex milljónir króna í verkefnið en
það er nú að nálgast vendipunkt.
Íbúarnir hafa öðlast trú á verk-
efninu og fram eru komnar margar
framsæknar hugmyndir sem
byggja á vistvænni og sjálfbærri
starfsemi í eyjunni. Fjölnýting jarð-
varmans gæti leitt til að Hrísey
kæmist á spjöld veraldarsögunnar
sem sjálfbært og vistvænt sam-
félag þar sem jarðvarminn yrði
ekki einungis notaður til hitunar
heldur einnig raforku- og vetnis-
framleiðslu. Sjá síðu 12/ - kk
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Auðun bestur í boltanum
FH-ingurinn Auðun Helgason hefur
verið valinn besti leikmaður fyrsta
þriðjungs Landsbanka-
deildarinnar af íþrótta-
fréttamönnum Frétta-
blaðsins en hann er
með hæstu meðal-
einkunn allra eftir sex
umferðir. ÍÞRÓTTIR 20