Fréttablaðið - 23.07.2005, Side 26

Fréttablaðið - 23.07.2005, Side 26
Í eftirdragi Margt þarf að hafa í huga þegar ekið er með tjaldvagn eða fellihýsi. Áður en lagt er af stað í ferðalagið er skynsamlegt að kynna sér þær reglur sem gilda um akstur með tengivagna. Slíkar upplýsingar má meðal annars nálgast á heimasíðu FÍB: www.fib.is[ ] REYNSLUAKSTUR Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur, stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir. Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl. Kerruljós, kerrubretti og nefhjól. Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík Partur–Spyrnan–Lyftarar Eldshöfða 10 s. 585 2500 og 567 8757 TRIO G O L F H J Ó L Bíldshöfða 18 • 110 Rvk Sími 567 6020 • Fax 567 6012 opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00 www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is Almenn smurþjónusta Hjólbarðaþjónusta Sjálfskiptingaþjónusta Rafgeymaþjónusta Ísetning bremsuklossa Dempara – ísetningar o.fl. Vegmúli 4 • Sími 553 0440 Fjórhjóladrif fyrir ferskloftsfíkla Það er vart ánægjulegri ferðamáti en að líða um þjóðveginn á kraftmiklum blæjubíl í sumarblíðunni. Það nýjasta frá Porsche er fjór- hjóladrifsútfærsla af nýrri kyn- slóð 911-blæjubílsins. Það árar vel hjá þýzka sportbíla- framleiðanum Porsche. Á sama tíma og stóru alþjóðlegu bíla- smiðjusamsteypurnar eiga í basli með að láta enda ná saman, setur Porsche hvert sölu- og hagnaðar- metið á fætur öðru. Það fór ekki hjá því að alþjóð- legi blaðamannahópurinn, sem Porsche-verksmiðjurnar buðu á dögunum til að fræðast um og reynsluaka nýjustu afurðinni – fjórhjóladrifinni blæjuútfærslu af nýjustu kynslóð 911- sportbílsins sígilda, yrði var við þessa vel- gengni fyrirtækisins, enda fór kynningin fram á einu fínasta hóteli Þýzkalands sem er innréttað í átjándu aldar höll á hæðinni Bens- berg austan við Köln. Í maí í vor kynntu verk- smiðjurnar fastþaksútgáfu 911- fjórhjóladrifsbílsins, en báðir bílarnir komu samtímis á markað í haust. Annar hver nýr Porsche er nú búinn fjórhjóladrifi. Þetta hlutfall er enn hærra meðal þeirra Porsche sem seljast á Íslandi, enda eru þeir flestir Cayenne-jeppar. Frá því Bílabúð Benna tók við umboðinu fyrir sex árum hafa á annað hund- rað nýir Porsche selst hér. Sprettharka og einstakt veggrip Bíllinn sem blaðamaður Frétta- blaðsins tók til kostanna í nágrenni Bensberg-hallar fæst í tveimur miskraftmiklum útfærslum. Car- rera 4- bíllinn er með 325 hestafla 3,6 lítra boxer-sexu aftan við aftur- hjólin, en í Carrera 4S er rúmtak vélarinnar 3,8 lítrar og hún skilar 355 hestöflum. Eins og gefur að skilja á hvor vélarútfærslan meira en auðvelt með að skila þessum eins og hálfs tonns þunga bíl áfram. Upptakið í kraftminni bílnum er gefið upp 5,3 sekúndur úr núlli í 100 km hraða, 4,9 sekúnd- ur í kraftmeiri S-bílnum. Hámarks- hraði er sagður 280 og 288 km/klst, en svo hraðskreiðir blæjubílar eru mjög fáir á markaði. Það sem skiptir þó þá sem á annað borð festa kaup á svona blæjubíl meira máli en fræðilegur hámarkshraði er að hægt er að fella og reisa þakið á tuttugu sek- úndum með því að þrýsta á einn takka. Þetta er hægt að gera á allt að 50 km hraða. Það hversu lítið vindhljóð heyrist í bílnum þótt ekið sé á yfir 200 km hraða (fullkom- lega löglega á þýzkri hraðbraut) er bezta sönnun þess hve vönduð smíði þetta blæjuþak er. Það vegur aðeins 42 kíló sem gerir það mun léttara en fellanleg málmþök sem nú eru annars í tízku á opnum bílum. Fyrir vetrarakstur er einnig hægt að setja „harðtopp“ á bílinn. Fjórhjóladrifskerfið er eins og í fyrri kynslóðum Carrera 4 frekar til þess gert að betrumbæta sport- bíls-aksturseiginleikana en að auka veggripið í vetrarhálku. Að jafnaði fer aðeins 5% vélaraflsins til fram- hjólanna en séu 30 cm breið aftur- dekkin við það að missa grip getur kerfið sent allt að 40% aflsins til framhjólanna. Fjórhjóladrifið – ásamt hjólbörðunum ofurbreiðu – gerir veggripið á þurru malbiki svo mikið að freistandi er að grípa til klisjunnar að bíllinn sé sem límdur við veginn þótt hratt sé farið í jafnvel kröppustu beygjur. Harði sportkjarninn heldur sér Í samræmi við hröðunargetu þessa bíls er hann búinn hemlum sem stöðva hann á jafnskilvirkan hátt. Og þótt staðalbúnaðarbremsurnar séu yfir drifið nógu öflugar geta þeir sem vilja pantað blæjubílinn sinn með keramik-kappaksturs- bremsum (PCCB) sem kosta frá verksmiðju litlar 7.800 evrur auka- lega eða um 610.000 krónur. Það segir sig annars nánast sjálft að bíll í þessum gæða- og verðflokki er búinn öllum nýjasta öryggis- og þægindaaukabúnaði. Sem betur fer spillir búnaðurinn þó ekki hinum hráa sportbílskjarna sem hefur verið aðalsmerki allra Porsche-bíla frá upphafi og gert þá að draumafarkostum heilla kyn- slóða akstursáhugamanna. Verð á götuna frá umboði hér á landi er 10.491.000 kr. á Carrera 4 Cabrio og 11.900.000 kr. á Carrera 4S Cabrio, með fyrirvara um gengisbreytingar. audunn@frettabladid.is PORSCHE 911 CARRERA 4 CABRIO Vél: Vatnskæld 6 str. boxer, rúmtak 3,6 l Afl: 325 hö/239 kW v. 6800 sn./mín. Tog: 370 Nm v. 4250 sn./mín. Hröðun: 5,3 sek. 0-100 km/klst Hámarkshr.: 280 km/klst Þyngd: 1.535 kg Verð: 10.491.000 kr.* 911 CARRERA 4S CABRIO Vél: rúmtak 3,8 l Afl: 355 hö/261 kW v. 6600 sn./mín. Tog: 400 Nm v. 4600 sn./mín. Hröðun: 4,9 sek. 0-100 km/klst Hámarkshr.: 288 km/klst Þyngd: 1.560 kg Verð: 11.900.000 kr.* Umboð: Bílabúð Benna *m. fyrirvara um gengisbreytingar Hægt er að fella og reisa blæjuna á tuttugu sekúndum á allt að 50 km hraða. Fjórhjóladrifna útfærslan er 44 mm breiðari. Kraftmeiri S-týpan þekkist á fjórföldu pústi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A U Ð U N N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /N JÁ LL G U N N LA U G SS O N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /N JÁ LL G U N N LA U G SS O N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.