Fréttablaðið - 03.07.2005, Page 22

Fréttablaðið - 03.07.2005, Page 22
6 ATVINNA Lágafellsskóli í Mosfellsbæ Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með öflugu starfsfólki í glæsilegum, vel búnum skóla þar sem ríkir góður starfsandi. Óskum eftir að ráða kennara til dönskukennslu í 7. – 10. bekk í 100% starf frá 1. ágúst 2005. Laun samkv. kjarasamningi LN og KÍ. Umsóknar- frestur til 17. júlí 2005. Umsóknir sendist á: johannam@lagafellsskoli.is eða sjohnsen@ismennt.is Ennfremur óskast skólaliðar í hlutastörf í ræstingu, gangavörslu, gæslu og í skólabíl. Ráðið verður í störfin frá 15. ágúst 2005. Laun skv. kjarasamningi LN og Stamos. Umsóknir sendist í tölvupósti á ofangreind netföng eða í Lágafellsskóla við Lækjarhlíð. Umsóknarfrestur um störfin er til 17. júlí 2005. Upplýsingar um störfin gefa Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri í síma 896-8230 , Sigríður Johnsen, skólastjóri s: 896-8210 Afturelding Framkvæmdastjóri Aðalstjórn Aftureldingar vantar framkvæmdastjóra í 100% starf. Við leitum að einstaklingi með viðskipta og rekstramenntun auk brennandi áhuga á íþróttum barna og ungmenna. Ráðningartími eftir samkomulagi. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma því starfinu getur fylgt erill utan dagvinnutíma. Helstu verkefni: • Allur rekstur félagsins þmt. bókhald, önnur fjár- málaumsýsla og starfsmannahald. • Aðstoð við stjórnir deilda í rekstrar og fjármálum. • Eftirlit með rekstri deilda félagsins. • Þjónusta við iðkendur og stjórnir deilda. • Verkefnastjórnun t.d.átaksverkefni félagsins. • Samskipti við önnur íþróttafélög og bæjaryfirvöld. • Ritstjórn vefsíðu. • Umsjón með fjáröflunum félagsins. Þekking-hæfni: • Krafa um viðskipta- eða hagfræðimenntun auk þekkingar og reynslu af barna- og unglingastarfi. • Frumkvæði, sjálfstæði í störfum og lipurð í mannlegum samskiptum skilyrði. • Góð tölvukunnátta alveg nauðsynleg. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til 25.júlí. Umsóknir sendist til: UMF. Aftureldingar pósthólf 174, 270 Mosfellsbær. Fyrirspurnir eða óskir um viðtal má senda til Elísabetar Guðmundsdóttur formanns Aftureldingar netfang:elisabeg@lsh.is. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað. Afturelding er framsækið og öflugt íþrótta- og ungmennafélag í Mosfellsbæ með blómlegan rekstur. Aðsetur þess er í íþróttahúsinu við Varmá.Félagið rekur 11 íþróttadeildir í samvinnu við sjálfboðaliða sem stjórna deildum:knattspyrnu,handbolta,fimleika,sund,badmint- on,blak,karate,körfubolta,borðtennis, frjálsar íþróttir og íþróttaskóla barnanna. Hjá félaginu starfa 42 þjálfarar,framkvæmdastjóri auk starfsmanns á skrifstofu. Iðkendur eru á aldrinum 3 til 50ára. 34.900.000. Stórglæsilegt 6 herb. 237 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið skilast fullfrágengið að utan, lóð verður fullkláruð. Rúmlega fokhelt að innan, þar sem búið er að einangra þak. Einnig verður hægt að frá eignina lengra komna ef óskað er eftir því. Magnús s. 696-0044 og Friðbert s. 896-0295 taka vel á móti ykkur. Draumahús ehf. Brynjólfur Hjartarson hdl. og Sigurður J. Sigurðsson, löggiltir fasteignasalar. Asparhvarf 19a - 203 Kóp. OPIÐ HÚS Í DAG á milli kl. 14.00 og 17.00 Rit ri Draumahús leita að ritara. Starfið felst í símsvörun, aðstoð við skjalafrágang og útkeyrslu skjala. Vinnutími 9:00 til 17:00 mánudaga til föstudaga. Krafa um bílpróf, hreint sakavottorð og að viðkom- andi sé ekki á vanskilaskrá. Draumahús eru reyklaus vinnustaður. Draumahús eru fyrirmyndar- fyrirtæki VR 2005. Draumahús bjóða seljendum fasteigna fasta söluþóknun. Umsóknir, með mynd, sendist á bergur@dr umahus.is eða Draumahús, Mörkinni 4, 108 Reykjavík, fyrir 6. júlí 2005. Hárgreiðslustofan mín óskar eftir að ráða þjónustulipran og áreiðanlegan hárgreiðslumeistara eða svein til starfa sem fyrst. Vel kemur til greina að ráða í 50-80% stöðu. Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf, meðmælendur ásamt launahugmyndum sendist fyrir 3. júlí n.k á netfangið hargreidslustofanmin@hotmail.com Húsavík Auglýst er eftir deildarstjóra og leikskólakenn- urum að leikskólanum Bestabæ á Húsavík. Húsavík er 2.500 manna bæjarfélag, þar er öflugt félags- og menn- ingarlíf, aðstæður til uppeldis barna hinar ákjósanlegustu, vegalengd- ir litlar. Í bænum er framhaldsskóli, grunnskóli, tveir leikskólar, tónlist- arskóli og öflug heilbrigðisstofun (sjúkrahús og heilsu gæsla) auk allrar almennrar þjónustu. Leikskólakennarar sem ráða sig að leikskólum á Húsavík fá greiddan flutningsstyrk samkvæmt reglum bæjarfélagsins. Aðstoð er veitt við útvegun húsnæðis. Bestibær er 4 deilda leikskóli, stefna leikskólans mótast af uppeldis- kenningum John Dewey og Caroline Pratt. Á öllum deildum leik- skólans er unnið með TMT. Næsta skólaár verður lagt upp með rannsóknarverkefni á hreyfiþroska og þjálfun leikskólanema. Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg Friðbjarnardóttir, aðstoðarleik- skólastjóri vs. 464 1255 (bestibaer@simnet.is) hs. 464 2611. Umsóknarfrestur er til 8. júlí, umsóknum skal skila til leikskólastjóra. Verkfræðingar vinna fjölbreytt störf og búa yfir faglegri þekkingu sem nýtist vel á ýms- um sviðum. Þeir vinna hjá fyrirtækjum og stofnunum, eru í ýmiss konar stjórnunar- störfum eða reka sínar eigin verkfræðistofur. Verkefni verkfræðinga eru af ýmsum toga og í nútíma samfélagi þar sem tækniframfarir eru daglegt brauð er mikil þörf fyrir fólk með verkfræðimenntun. Nám í verkfræði er því góður kostur og býður upp á óteljandi möguleika. NÁM Við verkfræðideild Háskóla Íslands er hægt að velja á mili umhverfis- og byggingaverk- fræði, véla- og iðnaðarverkfræði og raf- magns- og tölvuverkfræði. Námi við verk- fræðideild lýkur með meistaraprófi og tekur að lágmarki 5 ár en einnig er hægt að út- skrifast með BS-gráðu í verkfræði að loknu þriggja ára námi. BS-gráða gefur hins vegar ekki rétt til þess að kalla sig verkfræðing. Háskólinn í Reykjavík hefur nýlega hafið kennslu í verkfræði og þar eru aðrar brautir í boði. Þar er hægt að taka BS- og MS-gráðu í fimm greinum: fjármálaverkfræði, heilbrigð- isverkfræði, hugbúnaðarverkfræði, iðnaðar- verkfræði og rekstrarverkfræði. HELSTU NÁMSGREINAR Eins og gefur að skilja eru námskeið í verk- fræðinni ólík eftir því hvaða braut menn velja. Almennur kjarni byggir hins vegar á mikilli stærðfræði, eðlisfræði, rekstrarfræði, tölvufræði og efnafræði. Sérgreinarnar eru síðan mismunandi eftir því hvaða verkfræði er verið að læra. Þá er einnig gert ráð fyrir að nemendur í verkfræði ljúki tiltekinni starfsþjálfun í fyrirtæki eða stofnun. INNTÖKUSKILYRÐI Til að hefja nám í verkfræði verður maður að hafa stúdentspróf, helst af raunvísinda- deild í framhaldssóla. Við Háskólann í Reykjavík er boðið upp á nám í frumgreina- deild sem veitir undirbúning fyrir þá sem ekki hafa lokið stúdentsprófi eða vantar grunn í raugreinum. AÐ LOKNU NÁMI Að loknu meistaraprófi er hægt að sækja um til iðnaðarráðuneytisins og fá starfsheitið verkfræðingur. Miklir möguleikar eru á fram- haldsnámi í faginu bæði hér heima og er- lendis. STARFIÐ Verkfræðingar geta fengið vinnu á ýmsum vettvangi. Þeir vinna hjá ríkinu, sveitarfélög- um, stórum fyrirtækjum, fjármálastofnunum eða stunda sjálfstæðan rekstur. Störf verk- fræðinga eru eins og gefur að skilja ólík eftir sérsviði hvers og eins. Heilbrigðisverkfræði- gnar vinna til dæmis við að hanna og þróa gervilimi og líffæri, fjármálaverkfræðingar starfa á vettvangi fjármála, til dæmis í bönk- um og stórum fyrirtækjum, umhverfis- og byggingarverkfræðingar koma að gerð ým- issa mannvirkja svo sem brúa og virkjana, rafmagns- og tölvuverkfræðingar hanna ým- iss konar raftæki og rafeindabúnað og véla- og iðnaðarverkfræðingar starfa meðal ann- ars við fyrirtækjastjórnun og framleiðslu- stjórnun. LAUN OG KJÖR Þótt mikil fjölgun hafi verið í faginu undan- farin ár eiga nýútskrifaðir verkfræðingar til- tölulega auðvelt með að fá vinnu. Launin eru góð og ýmsir starfsmöguleikar eru í boði. Hvernig verður maður … Nám í verkfræði veitir góðan grunn fyrir störf á ýmsum vettvangi. Miklir möguleikar eru í boði því þörfin fyrir tæknimenntað fólk eykst stöðugt. Hönnun og þróun gervilima er að miklu leyti í höndum verkfræðinga. Verkfræðingar koma að byggingu ýmissa mann- virkja, til dæmis brúa. … verkfræðingur Handlaginn húsvörður óskast í 50% starf Samskipti ehf. leitar að starfsmanni til að sjá um fasteignir fyrirtækisins og annað þeim tengdum. Fjölbreytt verkefni fylgja með. Okkur vantar góðan liðsfélaga sem er hress, laghentur, vandvirkur og sjálfstæður í vinnu- brögðum. Upplýsingar um starfið fást hjá Ragnari í síma 580 7813 eða 693 7813.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.