Fréttablaðið - 03.07.2005, Side 10

Fréttablaðið - 03.07.2005, Side 10
3. júlí 2005 SUNNUDAGUR vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is „Vi› eigum eftir a› sjá afbrag›s hálfsárs uppgjör hjá nokkrum félögum á næstunni og flá fyrst og fremst hjá fjármálafyrirtækjunum.“ 10 Hlutabréfa- markaðurinn nær áttum Frá áramótum hefur úr- valsvísitalan hækkað um 23 prósent. Hækkunin á öðrum ársfjórðungi var 5,5 prósent sem þykir heldur lítið miðað við það sem á undan er gengið. Eggert Þór Aðalsteinsson fór yfir hlutabréfa- markaðinn á nýliðnum fjórðungi og ræddi við tvo sérfræðinga sem telja að fjárfestar geti vel við unað. Þeir eru sammála um að mikil eftirspurn sé eftir hluta- bréfum þessa dagana. Hlutabréfamarkaðurinn hefur sýnt fá merki á þessu ári um að hann sé að gefa eftir. Nema síður sé. Þegar hækkunin frá áramótum er skoðuð hefur úrvalsvísitalan hækkað um 23 prósent sem varð að mestu til á fyrsta ársfjórð- unginum. Bakkavör Group er í efsta sæti íslensku kauphallar- deildarinnar þegar fyrri hálfleik er lokið. Félagið hefur hækkað um 60 prósent frá áramótum. Fast á hæla Bakkavarar kemur FL Group, sem hefur hækkað um helming. Annar fjórðungur rólegri Hækkun á hlutabréfaverði var mun hóflegri á 2. ársfjórðungi en undanfarna fjórðunga. Alls hækkaði Úrvalsvísitala Kaup- hallarinnar um 5,5 prósent á þeim ársfjórðungi sem var að líða. Til samanburðar hækkaði vísitalan um 16,5 prósent á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Að jafnaði væru fjárfestar ánægðir með 5,5 prósenta hækkun yfir þriggja mánaða tímabil en hér á Íslandi þykir þetta lítið sökum mikilla hækk- ana á hlutabréfaverði undanfar- in þrjú ár. Fjárfestir sem setti eitt hundrað þúsund krónur í hlutabréfum, sem fylgja þróun úrvalsvísitölunnar, í ársbyrjun 2002 hefur séð þau hækka upp í 350 þúsund krónur þremur og hálfu ári síðar. Á öðrum ársfjórðungi hækk- aði Bakkavör mest allra félaga eða um 22,6 prósent en Straumur kom skammt á eftir með 18 pró- sent hækkun. Sjö af þeim fimmtán félögum sem skipa Úr- valsvísitölun lækkuðu. Langmest lækkuðu bréf í Flögu Group eða um átján prósent. Atli B. Guðmundsson, hjá greiningu Íslandsbanka, segir að áberandi munur hafi verið á þessum tveimur fjórðungum. „Fyrsti fjórðungur einkenndist af miklum hækkunum og ég held að margir hafi verið orðnir smeykir um að markaðurinn væri kominn fram úr sér í mars,“ segir hann. Íslandsbanki reiknaði með að verð á hlutabréfum myndi hækka um 15-25 prósent á árinu. „Í apríl gerðum við nýja afkomu- spá og spáðum nærri 30 prósenta hækkun yfir allt árið. Ég tel lík- legt að markaðurinn stefni yfir þá spá,“ bætir Atli við. Sigurður Valtýsson, fram- kvæmdastjóri MP Fjárfestingar- banka, tekur undir með Atla að hækkun úrvalsvísitölunnar sé meiri en hann hafði búist við. „Hækkun vísitölunnar hefur verið mjög mikil. Ég sé það hins vegar ekki fyrir mér að verðið lækki af neinu ráði. Það gæti komið tími þar sem fjárfestar selji bréf og taki út hagnað og þar með lækki vísitalan eitt- hvað.“ Útrásin í algleymingi Margt bar til tíðinda í Kaup- höllinni á öðrum ársfjórðungi. Það var ekkert aprílgabb að ræða þegar tilkynning barst frá stjórn breska bankans Singer & Fried- lander 1. apríl um að hún hefði hafið viðræður við stjórn stærsta hluthafans, KB banka, um hugs- anlega yfirtöku. Féllust aðilar á að KB banki gerði tilboð í hlutabréf annarra hluthafa í S&F fyrir rúma 50 milljarða króna. Bakkavör Group, fyrirtæki ná- tengt KB banka, yfirtók breska matvælaframleiðandann Geest í lok apríl og greiddi fyrir um 75 milljarða. Hafa þessi kaup fallið vel í kramið hjá fjárfestum eins og áður sagði og er ljóst að stjórn- endur félagsins eru hvergi nærri hættir en þeir hafa kynnt áform sín um að stækka frekar í Evrópu og sækja inn á Kínamarkað. Þriðja stóra félagið, sem stækkaði starfsemi sína á erlend- um vettvangi, var Actavis Group. Í maí var tilkynnt að félagið hefði keypt bandaríska samheitalyfja- fyrirtækið Amide fyrir um 33 milljarða króna. Kaupin voru í fullu samræmi við stefnu félags- ins að sækja inn á stærsta lyfja- markað heims – Ameríkumarkað. Á dögunum lauk Actavis svo við fjármögnun á Amide með hluta- fjárútboði þar sem hluthafar skráðu sig fyrir nýju hlutafé að andvirði tuttugu milljarða króna. Greining Íslandsbanka er bjartsýn á gengi þessara þriggja félaga. „Við erum bjartsýnir á Bakkavör og KB banka. Einnig er ástæða til að vera bjartsýnn á gengi Actavis í ljósi þess hve út- boðið gekk vel. Margir bíða eftir næstu afkomutölum og hvernig tekst til í Bandaríkjunum,“ segir Atli. Íslandsbanki í sviðsljósinu heima fyrir Nóg var af fréttum heima fyrir á öðrum árshluta. Burðarás seldi alla hluti sína í Eimskipafélaginu ÞRÓUN FÉLAGA Í ÚRVALS- VÍSITÖLUNNI Á 2. ÁRS- FJÓRÐUNGI Bakkavör +22,6% Straumur +18,0% Landsbankinn +13,7% FL Group +9,5% Íslandsbanki +8,8% Burðarás +7,4% Úrvalsvísitalan +5,5% Marel +2,8% KB banki +1,7% Kögun -0,5% Og fjarskipti -1,2% Samherji -1,2% Actavis -2,2% Össur -4,8% Atorka -4,9% Flaga -18,2% Heimild: Íslandsbanki GRÚPPURNAR HÆKKA FL Group ásamt Bakkavör Group hafa hækkað mest allra félaga frá áramótum. Úrvalsvísitalan hækkaði um rúm fimm prósent á öðrum ársfjórðungi eftir mikla hækkun á þeim fyrsta.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.