Fréttablaðið - 03.07.2005, Síða 41

Fréttablaðið - 03.07.2005, Síða 41
SUNNUDAGUR 26. júní 2005 17 Við óskum RTS verkfræðistofu til hamingju með að hafa fengið faggilda gæðavottun fyrst íslenskra verkfræðistofa á rafmagnssviði. Með faggildri vottun á gæðakerfi er tryggt að viðskiptavinir RTS munu ávallt fá þá þjónustu sem þeir vænta og að sú þekking og reynsla sem stofan og starfsfólk hennar býr yfir nýtist viðskiptavinum á hagkvæman hátt. Það er okkur hjá British Standards Institute (BSI), sem nú höfum opnað starfsstöð á Íslandi, í senn ánægja og heiður að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í að auka veg þeirra sem starfa við þjónustu og ráðgjöf í rafmagnsverkfræði á Íslandi. TIL HAMINGJU RTS A T H Y G L I Baráttusaga í hljóði Heimurinn þagnaði svo alveg fyrir honum þegar hann fór átján ára gam- all í aðra slíka skurð- aðgerð. Jón Sigurður Eyj- ólfsson tók hús á þessum nýbakaða líffræðingi og komst að því að heimur Þórðar Arnar Kristjáns- sonar hefur hins vegar aldrei hætt að brosa. Það er erfitt að ímynda sér hugar- ástand þrettán ára unglings sem finnur heyrnina fjara út og veit að einn daginn skilji hún hann eftir í hljóði. Þórður er þó allt annað en beiskur í bragði þegar hann rifjar þetta upp. „Ég var svo heppinn að vera í Tjarnarskóla á þessum tíma og þessi skóli er það fámennur að allir þekkja alla svo þetta var eins og að vera í stórri fjölskyldu. Flestir vissu hvernig mínar að- stæður voru og sýndu þeim mikinn skilning og ég var í raun meðvitaður um það að ég myndi sennilegast missa heyrnina þannig að það var ekki svo mikið drama þegar sá dagur rann upp því ég var vel undir það búinn.“ Ekkert truflar við lesturinn „Ég fór í Menntaskólann við Hamrahlíð því þar eru aðstæður bestar fyrir heyrnaskerta en ég verð að viðurkenna að það var svolítið erfitt fyrst enda voru ræður kennaranna aðeins afar lít- ið pískur í mínum eyrum. Þá leit- aði ég til námsráðgjafa og sameig- inlega fundum við námstækni sem hentar mér fullkomlega og eftir það gekk allt að óskum.“ Vala Gísladóttir sambýliskona Þórðar segir hann vera sérlega duglegan og skipulagðan náms- mann og gengst Þórður alveg við því: „Það er betra að vera skipu- lagður,“ segir Þórður, „því þá þarf maður ekki að lesa jafn lengi og þegar maður er óskipulagður. Svo er afskaplega þægilegt fyrir mig að einbeita mér að lestrinum því að það er aldrei neinn hávaði að trufla mig sama hvaða læti eru í gangi,“ bætir hann við kíminn. Þróður segir að námið í Há- skólanum hafi gengið enn betur en í Menntaskólanum og er hann kennurum sínum afar þakklátur fyrir samstarfið. Hann veit af fjórum heyrnaskertum nemend- um í skólanum og vonar hann að vaskleg framganga sín á mennta- brautinni verði öðrum heyrnar- lausum hvatning. Fötlunin skyggir ekkert á per- sónuna Þórður og Vala eiga tvo mynd- arlega syni, Fróða sem er þriggja ára og Óðinn sem er fimm mánaða en stálpaður patti. Fróði lærir táknmál í leiksskólanum og er strax orðinn vel fær með það og því eru samskipti þeirra feðga lipur og góð. Vala útskrifaðist ný- lega úr Kennaraháskólanum og að loknu fæðingarorlofi hefur hún kennslu í Hlíðarskóla þar sem meðal annars er kennt á táknmáli. „Við áttum strax alveg afskap- lega vel saman,“ segir Vala um þeirra fyrstu kynni. „Ég lærði mjög fljótlega að tjá mig á tákn- máli og fötlunin gleymdist í raun og veru alveg. Svo hafa foreldrar okkar beggja verið svo jákvæð og hjálpsöm að þetta varð strax bara eins og ósköp venjulegt samband. Svo er Þórður bara þannig maður að fötlun hans nær ekkert að skyggja á persónuna eða aftra honum við það sem hann ætlar sér að gera.“ Hundurinn leysir pabbann af Þórður getur ekki verið annað en bjartsýnn á framtíðina. Hann hyggur á mastersnám við Há- skólann og þá vill hann rannsaka fuglavörp í Breiðafirði en Þórður er einnig mikill fugla áhugamað- ur. Hann hefur þar að auki afskap- lega gaman af því að skella sér á skytterí enda góð skytta. „Ég fór oft með pabba á skytterí en hann er orðinn frekar latur til þess eða í það minnsta ekki alltaf tilkippi- legur þegar ég vil fara svo ég fékk mér þennan fína hund til að leysa pabba af,“ segir Þórður af sinni einskæru kímni. „Hagur heyrnalausra er alltaf að vænkast og tæknin færir okkur aukið sjálfstæði eins og til dæmis farsímarnir sem gera okkur kleift að komast í samband við hvern sem er án aðstoðar þriðja aðila. Þetta er allt mikið betra og auð- veldara en áður var svo ég get ekki annað en verið ánægður. Ef sjónvarpsfréttirnar væru svo textaðar fyrir okkur sem er nátt- úrulega löngu orðið tímabært þá væri ég jafnvel enn sáttari.“ En Þórður viðurkennir þó að vissulega læðist sú hugsun að honum á erfiðum degi að allt sé þetta ósköp erfitt við þessar að- stæður. „En áður en ég fer eitt- hvað að bölsótast út af sjúkdómi mínum hugsa ég til þess að ef ég hefði hann ekki hefði ég kannski ekki kynnst Völu og ætti því kannski ekki þessa tvo dásamlegu drengi og þar með hef ég kveðið þann bölmóð í kútinn.“ ÞÓRÐUR ARNAR KRISTJÁNSSON Heimur hans Þórðar hefur fyrir löngu hljóðnað en hann hefur alls ekki hætt að brosa. Þórður er fyrsti heyrnarlausi nem- andinn til að útskrifast frá Háskóla Íslands. Hann vonar að sín framganga verði öðrum heyrnarlausum hvatning. Um síðustu helgi urðu þau ánægjulegu tíma- mót að heyrnarlaus nemandi útskrifaðist í fyrsta skipti úr Háskóla Íslands. Hann missti heyrnina á öðru eyra fimmtán ára gamall þegar fjarlægja varð með skurðaðgerð æxli sem náði yfir heyrnartaugarnar en svokallaður neurofibromatosis- sjúkdómur sem hann er með einn Íslendinga sem orsakar æxli við heyrnartaugar. ,, HAMINGJUSÖM FJÖLSKYLDA Þórður ásamt konu sinni Völu Gísladóttur og Óðni yngsta syni þeirra. Fróði stóri bróðir Óðins var hins vegar önnum kafinn á leikskólanum þegar þessi mynd var tekin. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.