Fréttablaðið - 03.07.2005, Page 2

Fréttablaðið - 03.07.2005, Page 2
2 3. júlí 2005 SUNNUDAGUR Mótmælaganga í Edinborg fór friðsamlega fram: Hundra› flúsund mótmæltu EDINBORG, AP Rúmlega hundrað þúsund manns mynduðu keðju umhverfis Edinborg í gær og kröfðust þess að valdamestu þjóðir heims aðstoðuðu ríki Afr- íku við að losna undan oki fá- tæktar. Myndaði keðjan hvítan hring, merki alþjóðlegrar baráttu gegn fátækt. Þetta var upphaf vikulangra mótmæla; látum fátækt heyra sögunni til, vegna fundar átta helstu iðnríkja heims, G8 ríkja, í Skotlandi sem hefst um næstu helgi. Þar sitja leiðtogar Banda- ríkjanna, Bretlands, Þýskalands, Japans, Frakklands, Rússlands, Kanada og Ítalíu á rökstólum um fátækt í heiminum og loft- lagshlýnun. Þegar hafa þeir náð samkomulagi um niðurfellingu skulda átján fátækustu ríkja heims. Bob Geldof hefur sagt að hann vonist til þess að um milljón mót- mælendur umkringi Edinborg á meðan fundurinn fer fram. Skipuleggjendur segja að um 200.000 manns hafi tekið þátt í mótmælunum, en AP fréttastofan hefur eftir lögreglunni í Edinborg að mótmælendur hafi verið um 120.000. „Við erum íbúar alþjóðlegs þorps. Við þurfum á hjálp að halda,“ sagði Siphiwe Hlophe, sem ferðaðist frá Svasílandi í Afr- íku til að taka þátt í keðjunni. „Leiðtogar G8 ríkjanna verða að standa við loforð sín.“ Mótmælagangan fór mjög friðsamlega fram. Göngumenn blésu í flautur og báru borða og blöðrur þar sem hvatt var til þess að auka þróunarhjálp verulega, fella niður skuldir fátækustu þjóða heims og opna fyrir við- skipti við fátækari lönd. ■ Fjárhagsvandi Háskólans á Akureyri: Aukafjárveiting gegn sparna›i NÁM Háskólinn á Akureyri og Menntamálaráðuneytið hafa gert með sér drög að samkomulagi til að leysa fjárhagsvanda Háskól- ans. Samkvæmt því samkomulagi fær háskólinn söluandvirði eign- arhluta ríkisins í Glerárgötu 36 á Akureyri, sem er um 100 milljón- ir króna. Verður sú fjárhæð notuð til að greiða leigu fyrir Borgir, sem er nýtt rannsóknarhús Há- skólans á Akureyri. Þá mun menntamálaráðuneytið, sam- kvæmt þessum drögum, beita sér fyrir því að skólinn fái um 40 milljónir í aukafjárveitingu á þessu ári. Á móti sparar Háskólinn á Ak- ureyri í rekstri skólans, meðal annars með því að innrita ekki nemendur á fyrsta ár í upplýs- ingatæknideild. Í samkomulaginu er jafnframt kveðið á um að fjár- veitingar skólans til næstu fjög- urra ára miðist við sex til átta pró- senta fjölgun nemenda. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri segir að slíkt sé vel við- unandi, en hægi á vexti skólans. Steingrímur Sigurgeirsson, að- stoðarmaður menntamálaráð- herra, sagðist í gær ekki vilja tjá sig um málið á meðan enn er verið að vinna að samningnum. - kk/-ss fiora ekki a› spyrja um hæfi Halldórs STJÓRNMÁL Forystumenn stjórnar- andstöðunnar segjast bíða við- bragða við lögfræðiáliti, sem þeir hafa látið vinna um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætis- ráðherra og minnisblaðs Ríkis- endurskoðanda um hæfi og af- skipti hans af sölu ríkisbank- anna. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki efast um það að Halldór Ás- grímsson hafi gengið fram af heilindum í bankasölunni eins og í öðrum málum sem þeir haft samstarf um. „Ég er ekki búinn að lesa þessa langloku frá stjórn- arandstöðunni í heild. Stjórnar- andstaðan fær þar svör við leið- andi spurningum sínum en forð- ast að spyrja þeirrar spurningar sem þeir hafa haldið mest á lofti, hvort lögfræðingarnir telji Hall- dór vanhæfan. Í mínum huga er bara ein skýring á því hvers vegna ekki er spurt þeirrar spurningar. Stjórnarandstaðan óttast svarið,“ segir Davíð. „Okkur sýnist lögfræðiálitið beinast fyrst og síðast að Ríkis- endurskoðun og vinnubrögðum hennar,“ segir Steingrímur Ólafsson blaðafulltrúi forsætis- ráðherra. „Halldór ber fullt traust til Ríkisendurskoðunar og þetta álit, sem greitt er fyrir af stjórnarandstöðunni, breytir engu þar um. Meginefni skýrsl- unnar snýr að Ríkisendurskoðun og forsætisráðherra svarar ekki fyrir hana,“ segir Steingrímur. Forystumenn stjórnarand- stöðunnar telja að lögfræðiálitið staðfesti að Halldóri Ásgríms- syni hefði árið 2002 borið á grundvelli stjórnsýslulaga að gera viðvart um hugsanlegt van- hæfi sitt til þátttöku í sölu ríkis- bankanna. Davíð Oddson segist ekki efast um hæfi Halldórs. „Stjórnsýslulögin eru mjög af- gerandi og næstum smásmyglis- leg og jafnvel erfið fyrir jafn lítið samfélag og Ísland að starfa við. Það er flóknara að fylgja þeim í fámenni en fjöl- menni. Tengingarnar í fá- menninu eru svo margvíslegar þegar að er gáð, ætta-, vina- og viðskiptatengsl. Þó verðum við að hafa í heiðri meginreglur. Og þess vegna voru stjórnsýslu- lögin sett að mínu frumkvæði á sínum tíma.“ Davíð segir einkavæðinguna tvíþætta og það flæki málið. „Hún er breyting á forræði sem venjulega er á hendi einstakra ráðherra. Hins vegar er ráð- herranefnd sem fjallar um hina almennu þætti málsins, tímasetn- ingar, áhrif á stöðu efnahags- mála, jafnvel kjarasamninga og fleira og hún lýtur öðrum lögmál- um. Þá geta menn ekki horft á sömu hæfisskilyrði eins og þegar í hlut á ráðherra sem tekur hina endanlegu ákvörðun. Þetta ruglar fólk í ríminu og þetta er alveg kjörinn farvegur fyrir fólk sem vill fiska í gruggugu vatni. Og það eru menn að reyna núna,“ segir Davíð Oddsson. johannh@frettabladid.is Færeyskir dagar: Miki› magn fíkniefna LÖGREGLA Á föstudagskvöld stöðv- aði lögreglan á Snæfellsnesi nokkra bíla við Lyngbrekku við umferðar- eftirlit og gerðu leit í þremur. Með hjálp fíkniefnahundar fundust níu grömm af amfetamíni, sautján e- töflur og eitthvað af hassi og maríjúana. Einnig lagði lögregla hald á sextán kassa af bjór en eig- endur áfengisins voru allir undir átján ára aldri. Í Ólafsvík fann lögreglan svo hálft gramm af spítti, amfetamín og hass. Að sögn lögreglunnar er það óhugnalegt að miðað við hversu mikið fannst í leitinni við Lyng- brekku þá hljóti fjölmargir bílar að hafa keyrt framhjá með ólögleg eit- urlyf innanborðs. Telur lögreglan að þetta hafi einungis verið brot af þeim fíkniefnum sem fóru inn á Færeyska daga í Ólafsvík. - bog NÍU SEKTAÐIR VEGNA HRAÐAKST- URS Níu bílstjórar voru stöðvaðir vegna hraðaksturs af lögreglunni á Húsavík við sérstakt umferðar- eftirlit sem Umferðarstofa og Samgönguráðuneytið standa fyrir. Sá sem hraðast ók var á 126 kílómetra hraða og verða þessir níu aðilar sektaðir. AFTANÁKEYRSLA Harður árekst- ur varð nálægt Litlu Hámundar- stöðum um átta leytið á föstudag. Fólksbíll ók aftan á jeppa sem var í þann mund að beygja og var áreksturinn það harður að jepp- inn fór þversum og valt nokkrum sinnum á veginum. Báðir bílarnir gjöreyðilögðust. RAFMAGNSBILUN Í BÁTI Leit var gerð að báti um hálfeitt í nótt en rafmagnsbilun varð í bátinum sem gerði það að verkum að hann datt út af sjálfvirku leitarkerfi. Báturinn náði þó sjálfur sam- bandi þegar nær dró landi með því að hringja úr farsíma og var leitin þá afturkölluð. SPURNING DAGSINS Er heimurinn or›inn betri? „Já, ég held að heimurinn sé orðinn betri. En það skemmtilega er að við getum gert hann enn þá betri.“ Stefán Ingi Stefánsson starfsstjóri Unicef á Íslandi stóð í ströngu um helgina vegna Live 8 tónleik- anna sem fóru fram víðs vegar um heiminn. Tónleikarnir voru haldnir til að vekja athygli á neyð þróunarlandanna. LÖGREGLUFRÉTTIR LÁTUM FÁTÆKT HEYRA SÖGUNNI TIL Fyrstu mótmælendur vegna G8 fundarins, sem haldinn verður í næstu viku, eru mættir til Edinborgar. Um 100.000 mynd- uðu risakeðju utan um borgina í gær. Daví› Oddsson utanríkisrá›herra segir Halldór Ásgrímsson hafa gengi› fram af heilindum í bankasölumálinu. Stjórnarandsta›an for›ist a› spyrja lögfræ›- inga beint um hæfi forsætisrá›herra flví hún óttist svari›. BORGIR Samkvæmt drögum að samningi Háskólans á Akureyri og Menntamálaráðu- neytisins mun háskólinn fá um 100 milljónir til að greiða leigu fyrir Borgir. DAVÍÐ ODDSSON FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Ráðherranefnd um einkavæðingu fól í sér breytingu á forræði sem venjulega er í höndum einstakra ráðherra. Það breytir hæfisskilyrðum að mati Davíðs. Skoðanakönnun Gallups: Lítil breyting frá í maí STJÓRNMÁL Samkvæmt skoðana- könnun Gallup sem gerð var í júní breytist fylgi flokkanna lítið frá því í maí. Fylgi er mest við Sjálfstæðis- flokkinn tæplega 38 prósent, sem er það sama og í síðasta mánuði. Fylgi Samfylkingar breytist einnig lítið og mælist 34 prósent. Vinstri grænir bæta örlitlu við sig og mæl- ast með um 16 prósenta fylgi. Fram- sóknarflokkurinn mælist með tæp- lega níu prósent. Fylgi Frjálslynda flokksins dalar frá síðustu könnun og mælast þeir nú með naumlega fjögurra prósenta fylgi. Helmingur þjóðarinnar segist styðja ríkisstjórnina. RÚV sagði frá í gær. -ss Ferðahelgin: Tvær konur kæra nau›gun LÖGREGLA Grunur liggur á að tveim- ur konum hafi verið nauðgað um helgina, önnur var á færeyskum dögum í Ólafsvík, en hin á humarhá- tíðinni í Höfn í Hornafirði. Grunur er á að fimmtán ára stúlku hafi verið nauðgað í Ólafsvík. Að sögn lögreglunnar á Snæfells- nesi mundi stúlkan lítið og gat gefið litlar upplýsingar um ódæðis- manninn. Farið var með stúlkuna á neyðarmóttöku og talið er að henni hafi verið gefin ólyfjan. Þá kærði kona á þrítugsaldri nauðgun til lög- reglunnar á Höfn að morgni gær- dags. Verið er að rannsaka málið. ■ HAÍTÍ HJÁLPARSTARFSMAÐUR MYRTUR Starfsmaður Alþjóða Rauða krossins á Haítí fannst myrtur nærri heimili sínu tvemur dögum eftir að hann var numinn á brott. Mikil neyð er á Haítí eftir borgarastríð og náttúruhamfarir undanfarinnar ára auk þess sem efnahagur landsins hefur lengi verið í rúst.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.