Fréttablaðið - 05.08.2005, Síða 8
FÓLK ehf.
5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
SVEITASTJÓRNARMÁL Ólafur Þór
Gunnarsson læknir, sem var
efsti maður á lista Vinstri
grænna í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum í Kópavogi, segir
aðalatriðið að úthlutunarkerfi sé
gagnsætt og fyrirsjáanlegt.
„Það er engin sanngirni í að þú
getir fengið lóð út á það hver þú
ert og hvað þú heitir.“
Lóðaúthlutun í Þingum við
Elliðavatn hefur valdið deilum,
ekki síst í ljósi þess að margt
frægt fólk og skyldmenni bæj-
arfulltrúa fengu lóðir.
Að sögn Ólafs er hægt að nota
þrjár leiðir í úthlutun: Happ-
drætti, lóðauppboð og punkta-
kerfi. Í því kerfi fái maður
ákveðna punkta fyrir búsetu,
fjölskyldustærð, fyrir að hafa
sótt um lóð áður og fleira. Til að
mynda sé hægt að taka þætti
eins og aldur inn í kerfið.
Hann segir þó að erfitt hafi
reynst að gera punktakerfi sem
þyki sanngjarnt. „Þá er í það
minnsta hægt að gera fyrirsjá-
anlegar reglur. Það er verið út-
hluta verðmætum og fólk þarf
að trúa því að kerfið sé þannig
úr garði gert að allir sitji við
sama borð.“ - grs
Ólafur Þór Gunnarsson vill fara aðrar leiðir í lóðaúthlutunum í Kópavogi:
Vill taka upp punktakerfi
ÞING VIÐ ELLIÐAVATN Mikil óánægja virðist meðal bæjarbúa með úthlutunina.
SJÁVARÚTVEGUR Veiða má 198 þúsund
tonn af þorski og 105 þúsund tonn af
ýsu samkvæmt reglugerð sjávarút-
vegsráðuneytisins um stjórn fisk-
veiða á næsta fiskveiðiári.
Þá verður úthlutað 4.010 tonnum
af byggðarkvóta til byggðarlaga
sem hafa lent í vanda vegna sam-
dráttar í sjávarútvegi eða skerðing-
ar á heildaraflaheimildum. Þau
byggðarlög sem fá mest eru Stykk-
ishólmur, Súðavíkurhreppur og
Siglufjörður, sem fá 210 tonn hver.
Alls fá 41 byggðarlag í 32 sveitarfé-
lögum kvóta.
Vegna hruns í skel- og inn-
fjarðarækjuveiðum verður 3.100
þorskígildislestum skipt milli
rækju- og skelbáta, en á yfirstand-
andi ári fengu þeir um 500 lestum
meira í bætur.
Einnig hefur byggðarkvóti sem
Byggðastofnun hefur til úthlutunar
verið minnkaður um helming, úr
750 í 375 þorskígildislestir.
- grs
SJÓMENN AÐ STÖRFUM Alls má veiða 198 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári.
Veiða má 198 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári:
Bygg›akvóti til 41 bygg›ar
HEILDARAFLAHEIMILDIR
NÆSTA FISKVEIÐIÁRS
Þorskur 198.000 lestir
Ýsa 105.000 lestir
Ufsi 80.000 lestir
Steinbítur 13.000 lestir
Karfi 57.000 lestir
Grálúða 15.000 lestir
Sandkoli 4.000 lestir
Skrápflúra 3.500 lestir
Skarkoli 5.000 lestir
Þykkvalúra 1.800 lestir
Langlúra 2.400 lestir
Keila 3.500 lestir
Langa 5.000 lestir
Skötuselur 2.500 lestir
Heimild: sjávarútvegsráðuneytið